Morgunblaðið - 27.08.2008, Síða 16
STJÓRNARANDSTÆÐINGAR á
þingi Simbabve auðmýktu Robert
Mugabe, forseta landsins, með því
að gera hróp að
honum og syngja
þegar hann flutti
ræðu í beinni
sjónvarpsútsend-
ingu við setningu
þingsins í gær.
Talið er að þetta
sé í fyrsta skipti á
28 ára valdatíma
Mugabe sem
honum er sýnd
slík óvirðing þegar hann flytur
ræðu.
Mugabe, sem er 84 ára, komst til
valda árið 1980 og hefur hingað til
verið umvafinn jábræðrum þegar
hann hefur ávarpað þingið. Flokkur
hans, ZANU-PF, hafði alltaf bæði
tögl og hagldir á þinginu þar til
hann beið ósigur í þingkosningum
29. mars. Lýðræðishreyfingin
(MDC), flokkur Morgans Tsvang-
irais, fékk þá 100 þingsæti og
ZANU-PF 99, en lítill klofnings-
flokkur í stjórnarandstöðu fékk 10
sæti og einn þingmaður er óháður.
„ZANU er rotinn flokkur,“ sungu
stjórnarandstæðingarnir. Þeir sam-
þykktu yfirlýsingu um að setning
þingsins væri brot á samkomulagi
sem leiddi til viðræðna um að
Mugabe og Tsvangirai deildu með
sér völdum. bogi@mbl.is
Þingmenn
auðmýktu
Mugabe
Robert Mugabe
Hróp gerð að
forsetanum á þinginu
FRÉTTASKÝRING
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
HÚN KOM ekki á óvart en olli engu
að síður nokkrum usla ákvörðun
Rússa um að verða við bón yfirvalda
í Abkasíu og Suður-Ossetíu um að
lýsa yfir stuðningi við sjálfstæði
Georgíuhéraðanna.
Dímítrí Medvedev Rússlands-
forseti dró upp líkindi með átökun-
um í Georgíu eftir upplausn Sovét-
ríkjanna og atburðarásinni undan-
farnar vikur, þegar hann skýrði frá
ákvörðun stjórnar sinnar.
„Niðurstaðan varð sú að þúsundir
manna týndu lífi, tugir þúsunda
urðu að flýja heimili sín […] Og það
voru Rússar sem á þeim tíma komu
í veg fyrir útrýmingu Abkasa og
Osseta,“ sagði Medvedev, og rifjaði
upp hvernig Zviad Gamsakhurdia,
þáverandi Georgíuforseti, fyrirskip-
aði árásir á borgirnar Sukhumi í
Abkasíu og Tskhinvali í S-Ossetíu
1991.
Má í þessu sambandi rifja upp að
borgarastríðinu í Georgíu lauk á
þann veg að héruðin lýstu yfir sjálf-
stæði og komu í kjölfarið á fót sjálf-
stjórn sem síðan hefur verið við lýði.
Rússar eru einangraðir í afstöðu
sinni til sjálfstæðis héraðanna og
þvert á óskir þeirra um stuðning al-
þjóðasamfélagsins hefur ákvörðun
þeirra víða verið fordæmd.
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, kvaðst harma
ákvörðun Rússa.
„Abkasía og Suður-Ossetía eru
innan hinna alþjóðlega viðurkenndu
landamæra Georgíu og munu verða
það áfram,“ sagði Rice, um leið og
hún gagnrýndi Rússa fyrir að virða
ekki skuldbindingar sínar.
„Við óttumst stríð“
Bernard Kouchner, utanríkisráð-
herra Frakklands, sagði rússneskar
hersveitir standa fyrir þjóðernis-
hreinsunum í bænum Akhalgori í
Suður-Ossetíu.
„Við óttumst stríð en við viljum
ekki efna til átaka,“ sagði Kouchner.
Míkhaíl Saakashvili Georgíufor-
seti brást æfur við stuðningsyfirlýs-
ingunni og sagði Rússlandsher
stefna að því að taka yfir hernaðar-
lega mikilvæg svæði í nágrenni
Tíblisi, höfuðborgar Georgíu.
Varaði forsetinn Rússa við því að
árásum á höfuðborgina yrði mætt af
hörku, um leið og hann skoraði á
vesturveldin að grípa til harðari að-
gerða gegn Rússlandsher.
Giga Bokeria, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Georgíu, tók dýpra í árinni
og sagði yfirlýsinguna „ódulda inn-
limun“ Rússa á héruðunum.
Leiðtogar héraðanna tveggja
fögnuðu hins vegar yfirlýsingu
Medvedev forseta og lýstu henni
sem sögulegum tíðindum. Það sjón-
armið hefur heyrst í kjölfar átak-
anna í Georgíu að vesturveldin beiti
Rússa minni þrýstingi en ella sökum
þess að þau þurfi á þeim að halda
við úrlausn ýmissa brýnna mála, á
borð við kjarnorkudeilu Írana og af-
vopnunarmál almennt, svo ekki sé
minnst á þörf margra evrópskra
borga fyrir rússneskt gas.
Nú eru hins vegar teikn á lofti um
að átökin hafi þegar sett alvarlegt
strik í samvinnuna við Rússa.
Kjarnorkusamvinna í uppnámi
Fyrirhugaður samningur Rússa
og Bandaríkjamanna í kjarnorku-
málum verður að öllum líkindum
settur á ís, ásamt því sem líkur á
inngöngu Rússa í Alþjóðaviðskipta-
stofnunina (WTO) hafa minnkað.
Annað dæmi er að forsetaefnin
John McCain og Barack Obama
hafa lagt fram tillögur um margvís-
lega samvinnu við Rússa, nái þeir
kjöri til forseta í nóvember, stefnu-
mótun sem öruggt er að verði tekin
til endurmats næstu vikur og mán-
uði.
Samband Rússa og Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, er einnig stirt.
Eitt skýrasta dæmið um þessa
þróun er hótun Rússa um að loka
fyrir vopnaflutningaleið til Afganist-
ans um Rússland og Mið-Asíu, hjá-
leið sem nýst hefur til að komast hjá
óróanum við landamæri Pakistans.
Hótunin er litin alvarlegum aug-
um, enda hersveitir NATO í Afgan-
istan háðar aðfluttum aðföngum, að
því er segir í dagblaðinu The Times.
Kuldinn í kjarnorkusamvinnu
Rússa og Bandaríkjamanna gæti
haft víðtækari áhrif, ekki síst í því
ljósi að stjórnvöld í Norður-Kóreu
hóta nú að hætta niðurrifi kjarn-
orkuvera sökum þess að Bandaríkin
hafa ekki tekið landið af lista yfir
ríki sem styðja hryðjuverkasamtök.
Enn hitnar í kolunum
Í HNOTSKURN
»Rússar hafa litið á upp-setningu eldflaugavarnar-
skjaldar í Póllandi sem ógn við
öryggi landsins.
»Þeir telja sig nú hafa feng-ið þann ótta staðfestan eft-
ir að repúblikanar á Banda-
ríkjaþingi notuðu átökin í
Georgíu í röksemdafærslu
sinni fyrir fjármögnun á upp-
setningu skjaldarins.
»Rússar eru einnig andvígirinngöngu Georgíu og
Úkraínu í NATO.
»Það vakti því athygli þeg-ar Viktor Jústsjenko, for-
seti Úkraínu, notaði tækifærið
á sunnudag, þegar sautján ár
voru liðin frá sjálfstæðinu frá
Sovétríkjunum, til að lýsa yfir
samstöðu með Georgíustjórn.
Rússar viðurkenna sjálfstæði Georgíuhéraðanna Suður-Ossetíu og Abkasíu
Áhrifin af átökunum í Georgíu komin fram í samvinnu Rússa og Bandaríkjanna
16 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
BRETLAND verður fjölmennasta
ríki Evrópu utan Rússlands fyrir ár-
ið 2060 vegna mikilla búferlaflutn-
inga til landsins og fjölgunar barns-
fæðinga, samkvæmt nýrri spá
hagstofu Evrópusambandsins.
Stofnunin spáir því að íbúum
Bretlands fjölgi úr 61 milljón í 77
milljónir á næstu 50 árum. Gert er
ráð fyrir því að íbúum Þýskalands
fækki úr 82 milljónum í 71 milljón
fyrir árið 2060.
Frakkar verða þá einnig orðnir
fjölmennari en Þjóðverjar. Gert er
ráð fyrir því að Frakkland verði
næstfjölmennasta ríkið utan Rúss-
lands, með 72 milljónir íbúa.
Stofnunin spáir einnig því að
dauðsföll verði fleiri en barnsfæðing-
ar í mörgum landanna eftir árið 2015
og hlutfall íbúa 65 ára og eldri nær
tvöfaldist og verði um 30% af heild-
aríbúatölu Evrópulandanna árið
2060. bogi@mbl.is
Verða fleiri
en Þjóðverjar
LÖGREGLAN í Toronto í Kanada
hefur handtekið einn af afkasta-
mestu hjólhestaþjófum heims eft-
ir að hafa fundið nær 3.000 reið-
hjól sem hann er talinn hafa
stolið.
Maðurinn er eigandi verslunar
sem selur notuð reiðhjól og var
handtekinn eftir að lögreglan tók
eftir því að reiðhjólaþjófnuðum
hafði stórfjölgað í borginni. Óein-
kennisklæddir lögreglumenn
komu nokkrum hjólum fyrir við
götur borgarinnar til að fylgjast
með því hver stæli þeim. Kaup-
maðurinn var þá staðinn að verki.
Lögreglan fann síðan 2.865
stolin reiðhjól í versluninni. Stolin
hjól fundust einnig í íbúðarhúsi
hans og nokkrum bílskúrum sem
hann hafði tekið á leigu.
Um 15.000 hjólreiðamenn hafa
farið í reiðhjólageymslur lögregl-
unnar í von um að finna stolin
hjól sín. bogi@mbl.is
Stal 3.000
reiðhjólum
ekki hægt að bera þau mál saman við Georgíu-
héruðin, enda væri mjög ólíku saman að jafna.
Tatarintsev ítrekaði jafnframt andstöðu Rússa
við inngöngu Georgíu og Úkraínu í Atlantshafs-
bandalagið, NATO, með þeim orðum að Georgíu-
menn ættu ekki erindi í bandalagið. Eftir nokk-
FROSTHÖRKURNAR í samskiptum Rússa og
Vesturveldanna vegna átakanna í Georgíu munu
ganga yfir á næstu mánuðum og samvinnan senn
fara í sama horf, að sögn Victors I. Tatarintsevs,
sendiherra Rússlands á Íslandi, sem kynnti sjón-
armið Rússlandsstjórnar á blaðamannafundi
sendiráðsins í Reykjavík í gær.
Fyrir fundinn fór sendiherrann yfir stöðuna
með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanrík-
isráðherra og hvernig málið horfði við Rússum.
Inntur eftir því hvort átökin hefðu spillt fyrir
samvinnu Rússa við Vesturveldin sagði Tat-
arintsev svo vera, hún væri í raun í biðstöðu.
Rússlandsher yrði eins lengi og þörf krefði í
Georgíu til að vernda öryggi óbreyttra borgara í
Suður-Ossetíu og Abkasíu. Georgíustjórn hefði
framið stríðsglæpi og rússneskir friðargæslulið-
ar látið lífið þegar þeir reyndu að verja konur,
börn og gamalmenni fyrir árásum Georgíuhers.
Spurður hvort Rússar hygðust styðja sjálf-
stæði Tétsníu og Kosovo í kjölfar yfirlýsingar
Medvedevs forseta í gær sagði sendiherrann
ur ár myndu Vesturveldin líta atburðina í
Georgíu öðrum augum og sagan sýna fram á að
Rússar hefðu brugðist rétt við með inngripi sínu.
Hann fordæmdi jafnframt Míkhaíl Saakashvili
Georgíuforseta, ákvörðun forsetans um að efna
til átaka hefði verið dómgreindarlaus og kallað á
skjót viðbrögð Rússlandshers, sem hefði af sið-
ferðislegum ástæðum orðið að koma íbúum Suð-
ur-Ossetíu og Abkasíu til hjálpar. Ólíklegt væri
að Saakashvili hefði tekið sömu ákvörðun hefði
hann ekki treyst á stuðning Bandaríkjastjórnar.
Aðspurður hvað Rússar ættu við þegar þeir
færu nú fram á endurskoðun samvinnu sinnar
við NATO sagði sendiherrann að í slíkum sam-
skiptum dygði ekki að hafa aðeins eigin hags-
muni í huga í samvinnunni við hinn aðilann.
Þau orð Giga Bokeria, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Georgíu, að stuðningsyfirlýsing
Medvedevs jafngilti innlimun héraðanna í Rúss-
land væru einkar óviðeigandi, enda um sjálfstæð
héruð að ræða sem reyndu að vernda eigin
þegna.
Samskiptin senn í fyrra horf
Morgunblaðið/hag
Á fundinum Tatarintsev, sendiherra Rússlands.
„LOKSINS hefur draumurinn ræst. Takk fyrir Rússland,“ sagði ónafn-
greind kona með tárin í augunum í samtali við rússneska sjónvarpsstöð,
er hún fagnaði viðurkenningu Rússa á sjálfstæði Abkasíu í Sukhumi,
höfuðborg héraðsins, í gær. „Tilfinningarnar hellast yfir mig,“ sagði
kennarinn Anina Kondrash, þar sem hún tók þátt í fögnuðinum.
„Georgíumenn skildu ekki vandamál okkar. Þeir skildu ekki Abkasíu-
menn.“
Gífurlegur fögnuður braust einnig út í Tskhinvali, höfuðborg Suður-
Ossetíu, hleypt var af hríðskotabyssum og lá lyktin af byssupúðri víða í
loftinu þar sem fáni héraðsins blakti við hún.
AP
Fögnuður Kona veifar fána Rússlands og fána aðskilnaðarsinna í Suður-Ossetíu í Tskhinvali í gær til að fagna viðurkenningu Rússa á sjálfstæði héraðsins.
„Loksins hefur draumurinn ræst“