Morgunblaðið - 27.08.2008, Síða 1
„VIÐ vissum ekkert um erfiðleika fyrirtækisins fyrr en lögfræðihjörðin
mætti inn á gólf til okkar,“ segir leigjandi á Flúðum, sem er í þeirri stöðu
að Íbúðalánasjóður innleysti húsnæði það sem hann hefur á leigu. Þrjátíu
dögum seinna barst honum bréf frá sjóðnum þar sem honum var kynnt
staða mála og hann beðinn um að flytja út innan þrjátíu daga. Honum þykir
bréfið hafa verið fullharkalegt, en segist þó hafa skilning á aðgerðum
sjóðsins og þeirri stöðu sem hann er í. Hann er fyrst og fremst ósáttur við
íbúðaleigufyrirtækið sem hafi ekki tilkynnt íbúum hvað væri í vændum.
Hann á nú í viðræðum við sjóðinn um kaup á húsinu en hann veit til þess
að Íbúðalánasjóður hafi leyst til sín þrjú parhús á Flúðum. Sumir íbúanna
hafi ekki treyst sér til að kaupa húsin og þar sem leigumarkaður á svæðinu
sé lítill hafi þeim verið nauðugur sá kostur að flytja burtu.
„Lögfræðihjörðin inn á gólf“
TÓNLEIKAR Bjarkar Guðmundsdóttur voru afar heimilislegir og mikil nánd
á milli hennar og áheyrenda í Langholtskirkju í gærkvöldi. Meðal áheyrenda
var auðjöfurinn Roman Abromovich en hann fór af landi brott strax eftir tón-
leikana eftir að hafa verið hér í sumarleyfi ásamt fjölskyldu sinni. Arnar Egg-
ert lýsir í dómi að líðanin hafi verið eins og að labba inn í skírnarveislu í stof-
unni heima hjá Björk, svo heimilislegt hafi andrúmsloftið verið. | 36
Heimilisleg stemning og nánd
Morgunblaðið/G. Rúnar
M I Ð V I K U D A G U R 2 7. Á G Ú S T 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
233. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
DAGLEGTLÍF
ÞÆR FARA Í GÖNGU-
FERÐIR MEÐ TILGANG
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
Sjónræn veisla
innipúkans í vetur Leikhúsin í landinu
Komdu í leikhús
Ástin er diskó,
lífið er pönk >> 35
Eftir Andrés Þorleifsson
andresth@mbl.is
TILVIKUM hefur fjölgað þar sem
Íbúðalánasjóður þarf að leysa til sín
íbúðir sem leiguíbúðafyrirtæki hafa
keypt eða byggt með láni frá sjóðn-
um og leigt til einstaklinga. Hefur
sjóðurinn það sem af er ári leyst til
sín fleiri eignir en allt árið í fyrra,
eða 34 eignir nú en 32 allt árið 2007.
„Fyrir 2007 þekktist þetta varla,“
segir Ásta H. Bragadóttir, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs.
Misjafnir kostir
Í þessum tilvikum standa leigj-
endur frammi fyrir því að þurfa að
rýma íbúðina mánuði eftir að sjóð-
urinn tilkynnir þeim bréflega hvern-
ig mál standa, en oft býður sjóðurinn
leigjendum íbúðirnar til kaups.
Ef um er að ræða margar íbúðir,
t.d. heila blokk, hefur sjóðurinn
þrjár leiðir. Fyrst af öllu leitar hann
stundum til viðkomandi sveitarfé-
lags með það í huga að selja sveitar-
félaginu íbúðirnar, þá er stundum
reynt að selja eignina í heild til leigu-
íbúðafélags og loks getur sjóðurinn
auglýst sérhverja eign.
„Íbúðalánasjóður er ekki leigu-
íbúðafélag og leigir ekki út íbúðir,“
segir Ásta. „Í þeim tilvikum sem um
er að ræða leigjendur í uppboðsíbúð-
um hefur sjóðurinn reynt af fremsta
megni að koma til móts við þarfir
þeirra og vera sveigjanlegur við
rýmingu íbúða. Í einhverjum tilvik-
um hefur leigjendum boðist að
kaupa umræddar íbúðir beint af
sjóðnum.“ Ásta áréttar að alltaf sé
tekið tillit til barnafjölskyldna þann-
ig að skólaár barnanna sé ekki klofið.
Sjóðurinn
eignast
fleiri íbúðir
Leysti til sín fleiri eignir en á heilu ári
Þessi mál þekktust varla fyrir 2007
Þröngir kostir Stundum er leigj-
endum boðið að kaupa af sjóðnum.
Bílaumboðið Ræsir mun hætta
starfsemi á næstu dögum eða vik-
um, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins.
Ræsir var stofnaður árið 1942 og
var með umboð Mercedes-Benz á
Íslandi um áratuga skeið til ársins
2005 þegar Askja tók við umboðinu.
Askja og Kia á Íslandi flytja í hús-
næði Ræsis á Krókhálsi 11. » 17
Ræsir Var lengi með Benz-umboðið.
Ræsir hættir starfsemi
og víkur fyrir Öskju
„Við óttumst
stríð en við vilj-
um ekki efna til
átaka,“ sagði
Bernard Kouch-
ner, utanrík-
isráðherra
Frakklands, í
sjónvarpsviðtali í
gær um þá
ákvörðun Rússa
að viðurkenna sjálfstæði Georgíu-
héraðanna Suður-Ossetíu og Ab-
kasíu. „Ef það er heitt stríð viljum
við það ekki.“ » 16
„Óttumst stríð en viljum
ekki efna til átaka“
Bernard Kouchner
,,Ekki aðeins felur ástandið í sér
stanslaust álag á barnið að vera að
senda það fram og til baka í pössun,
heldur er þetta streituvaldandi fyr-
ir alla á heimilinu,“ segir Katrín
Georgsdóttir, móðir barns í Vest-
urbæjarskóla sem er á biðlista eftir
plássi á frístundaheimili. fjölmargir
foreldrar og börn eru í sömu spor-
um. » 4
Stanslaust álag á barnið
og streita fyrir alla
GERÐUR hefur verið samn-
ingur um gerð kvikmyndar eft-
ir bók Davids Squares um ís-
hokkílið Fálkanna. Liðið varð
ólympíumeistari árið 1920,
þvert á allar líkur. Liðsmenn
voru allir, utan einn, af annarri
kynslóð Íslendinga í Winnipeg í
Kanada.
Saga Fálkanna er ótrúleg og
þeir bjuggu við mikið mótlæti.
Þeim var ekki hleypt inn í
Winnipeg-deildina og stofnuðu
þess vegna sína eigin og kom-
ust alla leið á Ólympíuleikana.
Um sigurinn var m.a. ritað að
árangurinn ætti að fylla hjörtu
allra Íslendinga gleði og stolti
„vegna þess að það eru dreng-
irnir þeirra, sem fræknastir
hafa reynst og þannig svarið
sig í kyn forfeðranna á söguöld-
inni“. | 15
Kvikmynd
um íslenskt
ólympíugull
Fjallar um „íslenska“
íshokkíliðið Fálkana
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
ÍSLENSKA ríkið kostar loftflutn-
inga á vegum Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) árin 2007 og 2008 fyrir
um 200 milljónir króna.
Flytja ekki ólögleg vopn
Ríkið hefur greitt fyrir slíka flutn-
inga frá árinu 2003 og það telst hluti
framlags Íslendinga til starfsemi
bandalagsins. „Það er alls konar
búnaður sem er fluttur á milli staða
og mestallt er flutt til Afganistans,“
segir Urður Gunnarsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi utanríkisráðuneytisins.
Hún segir jafnframt að þess sé vand-
lega gætt að ekki sé verið að flytja
ólögleg vopn eða búnað sem ekki er í
samræmi við alþjóðasamninga sem
Ísland er aðili að. „Þá er ég meðal
annars að tala um jarð- og klasa-
sprengjur,“ segir Urður. | 8
200 milljónir í
hergagnaflutninga
Mestallt er flutt til Afganistans