Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2001, Blaðsíða 4

Náttúrufræðingurinn - 2001, Blaðsíða 4
Rammaáætlun UM VIRKJUNARKOSTI Unnið hefur verið að „Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma“ síðustu tvö ár á vegum iðnaðarráðherra, í samráði við umhverfisráðherra og í samræmi við framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í umhverfismálum. Markmiðið með þessari vinnu er eins konar flokkun eða einkunna- gjöf fjölmargra virkjunarkosta með tilliti til virkjunar- og verndargildis. Flokkun af þessu tagi er talin geta auðveldað stjórn- völdum að taka ákvarðanir um forgangs- röðun virkjana og meðferð hugsanlegra virkjunarsvæða. Litið er til gildis náttúru- verndar og þjóðminja, útivistar og ferða- útvegs, hefðbundinna nytja og orkulinda. Gengið er til þessa verks vegna brýnna þarfa orkugeirans og umtalsverðrar hættu á umhverfisröskun af völdum virkjunar- framkvæmda og mannvirkja. í sjálfu sér hefði eins vel mátt nálgast það út frá hinum gildunum, eða sjónarmiðum landnýtingar almennt, t.d. innan ramma skipulags. Sú nálgun sem valin er, frá orkuöflunarhliðinni, veldur því að útkoman verður eins konar mat á röskun umhverfis og annarri land- nýtingu í samanburði við arð og hag af virkjun orkulindanna. Þar mun fylgja sumum kostunr mikill hagur og lítil röskun, öðrum lítill hagur og mikil röskun; enn aðrir liggja þar mitt á milli. Vinnu er svo háttað að fjölskipuð verkefnisstjórn fer með yfirstjórn undir forsæti Sveinbjarnar Björnssonar, fyrr- verandi háskólarektors og núverandi yfir- manns auðlindamála á Orkustofnun. Fjórir faghópar vinna að því að leggja mat á framangreind gildi, en til fróðleiks og gamans skal þess getið að í forsvari fyrir faghóp um náttúru- og minjavernd er Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor og fyrr- verandi formaður HIN, en auk hennar eru í hópnum núverandi formaður HÍN og Eyþór Einarsson, einnig fyrrverandi formaður HÍN. Nauðsynlegt þótti að leggja mikla vinnu í þróun matsaðferða, enda var þar á flestum sviðum verið að byrja nánast frá grunni, einkum í ljósi sérstakra náttúrufars- aðstæðna hér á landi. Þeirri vinnu hefur þó miðað vel og er nú stefnt að því að leggja fram mat á fyrstu virkjunarkostum um næstu áramót, þó svo að það verði einungis til bráðabirgða, en í lok ársins 2002 á að liggja fyrir fyrsta mat á um 25 kostum. Það er og verður til verulegra vandræða við matið að ekki liggur fyrir sæmilegt yfirlit um náttúru- far landsins, einkum hálendisins, en á þennan vanda hefur HÍN bent um áratuga skeið. Fyrstu niðurstöður rammaáætlunar munu ekki leysa allan vanda, hvorki varðandi ákvarðanir um vemdun eða virkjun né um forgangsröðun virkjunarkosta. Til þess skortir enn bæði gögn og forsendur sem og reynslu af svona mati og ákvarðanatöku á grundvelli þess. Úr því öllu má bæta í framhaldinu. Hins vegar munu niður- stöðurnar auðvelda lausn vandans til mikilla muna og því koma strax að miklu gagni, þó að eitthvað vanti á að þær verði fullkomnar. Með gerð rammaáætlunar er því ótvírætt stigið stórt framfaraskref. Ekki síst skiftir hér meginmáli sú framsýni stjórnvalda að taka á þennan hátt á málinu og stefna með því móti að svo góðri sátt um ákvarðanir þeirra sem verða má, landi og lýð til sem mestra heilla. Freysteinn Sigurðsson, formaður FÍN. 82
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.