Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1990, Page 143

Andvari - 01.01.1990, Page 143
andvari VIÐ HVAÐ LEITUMST VIÐ? 141 menntafræði, stílfræði, fjölmiðlafræði og margvíslegra annarra greina mannlegra og félagslegra fræða. Mál mitt hér er speglun og viðbragð við grein Bodanis, sem er speglun og viðbragð við ritunum fjórum, sem eru sjálf viðbrögð og speglanir í x-ta lið - og veraldarbótabasl, en það eru þessi rit vitanlega öll. Þýðingin á grein Bod- anis og þessi eftirmáli við hana eru líka speglun og viðbragð. Það er einmitt vegna hinnar mikilvægu og miðlægu uppistöðu sem mér virðist að grein Bod- anis hljóti að vera vel fallin til lestrar og umræðu fyrir nemendur t.d. í hvers konar fjölmiðlun, en þýðingin og þessi eftirmáli eru rituð til þess að benda á það, um leið og vikið er að fáeinum atriðum varðandi byggingu og merking- arbyggingu greinarinnar. Margrætt er á þessum misserum um „engilsaxneska múgmenningarflóð- ið“ og þá ógnun sem í því felst fyrir fámennisþjóð, sem vill fá að búa sér til og eiga veröld sína á sínu eigin máli. Miðlunarbyltingin margrædda er líka að breyta öllum aðstæðum lífsins á mjög róttækan hátt og með miklum hraða, og hún hefur þegar komið ólitlu til leiðar, sjálfsagt bæði til góðs og ills. Óhjá- kvæmilega fylgja henni síaukin fjölþjóðleg samskipti, sem ógerningur er að loka sig inni fyrir. Menn þurfa á því að halda að kunna erlend tungumál og vera „heima“ í menningu annarra; það er lífsnauðsyn. Því virðist mér sjálf- sagt að frumtextinn fái einnig að birtast hér með, handa íslenzkum lesendum að átta sig á þeirri speglun sem verður í þýðingartilrauninni. - Það eru gömul og ný kenningarsannindi að slíkur flutningur milli hugarheima ólíkra tungu- mála sé ógerningur; samt á hann sér stað. - Það er líka mörgu orði sannara, að varla mun vera til betri staður til skilnings á eigin menningu en á sjónar- hóli sem er nokkuð langt frá henni. Sízt er múgmenningarflóðið ástæða til að forðast nýtilega hluti úr engilsaxneskri menningu, og það að hjálpa íslenzku fólki til að íhuga vandlega sem flest af því sem gott er í hefðum og hugsunar- hætti útlendra hlýtur einmitt að styrkja íslenzka menningu og viðbúnað hennar. Aðferð Bodanis við að skrifa bókafregnina er fullrar athygli verð og til fyrirmyndar. Hvernig væri að glíma hér á þennan hátt í blöðunum við ein- hvern part af „jólabókaflóðinu“ og spara með því mikið fé og þjóðinni leið- indi? Meira þykir mér þó til þess koma, hvernig bókafregnin verður líka al- menn umræða um vanda höfundanna, sem er vandi okkar allra. Að síðustu fáein orð til viðbótar um byggingu greinarinnar. Skrýtlan í upphafi segir eiginlega að forsenda vellíðunar sé að hlusta ekki á vanda- málaraus. Sem undanfari tjáir hún í hnotskurn sterka vantrú eða svartsýni Bodanis á það að alvarlegir og röksamlegir fortöluritlingar nái tilgangi sín- um, slíkir aulabárðar sem við erum, mannfólkið. Skoðun hans um tvær, ef ekki þrjár fyrstu bækurnar er undir þessu formerki: Það þýðir ekki að hrópa
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.