Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1996, Page 71

Andvari - 01.01.1996, Page 71
ANDVARI HULDUMANNA GENESIS 69 sögu styðst við þjóðsögur og Jýjóðtrú sem þá var við lýði í landinu.111 Skyld sögn kemur einnig fyrir hjá Alfa-Árna, sem næst segir frá. Sagnir frá Álfa-Árna I Desjarmýrarannál, sem séra Halldór Gíslason á Desjarmýri skráði um miðja 18. öld, er Sagan af Ljúflinga-Árna, sem einnig var nefndur Álfa- Arni. Árni þessi Vilhjálmsson var frá Lambeyri við Reyðarfjörð. Hann var við útróðra í Seley fyrir mynni fjarðarins, og komst þá í kynni við dóttur álfaprestsins í eynni, sem sóttist eftir að eiga hann. Átti sá atburður að hafa gerst árið 1743, samkvæmt annálnum. Þegar Árni vildi ekki þýðast hana gerðist hún ærið harðleikin og lagði á hann furðulegan og þrálátan sjúk- dóm. Presturinn, faðir hennar, reyndi þó að bæta um fyrir Árna og voru þeir vinir alla ævi. Árni hefur þetta eftir álfaprestinum, úr biblíu álfanna: En þegar guð skóp Adam í öndverðu, skóp hann og so strax kvinnu handa hönum, so sem ritningin segir. Þessi varð strax frjóvsöm og fékk getnað, og sem hún sá, hvílík nytsemi væri að því kvenlega kyni, þóttist hún Adam of góð, og vildi ei þýðast hann. Þetta straffaði guð, so hann skildi hana frá manninum, úrskurðaði hana seka og synd- uga, sökum sinnar drambsemi og óhlýðni, og meðal annars uppálagði henni það straff, að hún með sínum niðjum skyldi lifa, og halda sig í fylgsnum jarðarinnar. En á tíma syndaflóðsins þá lét guð af þessu fólki nokkra af komast í einum hellir. Nú sem Adam var einmana orðinn, sagði guð: „Það er ei gott að maðurinn sé einsamall etc.“. Gekk þá til sem segir í yðar biblíu. 11 Saga Álfa-Árna er til í ýmsum handritum og útgáfum. Er nokkur mismun- Ur á frásögninni um uppruna álfa í þeim, enda þótt allar eigi þær að vera hafðar eftir Árna sjálfum. Ólafur Sveinsson í Purkey á Breiðafirði tók sög- una upp í Álfarit sitt (1830), og þar er þetta haft eftir Árna: Einu sinni beiddi Árni prest að sýna sér álfanna biblíu, eður hvörnin þeirra trúar- brögð væri. Hann gjörir það og er þar fyrst um sköpun heimsins og allra hluta, viðlíka og hjá oss, og um Adam og Evu, allt samstemma vorum biblíum, og so syndafallið. En soleiðis áttu álfarnir að vera fráskildir öðrum mönnum, að eitt vatn átti að renna skammt frá sem Adam og Eva bjó, og var Eva eitt sinn að þvo sín börn sem mörg voru, og hafði ekki þvegið nema eitt eður tvö. Þá kallar guð til hennar, en hún varð hrædd og heldur þessum börnum sem þvegin voru, en hin skilur hún eftir. Þá átti guð að segja til hennar: „Áttu ekki fleiri börn en þetta?“ „Nei“, segir hún af hræðslu. Þá svarar guð: „Það sem á að vera hulið fyrir guði skal fyrir mönnum hulið vera.“ Síðan hvörfu þessi börn, sem óþvegin voru, frá henni og sá hún þau ekki meir. Þau voru ekki mörg allt til syndaflóðsins; þá fóru þau um syndaflóðið inn í einn hellir, og lét svo sjálfur guð aftur dyrnar hellirsins. Síðan hefur það mikið fjölgað. Lögmálið held- ur það líkt sem vér, trúir á Kristum sig endurleyst hafi, so og á heilagan anda, allt við- líkt og vér, so þess trú er sem vor trú. Soleiðis talaði Árni þar um.12
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.