Morgunblaðið - 27.08.2008, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sigurður Sig-urðsson fæddist
í Reykjavík 7. des-
ember 1924. Hann
lést á hjartadeild
Landspítalans við
Hringbraut 16.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Sigurður
Þorsteinsson frá
Brúarhrauni, f. 5.
september 1888, d.
1. nóvember 1966,
og og Sveinbjörg
Halldóra Sumarlilja
Marteinsdóttir frá Traðarkoti í
Reykjavík, f. 12. maí 1894, d. 15.
júlí 1963. Systkini Sigurðar er
Ólafur Þorsteinsson, látinn,
kvæntur Sigríði Davíðsdóttur,
Jarl, kvæntur Kristínu Magneu
Bjarnadóttur, Marteinn Ágúst, lát-
inn, kvæntur Þuríði Indriðadóttur,
María, gift Konráði Ólafssyni
Kristinssyni, Lilja Árna, gift Sig-
urði Hákoni Kristjánssyni og Þor-
steinn, kvæntur Erlu Hermínu
Þorsteinsdóttur. Hálfsystkin
arsdóttir, f. 23. maí 1968, Kristinn
Þór, f. 9. júlí 1972, Erlendur Guð-
laugur, f. 14. júní 1976. 3) Fríður,
f. 21. ágúst 1953, gift Ara Guð-
mundssyni, börn þeirra eru Guð-
mundur, f. 2 ágúst 1984, Sigurður,
f. 24. september 1985, og Kristján,
f. 19. október 1987. Barnabörnin
eru níu.
Sigurður dvaldi fyrri hluta ung-
lingsáranna á Hólum í Ölfusi, en
sá staður var honum ávallt mjög
kær. 17 ára fluttist hann til
Reykjavíkur þar sem hann vann
ýmis störf, áður en hann réð sig
hjá Hörpu. Þar vann hann í nokk-
ur ár, en svo keypti hann sér vöru-
bíl og rak jarðvinnufyrirtæki í 13
ár. Þá lærði Sigurður matreiðslu
og var um skeið matsveinn á
Mánafossi, en þaðan lá leið hans í
Litaver og svo í Heklu, þar sem
hann var sem sölumaður í nokkur
ár. Síðustu 17 starfsárin vann Sig-
urður sem matsvein í hvalstöðinni,
en árin hjá Hval hf. var mjög
ánægjulegur tími í lífi Sigurðar.
Hann var mikill náttúru- og útilífs-
maður og síðast en ekki síst stang-
veiðimaður af lífi og sál.
Útför Sigurðar verður gerð frá
Vídalínskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
yngri, samfeðra, eru
Hilmar Haukur, lát-
inn, kvæntur Jenný
Maggý Ásgeirs-
dóttur, Gylfi, kvænt-
ur Hrafnhildi Guð-
mundsdóttur og
Kristín Guðrún, gift
Friðriki Júlíusi Jóns-
syni.
Sigurður kvæntist
6. október 1945 Olgu
Gísladóttur, f. í Staf-
angri í Noregi 25. júlí
1923, d. í Reykjavík
1. janúar 2007. For-
eldrar hennar voru hjónin Gísli
Pétur Jóhannesson, f. 2. ágúst
1877, d. 5. nóvember 1941, og
Fríður Tómasdóttir, f. 2. október
1884, d. 17. júní 1972. Börn Sig-
urðar og Olgu eru: 1) Erla Fríður,
f. 3 mars 1946, gift Ingvari Frið-
rikssyni, börn þeirra eru Sig-
urður, f. 7. október 1967, og Þór-
unn Sif, f. 24. júlí 1970. 2) Íris
Lilja, f. 2. maí 1949, d. 4. mars
2004, gift Guðmundi Kristinssyni,
börn þeirra eru Olga Gunn-
Elsku pabbi minn. Nú þegar bar-
áttu þinni er lokið hér á jörðu er ég
viss um að þú tekur gleði þína á ný,
og aftur verði þið saman, þú og
mamma. Samt hugsa ég ennþá á
hverjum degi, ég verð að heyra í
pabba og vita hvernig hann hefur
það.
Þegar litið er yfir langan veg er
margs að minnast og er mér minn-
isstæðast þegar ég var krakki að ég
vildi gera og vera eins og þú í öllu, t.d.
að drekka lýsi af stút, þó það væri
ekki það besta. Ég vildi líka kunna og
vita allt um bíla eins og þú og lærði ég
töluvert um það. Ég fékk líka bíla-
dellu eins og þú. Skemmtilegast var
að fá að sitja í vörubílnum með þér
þegar þú varst að vinna. Mér fannst
þú nú líka skemmtilegasti pabbinn og
vinkonur mínar öfunduðu mig af því
hvað þú gast gantast, en ekki síst
hvað þú varst kraftalegur og hafðir
stóra vöðva. Ég gleymi aldrei öllum
útilegunum og veiðiferðunum. Þar
varst þú í essinu þínu, t.d. þegar við
fórum á Þingvelli að veiða einu sinni
sem oftar og bókstaflega mokuðum
upp fiski. Það voru líka eftiminnileg-
ar útileguferðirnar, sem farnar voru
á gömlu amerísku bílunum og hoss-
ast um þessa hræðilegu vegi sem
voru í þá daga og bókstaflega eyði-
lögðu bílana sem biluðu oft og þú
gerðir við þá hvar og hvenær sem var
á þessum ferðum, svo ekki sé talað
um hversu oft sprakk á dekkjunum,
bætt og límt mörgum sinnum, jafnvel
á mjög stuttum kafla. Þegar ég hugsa
til baka finnst mér ótrúlegt hversu
óþreytandi þú varst í þessum bílavið-
gerðum. Það væri hægt að telja
miklu meira, en það tölum við um
seinna. Þú varst mér alltaf góður og
vildir allt fyrir mig gera, en auðvitað
voru ekki allir dagar sunnudagar í
okkar samskiptum, en upp úr stend-
ur, að við höfum innst inni alltaf skilið
hvort annað, það veist þú jafn vel og
ég. Það sem mér þykir sárast er hvað
líkamlegri heilsu þinn hrakaði alltof
snemma. Þú sem ætlaðir að nota tím-
ann til veiða þegar þú hættir að
vinna. Það var erfitt að sjá þig þjást á
hverjum degi af verkjum sem ekkert
var hægt að gera við. Núna ertu kom-
inn til mömmu sem fór frá okkur fyr-
ir rúmu einu og hálfu ári.
Aldrei fellur á þig ryk
fyrir innri sjónum mínum.
Átt hef ég sælust augnablik
í örmunum sterku þínum.
(Þura í Garði.)
Ég kveð og þakka þér fyrir allt.
Guð veri með þér. Þín dóttir
Fríður.
Hann Sigurður tengdafaðir minn
er látinn. Kynni okkar hófust þegar
ég og elsta dóttir hans Erla Fríður
urðum par fyrir rúmum 42 árum.
Mér var mjög vel tekið þegar ég kom
í Heiðargerðið til Sigurðar og Olgu
og flutti til þeirra þegar ég var á síð-
asta ári í Stýrimannaskólanum þar
sem ég bjó í eitt og hálft ár. Við Siggi,
eins og hann var ávallt kallaður, urð-
um góðir mátar og naut ég hans vin-
áttu og hjálpsemi alla tíð. Hann var
alltaf tilbúinn að koma og rétta fram
hönd til að greiða úr vandamálum eða
til að vinna verk og upp í hugann
kemur sumarið 1970 þegar við Erla
eignuðumst okkar fyrstu íbúð. Ég
var þá bundinn á sjónum, en hann og
Erla sem þá var ófrísk og langt kom-
in á leið, voru saman við að slípa nið-
ur veggi til að hægt væri að mála og
flytja inn. Hann var ætíð afar áhuga-
samur þegar dæturnar og makar
þeirra stóðu í framkvæmdum og þá
var hann ætíð mættur til þess að vera
með og hjálpa til.
Siggi vann ýmis störf á lífsleiðinni
bæði sem sölumaður í Litaver og
Heklu ásamt því að reka og keyra
eigin vörubíl, en síðustu sautján árin
eða til ársins 1996 vann hann sem
matsveinn hjá Hval hf í Hvalstöðinni.
Þar átti hann mjög góð ár og undi sér
vel með góðu samstarfsfólki og
vinnuveitendum. Seinni árin í Hval-
firðinum byggði hann sumarbústað í
Svínadalnum, sem veitti honum
mikla gleði og þar áttum við margar
góðar stundir með honum og Olgu.
Ekki má heldur gleyma þeim fjöl-
mörgu stundum sem við áttum í
bragganum í Hvalstöðinni.
Eins og hjá mörgum sem unnið
hafa erfiðisvinnu, var líkaminn farinn
að gefa eftir og valda honum þján-
ingum sem erfitt var að ráða bót á, þó
margt hafi verið gert til að hjálpa
honum. Eftir að Olga dó, fyrir rúmu
einu og hálfu ári, tók að halla undan
hjá honum og oft á tíðum átti hann
erfiða daga þrátt fyrir mjög góða
umönnun hjá Heilsugæslunni í
Garðabæ.
Um leið og ég kveð þig, kæri vinur,
og þakka þér fyrir vináttuna bið ég
góðan Guð að vera með ástvinum þín-
um um ókomin ár. Blessuð sé minn-
ing Sigurðar Sigurðssonar.
Ingvar Friðriksson.
Kæri afi. Það er erfitt að hugsa til
þess að þú sért farinn. Jafnvel þó ég
viti að þú sért núna á betri stað. Þú
áttir erfiða tíma undanfarin ár en
reyndir þó að sýna þínar bestu hliðar.
Þú varst ljúfur, skemmtilegur og
reyndir allt þitt besta til að vera góð-
ur við þá sem þér þótti vænt um.
Rís upp, mín sál, að nýju nú,
nýja lofgjörð byrja þú,
því nú er nýtt ár runnið
með nýfætt ljós,
sem ljúfust rós,
þótt ljósið hitt sé brunnið.
(Matthías Jochumsson.)
Með þessum orðum kveð ég góðan
mann.
Guðmundur Ari.
Ég ætla í fáum orðum að minnast
afa míns, en orð verða fátækleg þeg-
ar ég minnst þess sem afi var mér.
Þetta eru minningar um þolinmóðan
afa sem alltaf hafði tíma til þess að
hafa ofan af fyrir okkur barnabörn-
um og barnabarnabörnum sínum. Af-
inn sem kenndi mér ungum að veiða
og gaf mér eitt af mínum kærustu
áhugamálum, stangveiði.
Ég fékk að búa hjá ömmu og afa á
meðan ég var í Háskólanum, þar sem
ég fékk tækifæri til þess að kynnast
þeim báðum betur og var dekraður í
bak og fyrir af þeim báðum. Afi var
að vinna í miðri viku í Hvalfirðinum á
þessum tíma og á meðan hann var
þar lánaði hann mér bílinn sinn, sem
var brúnn stationbíll, en þessi jálkur
sem kom mér til og frá Maríu í til-
hugalífinu og gekk undir nafninu
„brownie“. Afi var alltaf að hugsa um
aðra og til eru margar sögur af hon-
um í veiðiferðum þar sem hann setti í
fiska og rétti svo mönnum stöngina
og lét þá draga fiskinn svo þeir færu
nú ekki heim með öngulinn í rass-
inum. Hjálpsemi hans og umhyggju-
semi átti síður en svo bara við um
veiði því á meðan hann hafði heilsu
var hann alltaf mættur þegar honum
nákomnir stóðu í framkvæmdum til
þess að hjálpa til. Að morgni laug-
ardags 16. ágúst sat ég hjá afa á
Hjartadeild Landspítalans, en ég
hafði ætlað að vera í veiði með vinum
mínum þennan morgun. Það lýsir afa
kannski best að hann var órólegur yf-
ir því að ég sæti hjá honum í staðinn
fyrir að vera að veiða, en ég verð allt-
af þakklátur fyrir þessa morgun-
stund sem við áttum saman og spjöll-
uðum um veiði á milli þess sem hann
dottaði eftir svefnlitla nótt.
Með þessum orðum kveð ég Sigga
afa, en umfram allt góðan vin með
þakklæti og hinstu kveðju frá okkur
Maríu, Erlu Maríu og Guðborgu
Nönnu. Guð geymi þig.
Sigurður Ingvarsson.
Elsku afi minn. Alltaf er erfitt að
kveðja ástvin en þú ert kannski ekki
farinn neitt heldur verður þú alltaf í
hjörtum okkar og minningarnar í
huga okkar. Heimili þitt var alltaf
tilbúið fyrir gesti og það var alltaf
eitthvað til, hvort sem það var kaffi,
nammi eða „Sælan“ sem allir unnu
svo mikið og alla langaði alltaf í. Ég
man eftir öllum ferðum sem farið var
í, hvort sem það var farið í sumarbú-
staðinn eða að veiða. Ef einhver fór í
fýlu þá stóð hún ekki lengi, svo var
þínum bröndurum og fíflagangi fyrir
að þakka. Ég man eftir seinustu ferð-
inni þegar við fórum úr bústaðnum
okkar í smáveiði – okkur gekk ekkert
of vel. Við festum önglana og misst-
um þá en þú gerðir bara grín að því
og vildir synda út í og ná í þá en sem
betur fer var það bara fíflagangur í
þér eins og vanalega.
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.
Við erum gestir og hótel okkar er jörðin.
Einir fara og aðrir koma í dag,
því alltaf bætast nýir hópar í skörðin.
(Tómas Guðmundsson.)
Nú kveð ég þig, afi minn, í hinsta
sinn.
Kristján.
Sigurður Sigurðsson
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
MARINÓ JÓNSSON,
Brekkustíg 3,
Bakkafirði,
lést sunnudaginn 24. ágúst á Landspítalanum við
Hringbraut.
Útförin auglýst síðar.
Ólöf Kristín Arnmundsdóttir,
Kristófer Marinósson, Bjargey Einarsdóttir,
Jón Höjgaard Marinósson, Bjarnheiður Jónsdóttir,
Sigurður Marinósson,
Aðalbjörg María Marinósdóttir,
Arnmundur Marinósson,
Inga Lóa Marinósdóttir
og barnabörn.
✝
Elsku eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og dóttir,
STEINUNN BRYNJÚLFSDÓTTIR
lífeindafræðingur,
Hegranesi 28,
Garðabæ,
sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans
þriðjudaginn 19. ágúst, verður jarðsungin frá
Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 29. ágúst
kl. 13.00.
Halldór Guðbjarnason,
Lilja Dóra Halldórsdóttir, Jónas Fr. Jónsson,
Elín Dóra Halldórsdóttir, Atli Knútsson,
Brynjúlfur Jónatansson,
Brynjúlfur Jónatansson, Lilja Þorleifsdóttir,
Steinunn Dóra, Jónas Rafnar, Halldór Andri og Valur Björn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
RAGNHEIÐUR HAFSTEINSDÓTTIR,
Reykholti,
Skagaströnd,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi
þriðjudaginn 26. ágúst.
Jarðsungið verður frá Hólaneskirkju laugardaginn
30. ágúst kl. 14.00.
Stefán Jósefsson, Sigríður Gestsdóttir,
Rúnar Jósefsson, Súsanna Þórhallsdóttir,
Jón Jósefsson, Ásta Helgadóttir,
Líney Jósefsdóttir, Sveinn Ingi Grímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRDÍS LOFTSDÓTTIR,
Odda,
lést á Heilbrigðisstofnuninni Hólmavík laugardag-
inn 23. ágúst.
Útförin fer fram frá Hólmavíkurkirkju laugardaginn
30. ágúst kl. 14.00.
Jarðsett verður í Kaldrananeskirkjugarði.
Erna Arngrímsdóttir,
Jón Arngrímsson, Þorsteinsína G. Gestsdóttir,
Jóhann Björn Arngrímsson, Sólveig Hildur Halldórsdóttir,
Ingimundur Arngrímsson, Þorbjörg Hulda Haraldsdóttir,
Guðjón Hjörtur Arngrímsson, Signý Hermannsdóttir,
Helga Lovísa Arngrímsdóttir, Haraldur Vignir Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og
vinur,
ÓLAFUR Þ. HAFBERG
fyrrverandi bifreiðastjóri,
Þjóðólfsvegi 14,
Bolungarvík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 14. ágúst.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þórarinn Hafberg, Ásthildur Halldórsdóttir,
Sigrún Ólafsdóttir,
Ingibjörg Þ. Hafberg, Leifur E. N. Karlsson,
Engilbert Þ. Hafberg, Auður Sæland,
Sigurður Þ. Hafberg, Janina Hafberg,
Krystyna Brzeziak
og barnabörn.