Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1963, Síða 88

Andvari - 01.10.1963, Síða 88
206 ELIAS WESSEN ANDVARI af því sem hann veit. Það er sömuleiðis uppistaðan í því, sem á eftir fer, og ligg- ur raunar að baki öllu kvæðinu. Vitinu fylgir framar öllu varyggð (1, 38). Lífið var hættulegt. Hver maður átti bæði vini og óvini. Það reið á að horfa umhverfis sig, vera gætinn og ráð- svinnur. Maður skal aldrei ganga frá vopn- unr sínum svo mikið sem eitt skref, því að aldrei er að vita, hvenær þeirra verður þörf á vegum úti. Þetta er sama hugsun og Eyvindur skáldaspillir lætur Hákon garnla orða, þegar hann gengur í Valhöll og óttast reiði Óðins: Gerðar várar, kvað inn góði konungr, viljum vér sjálfir hafa. Hjálm ok brynju skal hirða vel. Gott er til görs at taka. Síðari vísuhelmirigurinn gæti formsins vegna verið kominn rakleiðis úr Háva- málum. Rekjum nú meginhugsanir ki'æðisins og hyggjum að, hverja túlkun þær hljóta í framsöguháttarvísunum! Hver er sæll? Sá er sæll, sem hefur unnið sér lof og líkn, lof og vit (8.—9. erindi). Ekki er með neinu rnóti unnt að treysta á það, sem komið er undir þóknan annarra. Hver er sinnar gæfu smiður. Ef maður nýtur virðingar eða vináttu, þá er það honum sjálfum að þakka. Því at ill ráð / hefr maðr oft þegit / annars brjóstum úr. Erindin byggjast sem sagt á gagnstæðum: því sem maður orkar með eigin athöfn og því sem aðrir leggja hon- um upp í hendurnar. Hann getur jafnt hlotið ill ráð sem lofstír og vinskap. Kvæðið heldur áfram með nýrri vísu- tvennd, þar sem fyrri helmingurinn er sameiginlegur háðum: Byrði betri berr-at maðr brautu at en sé mannvit mikit. Jafnvel framhaldið tcngist höfuðminninu um ferðalanginn: auði hetra / þykkir þat í ókunnum stað . . . ; vegnest verra / vegr-a hann velli at / en sé ofdrykkja öls. Einnig hér byggist stílformið á gagn- stæðum: mannvit - auður, mannvit — ofdrykkja öls. Tcngsl 15. og 16. erindis eru mjög sterk: maður skal vera vígdjarfur og reif- ur allt til dauða. 1 16. erindi er talað um gagnstæðuna, hinn hlauða: Ósnjallr maðr hyggsk munu ey lifa, ef hann við víg varask; en elli gefr hánum engi frið, þótt hánum geirar gefi. Gagnstæðan víg — eíli er rnjög áhrifa- mikil. Nú koma mörg erindi — um þann, sem ekki er eins og vera skyldi: Ósnjallr maðr (16), afglapi (17), gráðugr halr (20), ósviðr maðr (21), vesall maðr ok illa skapi (22), ósviðr maðr (23), ósnotr maðr (24— 27). Það eru gagnorðar auðkenningar. 17. Kópir afglapi, er til kynnis kemr, þylsk hann um eða þrumir; allt er senn, ef hann sylg of getr, uppi er þá geð guma. Afglapinn hegðar sér allt öðruvísi en vera ber, samkvæmt boði 15. erindis: þagall ok hugall. 20. Gráðugr halr, nema geðs viti, etr sér aldrtrega; oft fær hlægis, er með horskum kemr, manni heimskum magi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.