Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1949, Síða 43

Náttúrufræðingurinn - 1949, Síða 43
SLÆÐINGAR I REYKJAVÍK OG GRENND 135 bragð. Skógarkerfill er sums staðar ræktaður til skrauts í görðum. Vex líka utan garðanna sem slæðingur í Reykjavík, og þrífst ágæt- lega. Hefur vaxið lengi í túni í Goðdal í Strandasýslu. Vex einnig í Neskaupstað, Reyðarfirði og að Asum í Gnúpverjahreppi. Ilendist að öllum líkindum. Ekki getið í Flóru. Vex villtur á Norðurlöndum og víðar. Gömul litunar- og lækningajurt. Galtarfífill (d). Grisafifill, blóm (b) og blað (lengst t. h.). Runnakerfill (Torilis japdnica D. C.). Einær eða tvíær, grágræn, 30—40 cm há sveipjurt, sem svipar tii skógarkerfils fljótt á litið. Snarpur átöku vegna stinnra hára, sem snúa niður á stönglinum, en fram á blöðunum. Stöngullinn er oft rauðbrúnn og greinist stund- um frá grunni. Blöðin fremur magnlítil, tví-þrífjöðruð, bleðlarnir ávalir egglaga, tenntir. Sveipirnir stilklangir. Stórreifar með 5 eða fleiri reifablöðum, fjölblaða smáreifar. Krónublöðin hvít eða rauð. Aldin grágrænt eða dökkgrænt með marga krókbursta. Dreifist með fólki og fénaði. Ekki fundinn hér áður, svo að kunnugt sé. Vex villtur á Norðurlöndum og víðar.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.