Morgunblaðið - 27.08.2008, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 43
Karlakórinn Fóstbræður vill bæta við sig söngmönnum í allar raddir fyrir næsta starfsár
(2008-2009) sem hefst 1. september nk. Þú þarft að hafa góða söngrödd og tónheyrn.
Byrjendur fá þjálfun í raddbeitingu, samhljómi og að lesa/styðjast við nótur.
Nánari upplýsingar veitir formaður Fóstbræðra Smári S. Sigurðsson í síma 8633247,
netfang nsn@internet.is
Fóstbræður er ein elsta tónlistarstofnun landsins og hefur starfað óslitið í hart nær hundrað ár. Kórinn hefur frá upphafi flutt
metnaðarfull verkefni og sem dæmi komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í viðamiklum verkefnum. Fóstbræður hafa frumflutt
ýmis stærri verk fyrir karlakóra og líka slegið á létta strengi t.d. sungið með Stuðmönnum og á sínum tíma voru 14 Fóstbræður mjög
vinsælir. Fóstbræður hafa unnið til verðlauna í erlendum söngkeppnum og síðast hlaut kórinn gullverðlaun á tónlistarhátíð Musica
Sacra í Pag. Í júlí sl. sungu Fóstbræður á sumarlistahátíð í Vilnius með hinni þekktu Christophers Chamber Orchestra við góðar
undirtektir. Kórinn fer reglulega í söngferðir innanlands sem utan.
Þá er hér tækifæri sem þú ættir að hugleiða.
Langar þig til að syngja í karlakór
sem hefur mikinn metnað?
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
„BÖRN lenda í svo mörgu sem full-
orðna fólkinu finnst erfitt að tala
um. Þessi hugmynd er búin að vera
með mér lengi því í sveitinni þar
sem ég er fæddur og alinn og upp, í
Reykholtsdal í Borgarfirði, var
svolítið um það að börn væru send
þangað í skóla, börn sem gátu ekki
búið heima hjá sér og voru send í
fóstur. Og fyrir svona sveitastráka
eins og mig, sem alltaf hafa haft
það gott, voru þessar sögur þess-
ara nýju félaga manns með ólík-
indum, maður náði ekki utan um
þær fyrr en mörgum árum seinna,“
segir Guðmundur Ingi Þorvaldsson
um barnaplötuna Sagan af Eyfa,
sem er að vísu sögð bönnuð börn-
um.
„Á köflum er verið að fara svo-
litlum silkihönskum um barnaefni
nú til dags, börn hafa gaman af því
sem er bannað börnum, eitthvað
sem er ögrandi og spennandi.“
Guðmundur Ingi telur þó plötuna
höfða jafnt til foreldranna líka.
„Bæði börn og foreldrar, sem ég
hef látið hlusta á plötuna, urðu
mjög sátt, ég er að vona að það hafi
tekist að hafa tvöfaldan boðskap,
börnin skilja það sem þau eiga að
skilja og foreldrarnir það sem þau
eiga að skilja.“
Hér er heldur ekki fylgt þeim
leiða sið sums barnaefnis að ein-
falda allan orðaforða þannig að allt
verði auðskilið. „Ég sé enga
ástæðu til þess, ég hef svo gaman
af börnum sem spyrja spurninga.
Ég veit alveg að börn sem heyra
þetta og skilja ekki allt, þau bara
spyrja. Og það er þá lagt svolítið í
hendurnar á foreldrunum hvort
þeir vilji útskýra þetta.“
Ungur stórsöngvari
Ég skil ekki neitt, er víst ekki
nógu stór
en mömmu þykir svo leitt að hún
drýgði hór
Gerði ég þér eitthvað pabbi?
DNA? Hvað er það?
Ég veit ekki, ég skil ekki.
Þessar línur syngur Árni Bein-
teinn Árnason sem leikur og syng-
ur hlutverk Eyfa og það leynist
engum sem hlustar að þarna er
hörkusöngvari á ferð. „Við lékum
saman í Annie í Austurbæ. Hann
var ekkert að syngja þar en ég var
einhvern tímann að segja mömmu
hans frá því að mig vantaði strák til
að syngja og þá sagði hún; „Talaðu
við Árna Beintein. Af öllu því sem
hann gerir þá syngur hann best.“
Svo hittumst við bara með gítarinn
og spiluðum aðeins og hann var
bara ráðinn á staðnum, það var
ekkert flóknara en það,“ segir höf-
undurinn um söngvarann sem nú
er þrettán ára en var ellefu þegar
þeir byrjuðu.
Guðmundur Ingi segir það
venjulega ekki vera börnin sem eru
til vandræða, hins vegar glími
mörg þeirra við foreldravandamál.
En það er lán Eyfa að komast í
sveitina til afa. Þar eru líka ömmur
sem syngja mergjaðar þulur.
Um börn sitja myrkraöfl, stela
vilja hjörtum,
vittu að þeirra eina vörn býr í
brosum björtum
„Þessi þula sprettur frá minni
dásamlegu reynslu úr sveitinni af
gömlum konum sem voru uppfullar
af fróðleik um lífið og tilveruna,“
segir Guðmundur Ingi sem segist
sveitamaður í húð og hár. „Ef ég
gæti starfað við það sem ég starfa
annars staðar en í Reykjavík
myndi ég gera það,“ segir Guð-
mundur Ingi og fer svo með langa
romsu um landafræði Reykholts-
dals: „Þar bjó langamma mín í
næsta húsi, afabróðir minn á móti
mér, svo amma og afi, svo bróðir
hans pabba, mamma og pabbi efst,
móðurbróðir minn þarna aðeins
neðar og móðursystir mín og hin
amma og afi sjö kílómetra í burtu.
Ég fór bara á hesti á milli ef mér
leiddist öðrum megin.“
Rosalega þakklátur
fyrir uppeldið
Nábýlið segir hann hafa verið
forréttindi. „Sveitastörf eru þannig
að börn geta snemma farið að
hjálpa til, þannig að maður fær svo
mikinn tíma með fullorðna fólkinu,
maður er alltaf með í öllu. Það sem
er að í þjóðfélaginu núna er að
börn fá svo lítinn tíma með for-
eldrum sínum því foreldrarnir eru
svo rosalega uppteknir við að
vinna. Þannig að ég er rosalega
þakklátur fyrir mitt uppeldi.“
Platan er í raun leikrit út af fyrir
sig – en er verkið á leiðinni á svið?
„Ég myndi aldrei loka fyrir það en
eins og er þá er það alveg nóg fyrir
mig í bili að koma þessu á plötu.
Þegar ég var lítill þá var þetta mitt
leikhús, ég komst sjaldan í leikhús
en ég átti allar barnaplötur og þeg-
ar mamma mín fór með mig í fyrsta
skipti í leikhús á Dýrin í Hálsa-
skógi sat ég alveg gjörsamlega
stjarfur en þegar ég var kominn út
í bíl þá sagði ég; þetta var frábær
plata,“ segir Guðmundur Ingi og
heldur áfram að rifja upp: „Þetta
var mitt leikhús og ég elskaði
svona plötur eins og Hrekkjusvín
og Glám og Skrám, þar sem voru
myndir á umslögunum og maður
gat setið með umslagið og drukkn-
að í því.“ Þegar hann sá börn upp-
lifa það sama með Söguna af Eyfa
þá var hringnum lokað.
Hef gaman
af börnum
sem spyrja
Morgunblaðið/Ómar
Sanngjarnt uppeldi „Ef foreldrar koma börnum sínum skammlaust til manns þá eru foreldrar og börn kvitt. Það
finnst mér sanngjarnt,“ segir Guðmundur Ingi í inngangsorðum sögubókarinnar sem fylgir plötunni.
Guðmundur Ingi gefur út barnaplötu
bannaða börnum með stórsveit sinni
Samúel Jón Samúelsson Þórunn Lárusdóttir Bjarni Lárus Hall Selma Björnsdóttir Ólafur Darri Ólafsson Bubbi Morthens Árni Beinteinn Árnason Guðrún Ásmundsdóttir
www.sjofnhar.is