Stúdentablaðið - 28.07.1976, Blaðsíða 12
JDENTA
LADID
Skilafrestur næsta blaðs er 25. ágúst. Eru
menn hvattir til að nota sér tækifærið.
Frá sumarþingi SINE
Sumarþing Sambands
islenskra námsmanna
erlendis 1976, haldið
24.-25. júli átelur harð-
lega þau vinnubrögð rik-
isst jórnar innar að
stöðva alla starfsemi
LÍN með þvi að liggja á
fé þvl, er sjóðnum er
ætlað skv. sjárlögum.
Sumarþingið krefst
þess, að fé verði þegar I
stað útvegað, svo að
hægt verði að greiða út
eftirstöðvar námsiána
skólaársins 1975-1976,
svo og sumarlán. Sum-
arþingið lýsir þvi yfir,
að islenskir námsmenn
erlendis munu ekki þola
neinn drátt á útborgun
haustlána vegna svika
af hálfu rikisvaldsins að
standa við heimildir
fjárlaga um fé til sjóðs-
ins.
Þessi ályktun var
samþykkt samhljóða á
sumarþingi Sine um sið-
ustu helgi. Var hún borin
upp á siðari degi þings-
ins eftir nokkuð harðar
umræður um ýmislegt
annað. En um þetta mál
rikti einhugur. Sumar-
þingið er i lögum sam-
bandsins ekki ákvarð-
andi um mál þess. Það
gegnir fyrst og fremst
þeim tilgangi að undir-
búa haustfundina sem
eru ákvarðandi fyrir
stefnu og skipulag. Það
var þvi mest um um-
ræður á þessum fund-
um, en þær kristölluðu
þær skoðanir sem uppi
eru i sambandinu i dag,
bæði á skipulagsmálum
Sine og eins á máli
málanna, lánamálinu.
Sine átti á yfirstandandi ári viö
fjárhagsörðugleika að etja sem
áður. Sambandið byggir á litlum
hluta islenskra námsmanna. Það
hefur þvi mjög takmarkað bol-
magn og getur ekki nema að litlu
leyti annast það starf sem það
þyrfti að rækja við islenska
námsvitt og breitt um heims-
kringluna. Til þessa hefur ekki
verið um neina skylduaðild að
samtökunum, en nú er að finna i
lögum um námslán heimildará-
kvæöi til handa ráðherra að gera
megi aöild að sambandinu skylda
þeim er þiggja að einhverju leyti
fyrirgreiðslu LÍN. Það er þvi aö
birta til, mögulega geta samtökin
á komandi árum starfaö af meiri
krafti en hingaðtil 1 skjóli auðs og
mannafla.
1 Sine hefur um nokkurt skeið
verið að þróast umræða um is-
lenska námsmannahreyfingu,
möguleika hennar og takmörk.
Heiúr þessi umræða að mestu
komið til vegna nýrrar lagasetn-
ingar um námslán og hefur það
sett mikið mark á umræðuna.
Hefur þessi umræða nokkuð kom-
isttil skila i Stúdentablaðinu, þótt
það hafi nær enga útbreiðslu
meðal námsmanna erlendis. Nú
er svo komið að þessi umræða er
komin i tvo megin póla. Attu þeir
báðir sinar tillögur i lánamál-
unum á sumarþinginu. Bar sá
fyrri fram eina tillögu um málið
svohljóðandi: (Tillögur þessar
eru samdar i nafni haustfunda,
enda koma þeir til með að móta
stefnuna i þessum málum að
fullu).
— Haustfundur 1976 fordæmir
lög rikisstjórnarinnar um náms-
ián. Hin óréttmæta dreifing end-
urgreiðslubyrðarinnar og sú staö-
reynd að með þessum Iögum eru
Lánasjóði hvorki tryggður sá
fjárveitingargrundvöllur, né
heidur er i lögunum kveðið á um
fulla brúun umframfjárþarfar
merkir að námsmenn munu á-
fram sem endranær búa við vax-
andi kjaraskerðinu. Þetta mun
hafa i för með sér að börnum úr
láglaunahópum og verkalýðsstétt
mun gert þvi sem næst ókleyft að
leyta sér mennta. t ljósi þessa
verður aUt hjal um jafnrétti til
náms ennþá hjákátlegra en
nokkru sinni fyr.
Gera verður þær lágmarks-
kröfur til laga um námsláh að þau
kveðiskýrt á um það að möguieg
endurgreiðslubyrði dreifist,
þannig að tekjuhæstu mennta-
menn greiði sem næst fullu raun-
gildi móttekinna lána, en endur-
greiðslubyrði minnki er neöar
dregur til þess að verða sem
minnstog engin á meðaltekjufóik
og lá glaunahópa. Endurgreiðslur
námslána mega ekki vera ncin-
um iánþega byrði að Ioknu námi.
Haustþingið gerir það að kröfu
sinni að tryggt verði á óyggjandi
hátt að námsmenn geti að fullu
fjármagnað framfærslukostnað
sinn með námslánum.
Þrátt fyrir að Sine sjái sér ekki
fært að styðja tillögur Kjarabar-
áttunefndar i heild sinnsi, þar
sem ekki rikir eining um afstöð-
unatil þeirra innan félagsins, for-
dæmir haustfundur harðlega það
framferði rikisvaldsins i laga-
smið sinni um námslán að taka
ekki tillit til lánamálatillagna
þessara er fram voru bornar af
forystu námsmanna og nutu
stuðnings yfirgnæfandi meiri-
hluta námsmanna.
Námsmenn heita i þessari bar-
áttu sinni á verkafólk og samtök
þeirra aö styðja hinar réttmætu
kröfur námsmanna enda eru
hagsmunir okkar sameiginlegir i
þessu máli.
Hinn póllinn hafði sem fyrr
sagði fram að leggja tvær tillögur
i þessu máli. Fara þær báðar hér
á eftir.
Haustfundir Sine 1976
lýsa yfir algjörri andstöðu sinni
við lög þau er sett voru um náms-
lán og námsstyrki sl. vor, og lýsa
andstyggð sinni á þvi að
Stúdentaráð Háskóla islands
skuli hafa orðið fyrst til að móta
þær grundvallarhugmyndri, sem
lögin byggja á, þ.e. vísitölubind-
ingu námslána og aukningu fjár-
streymis tU LÍN frá námsmönn-
um sjálfum. í ljósi núverandi við-
horfa álykta haustfundir að Sine
beri að leggja megináherslu á:
1. Að berjast fyrir þvi aö lánin
brúi að fuUu framfærsluþörf
hvers námsmanns þegar a
næsta ári.
2. Að fallist verfi skilyrðislaust
frá visitölubindingu námslána.
3. Að námsmenn fái meirihluta i
stjórn LÍN.
4. Að mótað veröi nýtt og réttlát-
ara endurgreiðslukerfi náms-
lána.
5. Að Sine eigi frumkvæði að þvl
að leita eftir stuðningi frá og
samstöðu við islenska verka-
lýðshreyfingu i baráttunni fyrir
jafnrétti til náms.
Seinni tillagan til haustþings er
stiluð til Kjarabaráttunefndar.
— Haustfundir Sine lýsa þvi yf-
ir.aðstefna Kjarabaráttunefndar
varöandi skipan iánamála hafi
veið setningu námslánalaganna
þi vor beðið algjört og endanlegt
skipbrot. Jafnframt hafa bar-
áttuaðferðir nefndarinnar sýnt,
að þær eru til einskis nýtar i hags-
munabaráttu námsfólks. Haust-
fundir vita þessi vinnubrögö
harðlega og telja þau hafa leitt til
verri bardagastöðu og verri k jara
á námsaðstoð en nokkru sinni
fyrr. 1 Ijósi þessarar reynslu
hörmum viðaðhafa átt við þessa
aðila svo náiðsamstarf, sem raun
hefur borið vitni til þessa. Við svo
búið má ekki standa. Þvi álykta
haustfundir, að áframhaldandi
aðild Sine að Kjarabaráttunefnd
sé háð eftirfarandi skilmálum:
1. Að nefndin láti af fyrri stefnu
sinni um visitölubindingu
námslána, sem ekkihefur gefið
neittaf sér, hvernig sem á mál-
ið er litið, og sé reiöubúin til að
móta nýja stefnu, byggða á
raunverulegum hagsmunum
námsfólks.
2. Að nefndin leggi aðaláherslu á
að gera hinn almenna náms-
mann meðvitaðan um kjör sin
og alla baráttustöðu og skapi
þar með grundvöll fyrir virkri
f jöldabaráttu. (Jafnframt
skora haustfundir á þá sem
hafa meiri trú á þingpalla-
snakki og samvinnu við rikis-
valdið að bjóða sig fram til
þings við næstu Alþingiskosn-
ingar og vinna þar i friði að
hugðarefnum sinum. Það gæti
verið við kysum þá.)
Verði ekki gengið að þessum
skilmálum fela haustfundir Sine
að sjá til þess aö aðild sambands-
ins að Kjara baráttunefnd verði
slitiö að sinni.
Svo mörg voru þau orð. Við
tökum menn vara á þvi að skoða
þessi atriði sem stefnu Sine. Þettá
eru aðeins þeir pólar sem finna
má i umræðu innan sambandsins.
Tveir námsmenn
erlendis yfirheyrðir.
Er þinginu var iokið tókum við
taU tvo námsmenn, annan frá
Þýskalandi, hinn frá Höfn. Við
spurðum Pál Halldórsson, sem
stundar nám i stærfræði i
Göttingen, hvort hann áliti að ein-
hver þáttaskil hefbu orðið á þessu
sumarþingi.
— Tæpast. Sumarþing eru nú
aldrei annað en vettvangur þar
sem fyrstu tillögur koma fram.
Það er gert út um hlutina á haust-
fundi. Nú, af tillögunum um lána-
málin þá er þar tvennt á ferðinni:
sekterisk tilheiging stjórnar Sine
til að svara pólitik SHÍ, sem er að
mörgu leiti vafasöm, með þvi að
ganga út úr Kjarabaráttunefnd.
Þar á móti kom fram tillaga sem
tók ekki beina afstöðu, nema þar
kom fram stuðningur við þær
grundvallarhugmyndir sem búa
að baki tillögum SHl. Siðan var
imprað á skipulagsmálunum,
engar tillögur komu fram, en ijóst
er að á komandi vetri verður það
aðalmálið. Ekki aðeins vegna
skylduaðildar, heldur lika vegna
hins hvað erfitt er að starfrækja
þessi samtök með stjórn uppi á
Islandi.
Við spurðum um hvernig Páli
litist á komandi vetur.
— Það er ljóst að ef engir
peningar koma ,þá hlýtur það að
hreyfa við mönnum. Sérstaklega
ef þeir eru undir það búnir. Hins
vegar er það vandamál okkar i
Göttingen að það er erfitt að
skipuleggja nokkuð á svo smáum
basis, við erum 12, það þyrfti þvi
kæmi til aðgerða að geta náð
fleirum saman.
Kristinn Einafsson stundar
nám i Kaupmannahöfn. Við
spurðum hann, eins og Pál, hvort
þetta þing hefði valdið skilum i
sögu Sine?
— Þetta þing er ekki annað en
vettvangur fyrir þá hluti sem
siðan er tekin ákvörðun um á
haustfundum. Það gefur til kynna
hvaða linur eru að þróast. Það
hefur ekkert breyst með þessu
þingi.Svipaðardeilur og pólitiskt
þras voru á siðasta þingi. Égheld
að það hafi komið fram soldið
ákveðnara að það er nauðsynlegt
að móta nýja stefnu i lánamálun-
um. Það hefur verið að gerjast i
fólki en ekki komið fram
almennilega. En það er að koma
fram að það er möguleiki á þvi
núna. Þaö er margt órætt, en við
getum byrjað á þeim grundvelli
sem við höfum.
Við spurðum Kristinn einnig
hvernig honum þætti útlitið fram-
undan?
— Hann getur orðið erfiður. Það
er ekki jafn erfitt fyrir alla. En
mér sýnist að þetta geti orðið
fyrsti veturinn sem virkilega
hrekur fólk frá námi. Og jafn-
framt að þeir sem ætlað hefðu i
nám, komist ekki i nám. Þetta
getur orðið svartur vetur. Varð-
andi aðgerðir i haust, þá eru fáir
þrýstingsmöguleikar hjá náms-
mönnum, öðruvisi en þeir fin'ni
sér sinn rétta bandamann, verka-
lýðinn, sem er eini hópurinn sem
þrýst getur á sameiginleg hags-
munamál námsmanna og verka-
fólks.
Látum við það duga af þingi
þessu.
pb.