Spegillinn - 18.06.1943, Blaðsíða 7
XVIII. 12.
SPEGILLINN
'''■'IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIr.lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllIIIIIIIIimilllIllllllllllllllllllllllllllllltllllllllllllllllllllllllll
Samtal á sýningu.
I3að var glæsilegur bíll, sem nam staðar í Kirkjustræti.
^agurgljáandi með Ijósum boglínum, eins og rákir eftir
stjörnuhröp á dimmum næturhimni. Hann hafði komið á þil-
fari, eins og fleiri góðir bílar, vandlega merktur „Mr. Blind-
skers. To be delivered at once“. Engar vífilengjur þegar slík-
*r eiga í hlut.
liíllinn opnaðist og Blindskers-mæðgunar stigu út, glæstar
að ytra útliti eins og farartækið.
'— Svo það er þá hérna sem listir og lystisemdir skiftast
a- Ekki skal mig undra þó forsetarnir kvarti yfir truflun á
svefnfriði, sagði frúin.
Mamma þó, sagði Annetta, — heldurðu virkilega að
beir sofi hér. Nei, þeir eru bara smeykir um, að þeir hafi ekki
n®ði til að hugsa upp ráð til úrbóta á aðkallandi vandamál-
um.
— En hver er þessi blái þarna uppi á skúrnum? Er þetta
kannske Blátún, eða hvað?
— Sei, sei, nei. Hann er nú ekki svona blár bóndinn þar.
Þetta er sko táknræn fígúra. Blátt þykir fallegur og þjóðleg-
ur litur og sumum finnst hann aldrei nógu blár, en aðrir
vilja hafa hann minna bláan. Áður en fyrstu þingkosningar
fóru fram og þingið var sett á Þingvöllum,'hét staðurinn Blá-
skógar og vatnið auðvitað Blávatn. Og svo varð allt sem
blátt er að þjóðlegum verðmætum. Það verður kannske skip-
uð nefnd til að rannsaka þetta, eða finna bláþræðina í ís-
lenzkri skapgerð og menningu.
— Nú er ég ekki með, Annetta mín, en eigum við ekki að
ganga inn. Eg skil ekkert í brezku menningarstofnuninni
að bjóða okkur ekki á opnunina. Þeir ættu þó að sjá hvað
okkur er gert að greiða í skatta og útsvar. Eða höfum við
kannske ekki setið sæmilega á traðarveggnum og —
— Nú er ég alveg bit á þig, mamma, ef þú ætlar að fara
að sítera hann Helga. Hefirðu ekki séð að þeir Bjarni og Agn-
ar vilja ekkert við hann tala, en þeir hafa nú kynnst heims-
menningunni það vel, að hæverskan er þeim í blóð runnin.
— Jæja, ókei. En hann Helgi var þó hátt settur á fyrsta
listamannaþinginu í okkar sögu og allir álíta þeir sig först-
klass, hvort sem þeir eru það eða ekki. Svo þetta eru þá lista-
____ r ~* • ------------
SPEGILLINN
RITSTJÓRI: PÁLL SKÚLASON
Ritstjórn og afgreiðsla: Smáragötu 14 — Reykjavík.
Sími 2702 (kl. 12—13 daglega).
Árgangurinn er 24 tbl. — um 200 bls. — Áskriftarverð
25 kr. Einstök tbl. kr. 1.50. Áskriftir greiðist fyrirfram.
Blaðið er prentað í ísafoldarprentsmiðju h.f.
H.f. Hamar
Vjelaverkstœði -— Járnsteypa
KetilsmiSja
Tryggvagötu 64, 45, 43, Rvík.
Framkv.stj.:
Benedikt Gröndal.
Símar:
2880, 2881, 2882, 2883, 2884. ■
Telegr.adr.: Hamar.
fslenskt fyrirtœki.
StySjiS innlendan iSnatl
103