Neisti - 01.10.1963, Blaðsíða 2

Neisti - 01.10.1963, Blaðsíða 2
HALLVEIG THORLACIUS AF ÍSLEN2K0 WÓfl FÉLflGI NHSIT HOSNÆfll AÖstandendur okkar borgaralega þjóðfélags bregðast hinir verstu við öllum tilraunum til þess að skyggnast inn f kjarna þessa þjóðfélags. Það gefur auga leið, að þjóðfélag, sem komið er f ósátt við samtíð sína, þolir ekki að komast undir smásjá. Einn megintilgangur blaðsins okkar er einmitt að kanna bæði stoðir og fylgikvilla þjóðfélags borgaranna. Hér verður tekinn fyrir einn kvalafullur fylgikvilli - sem húsnæðisvandræði heitir. Dæmisaga um þakleitanda. Þakleitandi nokkur á konu og þrjú böm. Hann er ungur og fær í flestan sjó. Honum var sagt upp gamla húsnæðinu f vor og vantar annað. Húsið, sem hann er að byggja verður ekki tilbúið fyrr en 1965. Einu sinni í viku auglýsir hann 1 Vísi: " Ég er 1 1/2 árs - er á götunni. Vill ekki einhver vera svo góður að leigja foreldrum minum 2-3ja herbergja íbúð." Eiginlega vissi hann ekki,hvað hann var að fara út í,þegar hann byrjaði að byggja. Hann var jú ungur og bjartsýnn, og hvers vegna átti haim að vera upp á húsabraskara kominn, þegar hann gat eignast sitt eigið hús. Og svo voru dæturnar hans litlu ekki vel séðar af húseigendum. Þær áttu til að þvo sér ekki um hendurnar allan daginn og mála með þeim ganginn. Það er líka margviðuikennd staðreynd og vfsindalega sönnuð, að verðbólgan skenkir mönnum bókstaflega heilu húsin. Hann fékk 150.000 kr. húsnæðismálastjórnarlán.og afganginn snapaði hann saman f bönkum. Það tók sinn tfma, en að lokum var þakleitandi með 300. 000 kr. upp á vasann, sem hann greiddi út f hönd - 300 þúsundkrónuseðla. 100 þúsund áttu að greiðast á einu ári,og þá var hann búinn að eignast fbúð - tilbúna undlr tréverk. Hann ætlar að innrétta hana sjálfur, en hún kostar samt alltaf 250.000 kr. En það er erfitt að standa f skilum við bankana. Þau sofa stimdum lftið, hjónakornin, nóttina áður en víxillinn fellur. Hvernig sem þak- leitandi sperrir sig.getur hann ekki sparað. (Það er mál manna, að sögnin að spara teljist til fornmáls innan skamms). Peningar staldra sjaldnast við á heimili hans. Þakleitanda vantar íbúð til bráðabirgða. Hann er á götunni. f orðsins fyllstu merkingu á g-ö-t-u-n-n-i. Þau fá að sofa f þvottahúsi uppi í Hlíðum hjá vinkonu frúarinnar. En á daginn ganga þau öll fimm um götur og þefa uppi íbúðir án gluggatjalda, og spyrja hvort þær séu til leigu. Eina hugsanlega lausnin á húsnæðisvandamálinu innan ramma þef sa þjóðfélags er að mjókka bilið milli framboðs og eftirspurnar. Reynsla okkar er sú, að bilið er alltaf að breikka. Rúmur þriðjungur fslendinga býr f Reykjavík. Slíkur fjölda- flotti til höfuðborgarinnar mun einsdæmi meðal þjóða. Við ætlum að staldra við þetta seinna f blaðinu, hvers vegnaungt fólk vill ekki búa f sveit. 2

x

Neisti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.