Morgunblaðið - 27.08.2008, Side 36
36 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
• Við bjóðum Ólympíufarana velkomna heim
• Við óskum silfurliðinu til hamingju
• Við tökum þátt í fögnuði þjóðarinnar
-og frestum skólasetningu um sólarhring!
• Skólasetning fimmtudaginn 28. ágúst kl. 18- kemur þér við
Sérblað um heilsu
fylgir blaðinu í dag
!
"
# $
"
%&
'(
#
) *
++
, "
-
" # - -
!
"-
-
-
!
-
+
# .
# /
+
-
(& 01
*
!"#$%##
"& '(%# ") %* + ,- "&
'%# "./ 0&#$%.1%
Fasteignasalar leggja
til makaskipti
Nálastungur draga úr
löngun í vímuefni
Golfferðir hafa ekki
selst eins grimmt
í áraraðir
Íslensk hljómsveit með
Sirkus Agora
Buff stjórnar laga-
valinu í Singing Bee
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
MÉR leið eins og ég væri að labba
inn í stofuna hennar Bjarkar til að
vera viðstaddur skírnarveislu þegar
ég labbaði inn kirkjuskipið í Lang-
holtskirkju. Það var stilla og helgi í
lofti, samfara eftirvæntingu og gleði.
Björk ákvað að ljúka eins og hálfs
árs tónleikaferðalagi, ekki með flug-
eldasýningu og uppsprengdri
dramatík, heldur með innilegum og
heimilislegum hætti. Skemmst er frá
að segja að þessi hugmynd, sem
kviknaði víst fyrir fáeinum dögum,
skilaði tilætluðum árangri og útkom-
an sérdeilis vel heppnaðir tónleikar.
Wonderbrass-sveitin var ein á
sviði í upphafi og lék upphafsstefið
úr Selmasongs. Björk kom svo inn á
svið og hóf, hálffeimnislega, að
syngja lagið „Pneumonia“ af Volta.
Það var sumpart tregi yfir, enda tón-
leikarnir þeir hinstu sem Björk vinn-
ur með núverandi teymi sínu. Sú
stemning flaut yfir í næsta lag, „Um
akkeri“, hinn magnaða óð hennar til
heimalandsins.
Blásturssveitin vék nú til hliðar og
inn kom Jónas Sen. Settist hann við
hábyggt kirkjuorgelið og hóf að
leika afar víraða – og stórskemmti-
lega – útgáfu af „Cover Me“ undir
söng Bjarkar. Þvínæst vippaði hann
sér yfir á sembal og við tók „My
Juvenile“. Í þessum lögum var að
finna gáska bæði og leikgleði og
þetta fína einstigi á milli fallegrar
andaktar og græskulauss flipps
(eins og maður finnur fyrir þegar
maður er að vinna síðasta vinnudag-
inn sinn) gerði þessa tónleika.
Schola Cantorum söng með í
„Vökuró“ sem var viss hápunktur,
flutningurinn hrífandi fallegur.
Mark Bell sá svo um áhrifshljóð og
takta í „Mouths Cradle“ og kórinn
tók undir. Virkilega flott og gerði
lagið jafnvel enn undurfurðulegra en
það er. Það var nákvæmlega þessi
útgangspunktur sem gerði tón-
leikana svo svalandi. Lögin voru tog-
uð og teygð, þeim ýtt út á nýjar
brautir og með því var auðvitað eðli
listamannsins undirstrikað. Nýsköp-
un, tilraunir, mætti ég segja listrænt
hugrekki er máttur og megin Bjark-
ar.
Öll hersingin, þ.e. Björk, Bell,
Jónas, Wonderbrass og kór, renndi
sér svo í „Oceania“ og var flutning-
urinn stór og dramatískur. Sami
hópur tókst síðan á við „Who Is It
(Carry My Joy on the Left, Carry
My Pain on the Right)“ eins og það
heitir víst fullu nafni. „Helv. flott“
punktaði yðar einlægur niður hjá sér
í Árvakursblokkina.
Tónleikunum var lokið en einn ás
var ennþá uppi í erminni. Í upp-
klappinu sagði Björk frá því að nú
ætlaði hún að flytja lag sem hún
hefði ekki flutt í átta, tíu ár. Wonder-
brass tók sér stöðu og smellurinn
„It’s Oh So Quiet“ var fluttur með
stórkostlegum bravúr. Björk fór á
miklum kostum í söngnum og þetta
óvænta innslag hreinasta snilld.
Mér var undarlega innanbrjósts
að tónleikum loknum. Ég var ekki
búinn á því tilfinningalega eins og
gjarnt er með viðlíka snillinga; ég
var ekki heldur ör og æstur. Ég var
einfaldlega sáttur, og það mjög. Ró-
legur bæði og sæll og fannst eins og
ég hefði tekið þátt í að búa til inni-
lega og vel heppnaða stund – í stof-
unni hennar Bjarkar.
Hvað næst, hlýtur maður að
spyrja? Eitthvað magnað, í öllu falli.
Þessi einstaki listamaður hreinlega
getur ekki gert neitt rangt eins og
enskir segja, ástand sem hefur varað
frá upphafi ferils. Ótrúlegt.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Svo hljótt Í uppklappinu tók Wonderbrass sér stöðu „og smellurinn „It’s Oh So Quiet“ var fluttur með stórkostleg-
um bravúr. Björk fór á miklum kostum í söngnum og þetta óvænta innslag hreinasta snilld.“
„Hér á ég heima …“
Arnar Eggert Thoroddsen
TÓNLIST
Langholtskirkja
Lokatónleikar sautján mánaða tónleika-
ferðalags Bjarkar Guðmundsdóttur um
heiminn vegnaVolta. Ásamt söngkonunni
komu fram Jónas Sen, Mark Bell, Wond-
erbrass og Schola Cantorum. Þriðjudag-
urinn 26. ágúst.
Björk
bbbbb