Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1924, Blaðsíða 16

Stúdentablaðið - 01.12.1924, Blaðsíða 16
STÚDENTABLAÐ IÍH!4 8 seg'ir í „Skapgerðarlist", líklega þörfustu bókinni, sem lengi hefir komið hér út. Hamingja þín er fólgin í því að eiga trausta, tignarlega og fagra skapgerð. þinn innri maður ert þú sjálfur. Alt ann- að er skammgott og hverfult. ÖU gæði þau, er heimurinn býður, eru þér lánuð og þú verður að láta þau eftir liggja, er þú hverf- ur héðan. Sál þín ert þú sjálfur; hún er það eina, sem lifir líkamsdauðann af og lifir eilíflega. Hún verður eigi metin af klæðum líkama þíns. „Hvað stoðar það manninn, að eignast allan heiminn og fyrirgera sálu sinni ?“ Sú sál, er hér ræðir um, er ekki í sálarfræð- inni þinni. Sálarfræði „sálarfræðinganna" er sálarlaus. Að baki þér er eilífð — og framundan þér er eilífð. þér ber því að miða alt við eilífðina! Hún er grunn sú hugsun og aumkunarverður sá maður, sem miðar alt við augnablikið — og jafnvel öll líkams- æfi þín er augnabliki minni hjá eilífðinni. Einu sinni var auðugur veitingamaður á gangi; á förnum vegi fann hann gömul gleraugu. Af rælni tók hann þau upp og setti þau á nef sér. Alt breyttist fyrir sjón- um hans. Hann starði undrandi á menn- ina, sem hann mætti. Hann sá í gegn um þá; hann sá sálir þeirra. Fátækur bein- ingamaður rétti fram hendina og beidd- ist ölmusu. „Hví beiðist bú ölmusu, sem ert ríkur?“ svaraði auðmaðurinn. Hann sá sál en eigi tötra beiningamannsins. En hvernig var hans eigin sál? Hann skund- aði heim og leit í spegil, en rak upp skelf- ingaróp, er hann sá sál sína horaða og hnýtta híma f hugskoti sínu. „Bölvuð gler- augu!“ hrópaði hann og þeytti þeim út um opinn gluggann.' Vinir mínir, leitið gleraugna veitinga- mannsins, en fleygið þeim ekki aftur frá ykkur. Horfið óhræddir framan í veruleik- ann. Lærið að þekkja ykkur sjálfa! pið ætlið ykkur mikið. Ykkur er mikið gefið og mikils verður af ykkur krafist. þið ætlið að leiða heila þjóð. Hún treystir ykkur. Af vanefnum sínum veitir hún ykk- ur ríkulega. Hún gefur ykkur þá bestu fræðslu, sem hún á ráð á. Hún mætti þó gera betur við vkkur en hún gerir; en hún skilur ekki enn sjálfa sig né sinn eiginn hag. Ykkar er að opna augu hennar en ekki að vanþakka það, sem vel er gert. þið genguð allir sama veg.Nú skilja leið- ir. og þó liggja þær allar að einum stað, eins og í æfintýrinu um ríka konungsson- inn og fátæka drenginn, sem leituðu klukk- unnar f skóginum og fóru ólíkar leiðir, en mættust að lokum á sömu hæðinni. þú ætlar þér að verða læknir! Mundu: um leið og þú hófst nám þitt, sórst þú bess dýran eið, að helga k æ r 1 e i k a n- u m krafta þína, græða mein náunga þíns, bægja á burt og berjast á móti öllu, sem lamar, sýkir og særir hann. Vei þeim lækni, sem gerist eiðrofi! Vei þeim lækni, sem nokkru sinni vanrækir sk.vldu sína eða byrlar öðrum það, sem skerðir heilbrigði hans! Vei þeim lækni, sem metur kærleikann til fjár! þú, sem nemur lög, hefir svarið þess eið að þjóna r é 111 æ t i n u, láta það ráða öllum dómum þínum án tillits til afleiðing- anna fyrir þig eða aðra. Vei þeim lög- manni, sem nokkru sinni bregður af þeirri braut! Vei þeim lögmanni, sem sjálfur brýtur þau lög, sem hann á að gæta! þú, sem ætlar þér að stunda fræði- mensku, hefir svarið sannleikanum hollustu þína. þú hefir lofað að hlýða boði hans og lúta honum, hversu sárt, sem það stundum kann að verða. Vei þér, ef þú bregðst konungi þínum! En þú, sem ætlar þér að gerast kenni- maður og andlegur leiðtogi þjóðarinnar, hefir þó valið erfiðasta hlutverkið og ábyrgðarmesta. Dýrastan eiðinn hefir þú svarið, þann: að feta í fótspor K r i s t s.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.