Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Blaðsíða 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Blaðsíða 36
Sjómannsdóttirin varö síðar forseti Alþingis. Alltaf sjóveikur og hræddur „Eftir að hann hætti á Surprise var hann um skeið á togaranum Narfa en síðan var hann í strandsiglingum hjá Ríkisskipum. Síð- ustu átta árin á sjó var hann á hafrannsóknar- skipinu Bjarna Sæmundssyni. Hann fór á það skip þegar það kom til landsins og fór ekki í land fyrr en sjötugur. Þegar við fórum yfir bréfin hans að honum látnum segir hann í einu bréfinu til fóstru sinnar að mömmu og mér, sem þá var nýfiedd, líði báðum vel. Hann segir að Rúna litla þrífist vel og bætir við: „Þá er allt í lagi því efnin koma seinna.“ En efnin komu nú aldrei. Hann var svolítið seinhepp- inn þessi elska. Hann hafði mjög gaman af því að kaupa happdrættismiða en vann bara einu sinni. Þá var hann á Esju og vinningur- inn reyndist vera - hringferð með Esju! En þó efnin yrðu aldrei mikil vorum við aldrei svöng, gengum hrein og heil og fengum öll að læra sem ekki var sjálfsagt þá. Honum tókst því það sem hann ætlaði sér að því leyti. En löngu eftir að hann kom í land sagði hann eitt sinn við mig: „Ég skal segja þér það Rúna mín, að allan tímann þessi 54 ár var ég sjóveikur og alltaf hræddur,“ -Kynntust þið eftir að hann var kominn í land? „Þetta var voðalega skrýtið. Pabbi kunni ekki að lifa í landi. Hann vaknaði klukkan fjögur á morgnana til að drekka kaffi og leggja kapal. Þegar hann kom í land var hann vel á sig kominn en fór fljótlega að finna til í fótun- um sem voru orðnir mjög slitnir. Hann var sæmdur heiðursmerki Sjómannadagsins og það gladdi hann mikið. Hann eyddi þessum síðustu árum í að snúast í kringum mömmu. Auðvitað vorum við að koma í sífelldar heim- sóknir en hans eina leið að barnabörnunum var að úða í þau ís og súkkulaði og gefá þeim peninga. Hann kunni ekkert á krakkana. Meðan hann var á sjónum var hann mjög hjálplegur heima fyrir þegar hann var í landi. Eitt fallegt sumarkvöld var hann að smala börnunum inn til að þvo þeim og hátta svo mamma gæti hvílt sig. Þá öskraði eitt barnið sýnu mest. Til þess var kannski full ástæða því það var alls ekki hans eigið barn sem hann var að rífa úr fötunum heldur strákur úr nágrenn- inu. Hann var hins vegar rauðhærður eins og einn bræðra minna og pabbi var bara ekki klár á þessu og reif kauða úr.“ -Mamma þín hefur varla haft tíma til að sinna mikið hverju barni fyrir sig þegar fjöld- inn var svona mikill. „Nei, nei. Enda var það frægt að mamma kunni tæplega að segja þú heldur sagði alltaf þið. Mér er mjög í minni þegar ég hringdi í móður mína 38 ára gömul og sagði henni að það gæti vel verið að það kæmi út bók eftir mig. Þá sagði hún þessa eftirminnilegu setningu: „Að þið skulið vera að þessu.“ Hún reyndi að stjórna þessu þannig að við krakkarnir áttum að vera stillt og prúð, standa okkur vel í skól- anum, vera hrein og skipta um föt þegar við kæmum heim. Allt þar fyrir utan sem truflaði þessa mynd var henni afskaplega illa við. Til dæmis átti hún alltaf mjög erfitt með að sætta sig við að ég væri í pólitík og kæmi fram í sjón- varpinu. Slíkt ylli bara umtali. Hún hefði miklu frekar viljað að ég hefði bara gifst vel. Gengið um í góðum kápum með góðan hatt og verið til friðs. En kannski var þetta hennar eina leið til að halda utan um þetta.“ Öryggisleysi þrælabarnanna -Fannstu til öfundar í garð jafnaldra sem áttu feður í landi og voru samvistum við þá? „Já, það gerði ég og sótti í ákveðið heimili þarna í götunni á Jófríðarstaðavegi. 1 húsinu 36 Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.