Verklýðsblaðið


Verklýðsblaðið - 11.10.1932, Blaðsíða 3

Verklýðsblaðið - 11.10.1932, Blaðsíða 3
Vika.ii Svik í vefaraverkfaliinu á Englandi. í septemberlok undirskrifuðu sósíaldemó- kratísku „verkamannaforingjarnir“ í Man- chester á Englandi án samþykkis vefaranna, sem verið hafa í verkfalli síðan í ágúst, samn- inga við eigendur vefnaðai’verksmiðjanna um það, að laun vefaranna skuli lækkuð um 8V2 % (atvinnurekendurnir heimtuðu í upphafi launalækkun um 12^%) og ennfremur um það, að sérstök nefnd verkamanna og atvinnu- rekenda með „hlutlausum“ oddamanni skuli á hverjum stað fyrir sig ákveða, hvort vefar- arnir skuli framvegis sjá um fleiri vefstóla en hingað til. Meðal þeirra 150 000 vefara, sem haldið hafa út í verkfallinu móti kaupkúgunar- tilraunum og vinnuhörku atvinnurekendanna í meira en mánuð ríkir óhemjureiði yfir þessum argvítugu svikum sósíaldemókratísku foringj- anna. Síðast þegar fréttist héldu vefararnir verkfallinu áfram fyrir forgöngu Kommúnista- flokksins. En hættan á því er mjög mikil, að sósíaldemókratísku foringjunum takist með agítasjón sinni fyrir „friðinum“ og samning- unum að veikja svo einingu og baráttuhug verkalýðsins, að verkfallið tapizt. Takist þeim það, er hér tvímælalaust um ægilegasta ósigur að ræða, sem enski verkalýðurinn hefir beðið síðan í kolaverkfallinu árið 1926, sem einnig var svikið af sósíaldemókratísku foringjunum, þegar mest reið á. Nýtt þingrof á Þýzkalandi. Þýzka ríkisþingið, sem kosið- var 31. júlí í sumar hjelt aðeins tvo fundi. Á seinni fundin- um, sem haldinn var 7. september var sam- þykkt vantraustsyfirlýsing á stjórn þeirra Papens og Schleichers frá Kommúnistaflokkn- um og greiddu á 6. hundrað þingmenn henni atkvæði eða með öðrum orðum allt þingið að einum 32 þingmönnum úr junkaraflokknum undanteknum. Strax eftir að vantraustsyfir- lýsingin var borin fram og áður en gengið var til atkvæða um hana lýsti Papen því yfir, að þingið væri rofið. Lét forseti þingsins, sem tilheyrir flokki Hitlers, atkvæðagreiðsluna um vantraustsyfirlýsinguna fram fara, þrátt fyr- ir það, en Papen lýsti hana ólöglega "og að engu hafandi. Er þetta í annað sinn, sem Papenstjórnin rýfur ríkisþingið, enda þótt það sé augljóst mál, að hér um bil öll þjóðin er á móti henni. En það sýnir hvers stórborgara- stéttin og junkararnir meta þingræðið, þegar aðrir en þeirra eigin stéttahagsmunir gera sig gildandi í því stjórnskipulagi. Auðvitað hefir Þýzkalandi undanfarin ár verið stjórnað af auðmagni og her yfirstéttanna. En það hefir þó verið gert undir grímu þingræðisins. Þess-. ari grímu er nú ekki lengur fyrir að fara. Það er ógrímuklædd ofbeldisstjói’n stórborgaranna og junkaranna, sem nú ríkir 1 landinu. Og það er aðeins til málamynda, að hún ætlar að láta nýjar kosningar til ríkisþingsins fara fram þ. 6. nóvember. En hitt er líka aukaatriði hvort það verður núverandi kanzlari, Papen, her- málaráðherrann, Schleicher eða fassistaforing- inn Ilitler, sem veitir einræðisstjórninni for- stöðu. Raunverulega verður engin breyting á því, sem nú er, fyr en verkalýðurinn hefir fengið kraft til þess að láta hart mæta hörðu og hrista að fullu af sér ok auðvaldsins. Krafa Kommúnistaflokksins: Hækkun fáfækrasfyrksins! Engan réfhndamissi! Burf mcð svcifafiufningana! Leggið Kommúnistaflokknum lið í barátt- unni fyrir hagsmunum og mannréttindum þeirra, sem svívirðilegast eru meðfarnir af auðvaldinu! Berjist fyrir þá, sem sjálfir eru sviftir atkvæðisrétti! Kj ósið rl-lístaon! S sl m ffy lk i n g a.i“fuxidiix* verður haldiim í dag kl. 8 ^ e m. 1 fundarsalnum í Bröttugötu. FUNDAREFNI: StðfiiUD sðifytkisðarliis í Múm. Allir verkamenn í Dagsbrún og þeir sem stunda sömu atvinnu mæti á íundinum. SAMFYLKINGARNEFNDIN. U. K. Kosxiixiga'fxxxtcliixr yerður haldinn að tilhlutun Félags ungra koinmúuista í Reykjavík, flmmtudaginn 13. októ- ber kl. 8'A í Bröttugötusalnum. tíi umræðu eru: Hin alsuennu baráttumá! verklýðs- æskunnar og kosninéarnar. Margir ræðumenn. Skorað á jatnt yngri sem eldri að fjölmenna. STJÓRNIN Rauð höfuðborg. 25. september fóru fram kosningar til borgarstjórnar í Sofia, höfuðborg Búlgaríu. Kommúnistar fengu 21 sæti, bændur og frjáls- lyndir 11 og afturhaldsmenn 3 sæti. Svo sem kunnugt er hefir Kommúnistaflokkur Búlg- ,aríu og vei’kalýðshreyfingin þar verið bönnuð frá því árið 1923 og tugir þúsunda verkalýðs og kommúnista hafa veríð myrtir á þessu tímabili og verkalýðshreyfingunni haldið í skefjum með jafnblóðugu hervaldi- eins og á Italíu. Kommúnistaflokkurinn í Búlgaríu er stærsti þingflokkurinn, en þingmannaréttind- in hafa jafnóðum verið tekin af þessum full- trúum verkalýðsins. Enda þótt sósíaldemó- kratarnir hafi fengið að ganga frjálsir til kosninga hafa þeir engan þingmann fengið og rnisst allt fylgi sitt. Þetta er svar verkalýðsins við svikum krataforingjanna undanfarandi ógnarár. Sigur kommúnistanna í Sofia sýnir að verkalýðurinn fylkir sér æ fastar um flokk sinn og að hann er staðráðinn í því að steypa auðvaldinu af stóli og koma á verkalýðs- og bændastjórn í Búlgaríu. Hvernig verkamenn Ráðstjórnarríkjanna verja frístundum sínum. „Án réttrar hvíldar — engin rétt hvíld“, svo hljóðar kjörorð hins volduga skemmti- garðs verkalýðsins i Moskva, sem í daglegu tali er kallaður „menningargarðurinn“. Tugir þúsunda af verkalýð Moskva sækja garð þenna á hverju kvöldi — konur og karlar, ungir og gamlir. Fyrir meðlimi stormsveitanna og aðra þá, sem unnið hafa sér sérstaklega til ágætis fyrir vinnu sína í verksmiðjunum, er aðgang- i ur ókeypis. Aðrir verkamenn fá aðgang fyrir ; I 1 sáralítið verð. I menningargarðinum eru íþróttavellir og hin fullkomnustu tæki til hverskonar íþrótta og baðstaður. Kvikmyndir eru sýndar, ræður haldnar um þau efni, sem í hvert skipti er þýðingarmest fyrir verkalýð- inn að fræðast um, hinar beztu hljómsveitir leika og söngmenn syngja, lesin upp kvæði og sögur, og verkamannaleikhópar sýna smáleiki. Auk þess eru iðkaðir dansar og fagrar líkams- listir og tækifæri fyrir hvern mann að taka þátt í allskonar leikjum. Lesstofur eru þar líka með fjölbreyttu bókavali og leikvellir fyr- ir börn, undir eftii’liti hæfra manna. Líkneski eru í garðinum af beztu meðlimum stormsveit- anna, með áletrunum um vinnustað þeirra og hvað þeir hafa unnið sér til ágætis. Á öðrum stað eru skrípalíkneski af þeim, sem sýnt hafa af sér sérstakan slóðaskap eða óreglu við vinn- una, drykkjuskap og slark. — Allur er garð- urinn og það sem þar fer fram ein lofgerð til hinnar nýju menningar. I-Iugsunarháttur hvers þess, sem garðinn sækir að jafnaði, hlýtur i i I Kosiiing‘as|6dur. Allir þeir flokks- og FUK-félagar sem hafa tekið söfnunarblokkir fyrir kosninga- sjóðinn, verða skilyrðislaust að gera skil á skrifstofunni i Bröttugötu, sunnudaginn 16. okt. síðdegis. Seljið úr blokkunum fyrir þann tíma! KOSNiNGANEFNDIN. ir A ■ k ÆS Nýkomnir þurkaðir ávextir: Epli, perur' aprikósur, ferskjur, blaridaðír ávextir, eveskjur, rúsínur. Kaupfélag Alþýðu Njálsgötu 28. & Verkamannabústöðunum Símar 1417 og 507. „Yér ákæruin þrælahaklið á Mandi 1932“ iieitir bæklingur sem kemur út næstu daga. Selluformenn vitji bæklingsins á afgreiðslu blaðsins. Útgáfustjórn K. F. I. að umskapast og hefjast upp á hærra menn- ingarstig, jafnframt því sem garðurinn veitir honum holla hvíld. I öðrum borgum Ráðstjórnarríkjanna eru nú óðum að rísa upp slíkir menningargarðar. T. d. hefir Leningrad, Baku o. fl. borgir þegar komið sér upp slíkum görðum. Dagsbrúnarfundur á miðvikud.kvöld! Fund- arefni: Fulltrúakosning á Alþýðusamb.þing. Krafa Kommúnistaflokksins: Fullkomnar sjúkna-, slysa-, elli- og örorku-fryggingap. Mótmælið fyrirhugaðri lækkun berldavarna- styrkjanna! Ileimtið fullkomnar tryggingar fyrir þá, sem sífellt eni í mestu hættu fyrir slysum og sjúkdómum, verkamenn og fjöl- skyldur þeirra! Kjósíð B-Iistann.

x

Verklýðsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.