Verklýðsblaðið

Tölublað

Verklýðsblaðið - 13.12.1935, Blaðsíða 3

Verklýðsblaðið - 13.12.1935, Blaðsíða 3
VERKLYÐSBLAÐIÐ VEftKLÝDfBLÁÐIÐ Útgefandi: KOMMÚNISTAFL. ÍSLANDS. Ritstjóri: EINAR OLGEIRSSON. Afgr.: Vatnastíg 3 (þriöju hæö). Sími: 2184. — Pósthólf 57. Prentsmiðjan Acta h.f. KOMMÚNISTAFLOKKUR ÍSLANDS (Deild úr Alþjóða- samhandi kommúnista). Formaður: BRYNJÖLFUR BJARNASON. Skrifstofa: Vatnsstig 3 (3. hæð). Viötalstími: Daglega kl. 6—7, virka doga. Lanmnspil kaipfé* lagsstjérais á Borð- eyrl og fagaaðaróp Alþýðablaðsias Útvarpið, sem sjaldan segir frá því, sem gerist í verkalýðshreyf- ingunni, flytur „stórtíðindi“ frá Borðeyri. Efst á forsíðu Alþýðublaðsins er stór margdálka fyrirsögn: „Verkalýðs- og smábænda-félag Hrútafjarðar segir skilið við kommúnista ..— Leiðari er skrifaður í Aiþýðublaðið, sem kvartar yfir því hve lítið fari fyr- ir þessum stórmikilvægu tíðind- um! Tilefnið til þess að allar þessar bumbur eru barðar er eftirfar- andi: Hinn nýi kaupfélagsstjóri á Borðeyri, sem landfrægur er fyrir fjársvindl, sem „Verklýðsblaðið“ afhjúpaði, og varð að flæmast fyrir þær sakir úr Kaupfél. Þing- eyinga, hefir gert tilraun til að koma klofningsfleyg inn í Verka- lýðsfélagið, og lét son sinn ganga í það í því skyni. — Notaði hann tækifærið, þegar flestir beztu kraftar félagsins voru fjarver- andi, og hefir tekist með fögrum loforðum að fá 10 verkalýðsfélaga til að fallast á, að ganga úr V. S. N. og í Alþýðusambandið. — Allt þetta fór með hinni mestu leynd. Svo er haldinn fundur og komu þangað 15 menn, og var þá tækifærið gripið til að fá þetta samþykkt, því tillagan kom öllum, sem ekki voru innvígðir, að óvör- um. Ofurlítið laumubragð atvinnu- rekenda norður á Borðeyri hefir tekizt. 10 verkaiýðsfélagar stíga augnabliks feilspor, sem þeir í svipinn ekki átta sig á. Og Al- þýðublaðið blæs í allar básúnur og segir: Þarna hafið þið svar verkalýðsins við samfylkingai’- boðum kommúnista. En svar hundraðanna og þús- undanna í Alþýðuflokknum heyr- ir Alþýðublaðið ekki. Það lætur eins og allar hinar glæsilegu stað- reyndir samfylkingarinnar séu ekki til. Hvað segja beztu foringjar sósial- demokrata um samfylkinguna ? Ma2E 1 loríng-inn Max Braun. Verklýðsblaðið mun héðan af birta umsögn ýmissa beztu manna sósíaldemókrata erlendis um sam- fylkinguna og hina heimssögulegu áskorun Dimitroffs á 7. heims- þinginu tii alls verkalýðs að sam- einast. Fyrst kemur hér álit Max Braun, hins alkunna sósíaldemó- kratiska foringja frá Saar. Var hann í blaðaviðtali spurður um álit hans á Dimitroff og samfylk- ingaráskorun hans. Svar hans hljóðar svo: „Af afrekum Dimitroffs hafa tvö heimssögulegt gildi: Framkoma hans í málaferlunum út af ríkisþingsbrun- anum og hin heimspólitiska fyrirskip- un hans á 7. þingi þriðja Alþjóðasam- bandsins" frá. Saar „Svo lengi sem saga mannkynsins verður skráð, verður hún Iíka saga uppreisnarmannanna gegn harðstjór- unuxh, sem sé líka saga Promeþeifs- niðjans Dimitroffs! Sú stefna, sem Dimitroff ákvað á 7. heimsþingi III. Internationale, sem næsta áfangann í pólitískum fram- kvæmdum á leið hins alþjóðlega kommúnisma, er eitt af hinum stór- fenglegustu, marxistisku afrekum; — virkilega verðug þess, að vera sett við hliðina á afrekum Lenins og Stal- ins. Raunhæfni (realismus) hennar cr það virkilega byltingarsinnaða í þess- ari ákvörðun. Hún gerir það mögu- legt, að einbeita öllum kröftum al- þjóðaverkalýðsins á einn punkt: úrslitabaráttuna gegn fasismanum! Hún gerir það líka mögulegt að sam- eina alla þá „þrá“ veraldarinnar, sem auðvaldinu er andvíg, til að binda cnda á afturhaldsauðvald banka- drottna, stóriðjuhölda og aðalsherra, sem aflanna. er standa á bak við fas- ismann. Fyrir alla lýðræðissinnaða þýzka andstæðinga Hitler-harðstjórnarinnar er vegurinn opinn til hinnar voldugu sameiningar í baráttunni fyrir frels- inu, — fyrir alla sósíalista, til hinna bjargföstu samtaka þessarar frelsisbar- áttu og til undirbúnings sósíalism- amun“. Umsagnir fleiri koma næst. Sovétvínaþíng í London Kaúþmannahöfn 12. des. í London fer fram þing „vináttu við Sovétríkin“, þar sem fulltrúar íyrir 2 mitjónir manna eru mættir. Meðal ræðumanna Bemhard Shaw, Lord Marley, Sidney Webbs og ýmsir aðrir af frægustu rithöfundum og menntamönnum Englands. Samfylkingu Alþýðuflokksins og Kommúnistaílokksins í Vest- mannaeyjum sjá þeir ekki; held- ur ekki samfylkingu vinstri flokk- anna þriggja á Húsavík. Þeir sjá heldur ekki samfylkinguna í at- vinnuleysisbaráttunni í Dagsbrún, né samfylkinguna í neytendasam- tökunum í Reykjavík. — Sam- fylking milli F. U. J. og F. U. K. í Reykjavík verður ekki hindruð. Á Eskifirði lýstu 240 kjósendur af 257 sig samþykka kröfum sam- fylkingarinnar. Á Norðfirði skor- aði verkalýðsfélagið á bæjar- stjórnina, þar sem afturhaldssam- ir Alþýðuflokksmenn ráða meiri- hlutanum, að verða við kröfum samfylkingarinnar, eða segja af sér að öðrum kosti. — Ekkert af þessu sér Alþýðubiaðið. — Um allt þetta hafa engar útvarpsfrétt- ir verið birtar, engar risafyrir- sagnir á forsíðu og engir leiðarar í Alþýðublaðinu! Það er illt að vera í sporum Don Quixote og berjast við vind- myllur! Þetta smásmuglega laumu- bragð, sem runnið er undan rifjum kaupfélagsstjórans á Borðeyri, mun engin áhrif hafa á afstöðu verkamannanna þar til V. S. N. Félagið á Borðeyri og Verk- lýðssamband Norðurlands, eru tengd sterkum böndum, sem ekki verða rofin. — Tilvera félagsins og kjarabætur þær, sem það hefir náð, er árangur af einhverjum hörðustu stéttarátökum, sem háð hafa verið á íslandi undir forustu V. S. N. — I þessum átökum lögðu forustumenn V. S. N. ekki aðeíns alla starfskrafta sína í sölurnar, lieldur líka lögðu þeir líf sitt í hættu. Dettifossbardaginn á Siglu- firði mun seint gleymast. 1 kjöl- far þessa sigurs, vanst hver sig- urinn á fætur öðrum á Norður- landi með hjálp V. S. N., í Hrís- ey, Dalvík o. s. frv. í þessum sömu átökum stjórn- uðu foringjar Alþýðuflokksins burgeisaliðinu, sem með slökkvi- dælum, grjótkasti og öllum þeim vopnum, sem fyrir hendi voru, réðust á verkamennina á Siglu- firði fyrir það eitt, að veita Verkalýðs- og smábændafélagi Hrútafjarðar lið, er það barðist fyrir tilveru sinni. Milli verka- Frá, Norðfirði til Alþýðublaðsins í Alþýðublaðinu 16. nóv. s. 1. er grein, sem heitir „Alþýðuflokkur- inn á Norðfirði samþykkir trausts yfirlýsingu til bæjarstjórnarinn- ar.“ — Sökum þess að greinin er að mestu leyti rangfærzlur, finnst mér full ástæða til að svara henni að nokkru. Eftir að verkalýðsfélagið hafði samþykkt vantraust á bæjarstj, sló miklum óhug á krataforkólf- ana og til þess að reyna að rétta við álit sitt í augum Alþýðuflokks- verkamanna boðuðu þeir til „Al- þýðuflokksfundar“ um málið. — Ekki var sjálfstraustið meira en það að varast var að hleypa and- stæðingum úr liópi kommúnista á íundinn. Var þarna samþykkt traustsyfirlýsing á bæjarstjórnina með 42 atkv. gegn 3, en á fundin- um mætti 71 maður. Ekki var traustið í valdasta liði flokksins meira. I þessari langloku, sem þarna var samþykkt, er ennfrem- ur sagt að kommúnistar og sjálf- stæðismenn hafi í sameiningu lcomið vantraustinu fram í verk- lýðsfélaginu á mjög fámennum fundi. — Þarna slær greinarhöf. met í rangfærslum í tilraun sinni til að auka hróður bæjarstjómar. Það er nú fyrst að á fundi þessum voru um 50 manns og er það ó- venju vel sóttur fundur, eftir því sem venja er til. Og að íhaldsmenn hafi staðið að tillögunni er lýgí. Eg hefði gaman af að heyra nefnd an einn íhaldsmann, sem var á fundinum, hvað þá að hann stæði að baki vantraustinu. Það er fram komið sem eðlileg og rökrétt af- leiðing fjandskapar bæjarstjórnar í garð verkalýðsins, en alls ekki fyrir atbeina íhaldsins. Þá segir í greininni að bæjar- stjórn hafi haldið uppi nær óslit- inni atvinnubótavinnu fyrir um 30 manns síðan í byrjun septem- ber og fengið lán til þess að leggja íram á móti ríkisframlaginu. Eina atvinnubótavinnan, sem unnin hefir verið fram til 20. nóv, er hin svokallaða „heiðavinna“, sem ríkið lét 30 mönnum i té í mán- aðartíma og auk þess 12 menn í nokkra daga í Norðfjarðarvegi. — Bærinn hefir ekkert lagt á móti. Um tilraun bæjarstjómar til að tryggja sér kol og aðrar nauðsynj- ar hefir enginn heyrt getið fyr en nú í hinni makalausu grein Alþýðublaðsins. Séu allar greinar blaðsins álíka réttar og þessi er vissast fyrir verkalýðinn að taka þær varlega trúanlegar. Bjami Þórðarson. mannanna á Borðeyri og aftur- haldsforingja Alþýðusambandsins er staðfest það djúp, sem ekki verður brúað, fyrr en þeir hverfa af braut þeirrar stefnu, sem leiddi þá niður á hafnarbakkann á Siglufirði með vopn í hönd gegn stéttarbræðrum sínum.

x

Verklýðsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.