Spegillinn - 01.05.1983, Síða 27

Spegillinn - 01.05.1983, Síða 27
Spegillinn bak við fermingartjöldin! Tilkynnig frá biskupsstofu Þjóðkirkjan verður lokuð í 40 daga og 40 nætur frá kl. 14:45 annan dag hvítasunnu. Þeir sem nauðsynlega þurfa að ná í prest — og þá eingöngu vegna dauðsfalla — eru beðnir að snúa sér til Ferðaskrifstofu ríksins, sem í nauðvöm gefur upplýsingar um vemstaði presta. Biskupsritari. Einstætt tækifæri Látið ekki happ úr hendi sleppa. Síðustu forvöð að láta mig ferma. Er röskur. Fer að hætta. (Loforð.) Sigurður Haukur Guðjónsson. Vamir og verjur Fermingarböm athugið! Eigum landsins mesta úrval af P-pillunni. Seljum einnig hettur, smyrsl og froðu; kítlismokka og hina heimsfrægu Sultan-smokka í öllum stærðum og mörgum litum. Landsamband apótekanna. Hver bíður betur? Bíð hagstæðusm greiðslukjörin á markaðnum. Tek víxla, verðbréf, ávísanir fram í tímann, hvað sem er, bara ef ég fæ að ferma. Þórir Stephensen. Allt til ferminga Takið fermingu hjá þjóðkirkjunni sjálfri. Ferðadiskó. Vasadiskó. Leynigesmr, ef óskað er. Trúbadorar. Forðist eftirlíkingar. Þjóðkirkjan. Hrífandi lesning Munið biblíuúrvalið. Bók fyrir alla fjölskylduna. Stríð og stormar. Ástir og örlög. Hrífandi lesning. Hið íslenska biblíufélag. Hagstæð kaup Prestar! Prelátar! Kaupið messuvínið hjá okkur. Seljum uppskriftir og það sem með þarf. Fljót og góð afgreiðsla. Áman. (Undanþegin söluskatti). Fermingarþjónustan Geng í hús og fermi. Hagstæð greiðslukjör ef samið er strax. Fjölskylduafslátmr. Hef full réttindi. Ólafur Skúlason. — Skipti — Skipti Vil býtta á skíðum og fótanuddtæki. Á ennfremur auka gæmr. Tek hvað sem er uppí. Dóra. 27

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.