Samvinnan - 01.01.1938, Page 12
SAMVINNAN
1. HEFTI
I landi rósanna
Eftir Ivan H. Krestanoff
Ivan H. Krestanoff er búlgarskur blaða- og fræðimaður, sem
hefir verið á ferðalagi hér á landi í vetur.
Búlgaría liggur, eins og önnur lönd á Balkanskaga,
mitt á milli Austurheims og Vesturlanda. Þessi lega
veldur því eðlilega, að þarna þróast mjög merkilegur
jurtagróður, og afar margbreytilegur.
í landinu eru fjölmargar tegundir jurta, sem vaxa
í einstökum héruðum, og veldur því hvorttveggja, að
landið er mjög mishátt og nær yfir víðáttumikið svæði,
og svo hin sérstöku loftslagsskilyrði. Er vísindunum
hinn mesti fengur í þessu. Jurtaskrá sú, er Búnaðar-
félag Búlgaríu hefir gefið út, telur að jurtategundir
þar í landi séu 3616, en margt af því eru afbrigði.
Landið er óneitanlega ágætt jarðræktarland: 81%
af íbúunum lifa næstum því eingöngu á jarðrækt, og
jurtagróðurinn þar er viðfangsefni margra vísinda-
manna, innlendra og útlendra.
Ræktunarjurtirnar í Búlgaríu eru margar. Hveitið
er þeirra mikilvægust, tóbakið er mesta útflutnings-
varan, en rósin er merkilegust. Flestir kannast við
búlgarskar mjölvörur, búlgarskt tóbak og rósarolíu.
Efni þessarar greinar er einkum rósin, uppruni henn-
ar, ræktun, uppskera og suða.
Rósarœktin er mjög mikill þáttur í jarðrækt Búlgara
Höll í Rósadalnum í Búlgaríu
og sú eina iðnaðargrein, sem er sérstök fyrir Búlgaríu.
Rósin er, ef til vill, jafngömul veröldinni, um það
eru engin gögn fyrir hendi. En í full 3000 ár hafa
menn haft sögur af henni. Og allan þennan tíma hefir
hún verið notuð til skrauts og höfð til að tákna feg-
urðina, og skáldin hafa ort um hana.
Hennar er getið í ýmsum af goðsögum fornaldar.
Þannig segir á einum stað frá því, að þegar freyðandi
bárur sævarins báru gyðju fegurðarinnar upp að
ströndum Grikklands, þá fleygðu þær rósarfræi upp á
ströndina, ásamt guðdómlegum líkama Venusar, svo
að björt blóm spruttu í einu vetfangi allt í kringum
gyðjuna og fylltu loftið dásamlegum ilmi.
Yfirleitt eru margar sögur og sagnir til um uppruna
rósarinnar, en enginn veit með vissu, hver var hin
fyrsta rósar-móðir Balkan-rósarinnar, þótt svo sé
talið, að hún sé komin af Damas-rósinni.
Búlgaríu-rósin kemur til sögunnar í Búlgaríu strax
eftir innrás Tyrkja og var lengi notuð eingöngu til
skrauts. Áður er hennar hvergi getið. Samt er það
áreiðanlegt, að rósin er komin frá Indlandi.
Fyrstu og helztu útbreiðslustöðvar rósarinnar í Búl-
garíu eru í hæðunum fyrir sunnan Balkan-fjöll:
Stara-Zagora, Kazanlik, Karlovo og Klisura, þar sem
víðáttumiklir rósa-akrar breiðast yfir landið og
blómailmurinn vekur sérstaka eftirtekt. Þessi hluti
Búlgaríu er þekktur undir nafninu Rozova Dolina
(Rósadalur). Og það er mála sannast, að útlit dalsins
í maímánuði, þegar rósirnar standa í blóma og allt
andrúmsloftið er þrungið þægilegum rósailmi, hrífur
jafnvel tilfinningasnauðustu menn. Það er svo fagurt,
að minning þess getur aldrei máðzt úr huga ferða-
mannsins.
Og ritstjóri Lundúnatímaritsins „Answers“, hefir
rétt að mæla, þar sem hann segir, að búlgarska rósa-
uppskeran sé rómantiskasta uppskera í heimi og að
héraðið Srednogorie sé eitt hið allra fullkomnasta
fjallahérað í allri Norðurálfunni. Söm eru einnig um-
mæli ritstjóra tímaritsins „Der Bote“ í Berlín, er hann
fullyrðir, að Rósadalurinn í Búlgaríu, milli Balkan-
fjalla og Srednagora-fjalla sé þrunginn af hrífandi
fegurð og jafnframt hið fegursta og geðþekkasta iðn-
aðarhérað, sem unnt er að gera sér í hugarlund. Og
undir það taka þúsundir útlendinga, sem lýst hafa
8