Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Síða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Síða 14
Verkjall sjómanna Þórir Einarsson ríkissáttasemjari um kjaradeilu sjómanna og iítvegsmanna „Þetta er ótvírætt einhver erfiðasta deila sem ég hef komið að. Þetta er þriðja sjómannadeilan sem kemur til minna kasta og örugglega sú erfiðasta. Það hafa verið haldnir um eða yfir 70 fundir en það hefur ekki verið grund- völlur til þess að ég kæmi fram með til- lögu til lausnar deilunni,” sagði Þórir Einarsson ríkissáttasemjari í samtali við blaðið. „í sjómannadeilunni 1995 bar ég fram tillögu sem var raunar felld en svo var skrifað undir samninga nokkru síð- ar þar sem gerðar voru smávægilegar Ríkissáttasemjari með hjálparhellum sínum; Sesselja Matthíasdóttir, Þórir Einarsson og Elísabet S. Ólafsdóttir. breytingar á minni tillögu. Árið 1998 bar ég fram miðlunartillögu sem síðan var lögfest. En í þetta skipti hefur ekki verið gerlegt fyrir mig að koma með tillögu til lausnar deilunni.” Ríkissáttasemjari var spurður hvort honum þætti sem það andaði kaldar á milli viðsemjenda í sjómannadeilunni heldur en gengur og gerist í kjaradeilum almennt. Hann kvað svo ekki vera. Oft gengi á ýmsu um tíma þegar kjaradeilur væru annars vegar. ÞORSKVERÐ Á NORÐURLÖNDUM 2000 Uppboðs- Bein Verð mis- markaður sala munur ísland ÍKR/kg 145,14 ÍKR/kg 91,03 59,4% Færeyjar 172,23 - - Noregur 160,66 128,60 24,9% Danmörk 193,43 157,09 23,1% Heímildir: Fiskistofa, Noregs Ráfisklag, Fiskeridirektoratet i Dan- mark og Foroya Fiskimannafelag. Athugasemdir: Öll fiskverð eru í ís- lenskum krónum og er miðað við slægð- an fisk með haus. Við umreikning í ís- lenskar krónur er notað kaupgengi hlut- aðeigandi myntar á meðalgengi 2000. Tölur um verð á fiski i beinni sölu í Færeyjum liggja ekki fyrir, en sam- kvæmt yfirlýsingu Foroya Fiskimanna- felag er fiskverð á uppboðsmarkaði og í beinni sölu svipað. Ef notað er gengi erlendra mynta í ís- lenskum krónum þann 10. maí 2001, eykst verðmunur milli íslands og hinna landanna um 19%. Farmanna- og fiskimannasamband ís- lands hefur einnig tekið saman sam- bærilegar tölur fyrir árið 1999. Helsti munur á niðurstöðu milli áranna 1999 og 2000 er sá að verðmunur milli upp- boðsmarkaða og beinnar sölu hefur aukist á íslandi, en nánast staðið í stað á hinum Norðurlöndunum milli áranna 1999 og 2000. 14 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.