Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 64

Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 64
Fréttir ■ BETRA EN MÍNUS OG NÚPÓLÉTT? Mörg eru þau undralyfin sem sett hafa verið á markað til að halda líkamsþungan- um í skefjum, en árangur hefur því miður til þessa verið rýr. Nú er unnið að enn einni hugmynd í þessa veru, og er of snemmt að dæma um hvort hún eigi eftir að valda sömu vonbrigðunum og mínus, ritalín, nupo-létt og aðrir lífselixírar sem áttu að draga úr offitu og mittismáli en stuðluðu þegar upp var staðið einkum að hagsbótum framleiðenda og seljenda. Jeffrey Friedman og samstarfsmenn hans við Howard Hughes Medical Institute í New York dældu nýuppgötvuðu boðefni í akfeitar mýs sem bráðlega minnkuðu við sig matameyslu og brenndu um leið meiri fitu. Ekki spillti að minna mældist í blóði þeirra af kólesteróli og sykri (glúkósa), en áður voru mýsnar komnar með væg ein- kenni sykursýki sem oft fylgir offitu í músum og mönnum. Fyrir einum þrjátíu árum beindist athygli fræðimanna að hreinræktuðum músum sem voru afar feitlagnar. Douglas Cole- man, við Jackson Laboratory í Bar Harbor, Maine í Bandaríkjunum, tengdi saman tvær mýs, aðra af fitubollustofninum og hina eðlilega, svo úr urðu einskonar gervi- síamstvíburar. Sama blóðið rann um æðar beggja. Feita músin fór snarlega að leggja af og Coleman ályktaði að eitthvert öflugt boðefni frá hinni músinni hefði breytt matarlyst hennar og efnaskiptum. En því miður var efnið ekki í því magni að unnt væri með þeirra tíma aðferðum að einangra það. Þekkt er eitt gen sem stýrir því hvort mýs hlaupa í spik eða halda eðlilegum holdum. Feitu mýsnar eru arfhreinar um afbrigði- legt, stökkbreytt gen, ob (fyrir obese, feitur). Aðrar mýs hafa í frumum sínum samsvarandi, eðlilegt gen, Ob. Með aðferðum erfðatækninnar tókst ný- lega að finna Ofo-gensætið og koma eðli- lega geninu fyrir í litningi gerils. Hann var svo ræktaður og látinn framleiða hið eftir- sótta efni, sem reyndist vera prótín og fékk nafnið leptín, eftir grísku orði, leptos, sem þýðir grannur. Þegar nýfundna efninu var sprautað í feitar mýs fóru þær strax að leggja af. Arangurinn hefur fengist stað- festur á þremur rannsóknastofum. Frá þessu var skýrt í bandaríska tímarit- inu Science 28. júlí sl. Höfundar skýrsl- unnar eru dr. Jeffrey Friedman og sam- starfsmenn hans við Howard Hughes Medical Institute og Rockefeller Univer- sity í New York, en þeir hafa verið forvíg- ismenn í rannsóknunum er leiddu til þess að efnið var einangrað. Venjulegir megrunarkúrar eyða ekki að- eins fitu. Þeir ganga líka á prótín, til dæmis í vöðvum. Leptín ræðst hins vegar einungis á fituna og þegar mýsnar hafa náð eðlilegri líkamsþyngd hætta þær að léttast. Einnig er frá því skýrt að ekki aðeins mýs sem fitni vegna erfðagalla njóti góðs af leptín- sprautum. Eðlilegar mýs, sem vísinda- menn höfðu ofalið, megruðust líka. Genið er aðeins virkt í fitufrumum. Eftir því sem þær verða fleiri og stærri mynda þær meira leptín sem vinnur gegn frekari fitusöfnun og stuðlar að bruna umframfitu. Mýs, arfhreinar um stökkbreytta genið ob, mynda þetta efni ekki og hafa því engan hemil á fitunni. Ljóst er að gen sem mjög líkist Ob- geninu í músum er í frumum manna, og trúlega verður holdafarsvandi sumra manna að einhverju leyti rakinn til stökk- breytingar á því. Erfðatæknifyrirtækið Amgen greiddi Rockefellerháskóla 20 milljón dali fyrir einkaleyfi til að framleiða efni unnin með hjálp Oh-gensins, og lyfjaframleiðendur fylgjast með framvindu málsins af athygli. Enn er samt mörgum spurningum ósvarað og þess er ekki að vænta að tilraunir á mönnum verði strax leyfðar. Þegar og ef 294
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.