Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1999, Blaðsíða 28

Skinfaxi - 01.02.1999, Blaðsíða 28
Vanda Sigurgeirsdóttir Mikið misrétti Knattspyrnuþjálfarinn Vanda Sigurgeirsdóttir vakti meðal annars athygli ritstjóra Skinfaxa, Jóhanns Inga, á menntaþingi frjálsra félagasamtaka þegar hún flutti fyrirlestur um mismunandi áherslur sem lagðar eru á karla- og kvennaíþróttir. Fyrirlesturinn birtist hér í upprunalegri útgáfu Vanda Sigurgeirsdóttir heiti ég, knattspyrnuþjálfari og er hér komin til að tala um muninn á körlum og konum í hlutverki stjórnanda og leiðtoga. Þetta er reyndar ekki það sem mig langar að tala um, því eins og margir hér vita þá er ég ötul talskona jafnréttis í íþróttum og nota flest tækifæri til að ræða um þau mál. Þannig að það sem mig langar að tala um er eftirfarandi. Málið er það að við erum hér til að ræða um frítímann. Á þessu þingi verður m.a. rætt um mikilvægi fyrirmynda, að styrkja þurfi stöðu þeirra aðila sem bjóða upp á æskulýðs-, íþrótta- og félagsstarf og hvaða áhrif þátttaka í þessu starfi hefur á einstaklinginn. Þeir sem fylgst hafa með niðurstöðum rannsókna vita að heilbrigðar tómstundir hafa mikið forvarnargildi og stuðla að ánægju og vellíðan. Öll börn ættu því að hafa tækifæri til að leggja stund á þá tómstundaiðju sem þau hafa áhuga á. Og þannig er það oftast... í skátunum skiptir ekki máli hvort þú ert stelpa eða strákur, í æskulýðsstarfi kirkjunnar, tónlistarskólum og félags- miðstöðvum ekki heldur en í íþróttum skiptir það höfuðmáli, sérstaklega í boltagreinum. Þær stelpur sem stunda íþróttir: •Hafa betra sjálfstraust, jákvæðari sjálfs- mynd og meiri sjálfsvirðingu. Varðandi sjálfsvirðinguna er sterkari fylgni hjá íþróttastelpum en íþróttastrákum. Sjálfs- traustvandræði stúlkna er vel þekkt, þannig að íþróttirnar hjálpa þeim greinilega og vinna á móti þessari dæmigerðu kvenlegu hógværð. •Líður betur í skólanum, minni sálvefræn einkenni (kvíði, magapína, höfuðverkur). •Gengur betur í skóla, læra meira. •Halda lengur áfram í skóla (kannanir frá Bandaríkjunum) •Passa sig betur á að verða ekki óléttar á unga aldri (kannanir frá Bandaríkjunum). •Læra að vinna með öðrum, samvinna, liðsandi og umburðarlyndi. •Stuðla að sterkari beinum, hjarta, æðum og lungum, sem kemur sér vel á efri árum •Reykja minna, drekka minna og færri prófa ólögleg fíkniefni - því til viðbótar hafa kannanir leitt í Ijós að þær sem reykja ekki og drekka ekki prófa ekki fíkniefni! - Þannig að hér má greinilega sjá að íþróttirnar eru forvarnarstarf í sjálfu sér. Já þetta er eitthvað sem við hljótum að vilja fyrir börnin okkar, eða hvað? Samt er það þannig að samfélag okkar í dag leggur fullt af hindrunum sem vinna gegn því að stelpur stundi og haldist í íþróttum fram á fullorðinsár. Hindranirnar eru: •Hvatning mæðra, fjölskyldu og vina. •Hvatning hefur meiri áhrif á íþrótta- stelpuna en strákinn en þær fá samt minna af henni. Þetta er ein af ástæðunum fyrir miklu brottfalli af unglingsstúlkum úr íþróttum. Hvatning móður skiptir mestu máli. Fjölmiðlaumfjöllun: Fjölmiðlaumfjöllun er hlægilega, grátlega lítil og ekki í neinu samræmi við þátttöku. Umfjöllunin er 5% en þátttakan að meðaltali 36% (Viðar Halldórsson 1997). Umfjöllun hefur ekki aukist í takt við aukna þátttöku. Fjölmiðlar eru í lykilhlutverki varðandi það kynjaójafnvægi sem skapast hefur í íþróttum. Samkvæmt Gallupkönnun frá '95 sögðu 71% af þeim sem tóku afstöðu að kvennaíþróttir fengju of litla umfjöllun. Skortur á fyrirmyndum: Vegna lítillar umfjöllunar vantar ungar stúlkur fyrirmyndir af eigin kyni. Fyrirmyndir eru gríðarlega mikilvægar og nú t.d. þegar reykingar í kvikmyndum hafa aukist verulega veitir okkur ekkert af að fá jákvæðar fyrirmyndir til að vinna á móti. Þjálfarar: Þjálfarar stúlkna eru oft verr launaðir en þjálfarar drengja. Oft þýðir það minni menntun og stundum einnig minni metnað. Þjálfarar skipta miklu máli, t.d. varðandi framhald á íþróttaiðkun, að halda þeim frá vímuefnanotkun o.fl. Aðstæður: Stelpur fá oft færri tíma/æfingar og færri leiki en strákarnir. Auk þess er minni metnaður innan margra félaga fyrir kvennaíþróttunum og sums staðar svo lítill að það er ekki einu sinni boðið upp á fþróttir fyrir stelpur. Peningar: Mun minni peningar fara í kvennaíþróttir en karla, minna hlutfallslega en hlutfall kvenna af heildarþátttöku. í Gallupkönnun frá '95 kom í Ijós að 88% þeirra sem tóku afstöðu fannst að eyða ætti jafnmiklum peningum í íþróttir fyrir konur og íþróttir fyrir karla. Það er mjög langt frá því að vera þannig í dag. Að loknu þessu þingi eru félagasamtök og opinberir aðilar hvattir til þess að endurmeta eigið starf í Ijósi þess sem fram hefur komið á menntaþingi. Mér finnst kominn tími til að ríki, sveitarfélög og fyrirtækin í landinu geri það og hætti að taka þátt í þessu óréttlæti. íþróttafélögum, sem eru rekin að stórum hluta af styrkjum hins opinbera og styrkjum fyrirtækja ber siðferðisleg skylda til að bjóða upp á jafna möguleika fyrir öll börn, óháð kyni. En ég ætla auðvitað ekki að tala um þetta, heldur muninn á körlum og konum í hlutverki stjórnanda og leiðtoga. Einu sinni var mikill munur. Þá stjórnuðu flestir karlar með skýrri verkstýringu þar sem allir fengu að vita nákvæmlega hvað þeir áttu að gera. Valdapýramídar voru ráðandi. Konum fannst þetta ekki sniðug aðferð. Núna, á tímum gæðastjórnunar, nýtingar mannauðs og símenntunar er gamla harðstjóraaðferðin úrelt. Karlar- og konur 28

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.