Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2000, Blaðsíða 56
Icedan ehf.
Nýir eigendur tóku við rekstri
lcedan ehf. í Hafnarfirði 21.
janúar s.l. Icedan ehf. er fyrir-
tæki sem annast sölu á útgerð-
arvöru, það er að segja veiðar-
færum, björgunarútbúnaði,
bindivélum og vinnufatnaði.
Icedan var stofnað árið 1992
og er staðsett að Óseyrarbraut
4 í Hafnarfirði í eigin 1200 fer-
metra húsnæði, starfsmenn eru
ellefu.
Helstu umboð sem lcedan
hefur er Selstad norska drag-
nótarmanillan, Thyboron troll-
hlerar, Net Systems hnútalaust
net, Viking bjargbátar og flot-
gallar, Gunnebo keðjur, patent-
lásar, gilskrókar og hífiútbúnað-
ur, Cyklop bindivélar og bindi-
borði, Tycsa trollvírar, snurpu-
vírar og vinnsluvírar, Salinas PE
trollnet, Cordex allar gerðir af
tógi og garni, Carl Backs
gúmmí hanskar, sjófatnaður og
vinnufatnaður, Santymar stál-
bobbingar, ásamt fjölda ann-
arra vörutegunda t.d. allar vör-
ur frá blue line blakkir og sig-
urnaglar, ankeri og ankeriskeðj-
ur, seiðaskiljur úr stáli og plasti,
trollkúlur frá Sæplasti, rock-
hoppergúmmí og milligúmmí
frá Póllandi, öryggisútbúnaður
t.d. hjálmar, slökkvitæki og ör-
yggistalíur.
Nýir eigendur eru Selstad
A/S í Noregi, ÚA, Pétur Stef-
ánsson ásamt Þorsteini
Benediktssyni sem jafnframt
verður framkvæmdarstjóri
lcedan ehf. Fráfarandi eigendur
eru Brdr. Markussens Metal-
varefabrik A/S í Danmörku og
Preben Nielsen.
Icedan ehf. er eigandi lced-
an Canada Inc. ásamt Ron
Coady sem einnig er fram-
kvæmdarstjóri lcedan Canada
Inc. Icedan Canada Inc. hefur
þjónustað þau skip sem
stunda veiðar á Flæmskahatt-
inum ásamt veiðarfærasölu á
heima markaði. Nú verður sú
breyting að lcedan Canada
Inc. mun hefja rekstur neta-
verkstæðis bæði með upp-
setningar og viðgerðir á veiðar-
færum fyrir heima markað, fyrir
er lcedan Canada með vel út-
búið víraverkstæði ásamt því
að hafa allan útbúnað til þess
að annast uppsetningu og við-
hald á rockhopperlengjum.
Fyrirtækið starfar í eigin 1200
fermetra húsnæði í St.John's á
Nýfundnalandi. Starfsmenn eru
fimm.
Icedan ehf. tók við rekstri
netagerðar ÚA frá og með 1.
janúar 2000. Hjá netagerð
lcedan starfa 12 manns. Neta-
gerðin annast uppsetningu á
fiskitrollum, rækjutrollum og
rockhopper lengjum ásamt allri
almennri viðgerðarvinnu á
veiðarfærum. Þá er netagerðin
með alhliða víraþjónustu og má
þar nefna 600 tonna vírapressu
bæði fyrir ál og stálhólka,
einnig hefur netagerðin yfir að
ráða víravindu þar sem hægt er
að spóla sverustu trollvírum í
einni lengd upp á tromlur.
í Hafnarfirði.
Hermann Guðmundsson
mun veita netagerðinni for-
stöðu sem og áður.
Selstad A/S rekur fimm neta-
verkstæði í Noregi ásamt einu í
Danmörku. Á netaverkstæðum
Selstad A/S eru allar tegundir
veiðarfæra framleidd t.d.
dragnætur, fiskitroll, rækjutroll,
loðnu og síldarnætur ásamt
flottrollum fyrir veiðar á loðnu,
síld, kolmunna og makríl. Sel-
stad A/S hefur á s.l. tveimur
árum selt 14 flottroll til íslands í
gegn um Netagerð Friðriks á
Neskaupstað. Nú mun lcedan
taka að sér sölu og viðhalds-
þjónustu á Selstad flottrollun-
um. Selstad A/S er framleið-
andi á norsku dragnótar manill-
unni sem íslenskir skipstjórar
þekkja vel sökum gæða. Einnig
framleiðir fyrirtækið allt tóg
sem notað er í flottrollin bæði
snúið og fléttað. ■
56
Sjómannablaðið Víkingur