Fálkinn


Fálkinn - 10.01.1966, Blaðsíða 28

Fálkinn - 10.01.1966, Blaðsíða 28
Þegar hann kom til gistihúss- ins, eftir að hafa reikað um göt- urnar í um það bil klukkustund til viðbótar, gekk ítalski ráðs- maðurinn til móts við hann og sagði honum að það biði hans gestur. „Hún vildi að ég opnaði herbergi þitt fyrir henni, en ég neitaði því,“ sagði ráðsmaður- inn. „Er það kona?“ spurði Chiang undrandi. „Já, hún er þarna ennþá,“ sagði ráðsmaðurinn í lágum hljóðum og hnykkti til höfðinu í áttina að herbergi Chiangs. Chiang leit inn í dimman ganginn og sá hvar kona sat á ferðatösku fyrir framan herbergisdyr hans. Hann hraðaði sér til hennar og upp- götvaði, sér til vaxandi undrun- ar, að þetta var Aika. Hún var klædd í ljósgráa dragt, sem var lítið eitt velkt; andlit hennar var ófarðað og mjög fölt, en augnahvarmarnir rauðir og þrútnir, eins og hún hefði grát- ið. Hún stóð á fætur óðara og hún kom auga á Chiang og reyndi að neyða fram bros. „Ég biða eftir þér klukkutíma," sagði hún. Þessi heimsókn Aiku kom Chiang svo algjörlega á óvænt, að hann vissi ekki strax hvort hún gladdi hann eða vakti hjá honum óhug. Fyrst í stað var hann alvég agndofa. „Hvað hef- ur komið fyrir þig, Aika?“ spurði hann loksins og fálmaði í vasa sinn eftir lyklinum. „Þú lítur út eins og þú sért fárveik." „Ég búin að gráta í allan dag,“ sagði Aika. „Komdu innfyrir," sagði Chi- ang og opnaði dyrnar. „Segðu mér hvað kom fyrir." Aika tók tösku sína upp af gólfinu og dökku vorkápuna, sem hún hafði lagt ofan á tösk- una. Síðan gekk hún á undan Chiang inn i herbergið. „Get ég fengið að vera hjá þér í nótt?" spurði hún. „Vitanlega," sagði Chiang og tók tösku hennar og kápu. Hon- um vafðist tunga um tönn. „Fáðu þér sæti. Herbergið er lítið; þetta er aðeins svefnstað- urinn minn. Og stóllinn er aðeins einn, fáðu þér sæti í honum." Hann lét töskuna og kápuna inn í fataskápinn. Hjarta hans tók skyndilega að berjast æðislega, svo honum fannst það hlyti að heyrast um herbergið, og hann varð skjálfhentur af geðshrær- ingu. Hann reyndi að láta ekki á því bera að hendur hans skulfu með því að strjúka á sér ennið og hárið. „Hvar hefurðu verið, Aika?“ „John Larson kom hingað til borgarinnar," sagði hún og sett- ist í stólinn. „Ég veit það. Hann kom og heimsótti mig hingað í gær- kvöldi. Hann var á mjög hraðri ferð og gat aðeins staldrað við í fáeinar mínútur." „Ég var hjá honum," sagði Aika og rödd hennar var lág og hljómlaus; hún starði niður á gólfið, ósjáandi. Það var eins og allur lifsþróttur hennar hefði fjarað út. „Hve lengi varstu hjá hon- um?“ spurði Chiang eftir stund- arbil. Aika svaraði honum ekki. Hún starði enn á gólfið og andlit hennar var dauðafölt. „Herra Yee er orðinn áhyggjufullur út af þessu hvarfi þínu, eins og að líkum lætur," sagði Chiang. Honum var farið að liða illa. „Á ég að hringja til hans og láta hann vita, að þú sért komin aftur?" „Nei. Ég fer aftur heim til hans á morgun." Nú leit hún allt í einu upp og brosti. „Er það allt í lagi?" „Vitaskuld er það í lagi. En hvað gerðist? Hvar hefurðu ver- ið, Aika?“ „Ég var í San Francisco. Hér allan tímann. Áttu kannski dá- lítið vin? Við drekkum lítið vín- glas, er það ekki?" „Ég get náð í flösku. Það er áfengisverzlun hérna rétt hjá. Ég fer og næ í hana.“ Hann 13. HLUTI hraðaði sér út og keypti port- vinsflösku og tvö glös í áfengis- verzluninni, sem var í næsta húsi. Þegar hann kom inn aftur, lá Aika á rúminu hans og grét. Hann settist við hlið hennar á rúmið og horfði á hana um stund, í vafa um hvort hann ætti að reyna að segja eitthvað til að hugga hana eða bara að lofa henni að gráta í friði. Hann stillti sig um að spyrja fieiri spurninga. Líklega myndi hún ófús að ræða um stefnumót sitt við John Larson. „Hefurðu keypt vínflösku?" spurði hún og settist upp í rúminu. Chiang tók vasaklút upp úr brjóstvasa sínum og rétti henni. „Hérna, þurrkaðu þér um aug- un.“ Meðan Aika þerraði af sér tárin, hellti Chiang víni i glösin tvö. „Áfengisverzlunin er opin alla nóttina. Þú getur drukkið eins mikið og þú vilt. Ég skal drekka þér til samlætis. Þessi sætu vín hafa lítil áhrif á mig.“ Aika tók upp vinglas sitt og drakk allt úr því i einu. Chiang horfði á hana og hleypti brún- um. „Gjörðu svo vel að gefa mér meira," sagði hún og fékk hon- um tómt glasið. Chiang fyllti það aftur. „Ég ætla að kveðja ást- ina,“ sagði hún og lyfti glasinu, svo nokkrir dropar skvettust úr þvi í rúmið. „Þetta er kveðja min til ástarinnar." Hún saup aftur stóran sopa af víninu, svelgdist á og hóstaði. Svo strauk hún varirnar með vasa- klút Chiangs og hló. Chiang leið allt í einu mjög illa. „Þú drekk- ur ekki úr þínu?“ spurði hún. „Gerðu það fyrir mig. Þú sagðir þú ætlar drekka mér til sam- lætis." „Hvað hefur komið fyrir þig Aika?“ spurði Chiang. „Þú vilt vita hvað kom fyrir mig?“ spurði Aika og fékk hon- um enn tómt glasið. „Gott og vel, ég segja þér. En þú hella í glasið fyrir mig fyrst." „Það er betra fyrir þig að sitja í stólnum, Aika. Við skul- um dreypa hægt á víninu og tala saman. Ef til vill líður þér betur, þegar þú hefur sagt mér allt af létta. Komdu, færðu þig i stól- inn, hann er þægilegri." Hann hjálpaði henni upp úr rúminu og lét hana setjast í stólinn; hellti síðan fyrir hana í glasið aftur, „Þú ert góður maður, Chiang," sagði Aika. „Þú bezti maður, sem ég þekki. Ég voða leið ég get ekki elskað þig, en nú er ég dáin. Ég á enga ást lengur; ég er búin að kveðja hana. Ég kveðja ástina í síðasta skipti...“ „Látum svo vera; segðu mér nú hvað gerðist." „Ég fegin að það fór svona, Chiang. Ég fegin að það fór svona, Chiang. Ég fegin ég sagði honum sannleikann. Það er betra, miklu betra. Kvölin er styttri." „Hvað sagðirðu? Og hverj- um?“ „Éverjum? John Larson, auð- vitað, Ég sagði honum sannleik- ann. Allt um fortíð mina; hjóna- bandið, börnin mín. Hvernig ég vinna fyrir mér og börnunum minum með þvi að sofa hjá mönnum fyrir peninga. Ég sagði honum, ef hann vill enn kvænast mér, þá má hann koma aftur til gistihússins eftir sólarhring. Ég gefa honum sólarhrings um- hugsunarfrest. Hann kom ekki aftur. Og ég veit hann kemur aldrei aftur. Vegna þess, hann er eins og Michael. Allir ame- rískir menn eins og Michael. Ég veit...“ „Hver er Michael?" Þegar hann kom inn altur, iá Aika á rúminu hans og grét. Hann settist vi3 hliS hennar á rúmiS og horlSi á hana um stund, í vafa um hvort hann œtti a3 reyna aS segja eitthvaS til aS hugga hana eSa bara aS lofa henni aS gráta í friSi. Hann stillti sig um aS spyrja fleiri spurninga. Liklega myndi hún ófús aS rœSa um stefnumót sitt viS John Larson.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.