Fréttablaðið - 19.11.2009, Síða 43

Fréttablaðið - 19.11.2009, Síða 43
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2009 Ólafur Ormsson er höfundur bókarinnar Byltingarmenn og bóhemar en þar rekur hann upplifanir sínar af miklum umbrotatímum í Reykjavík á árunum 1963-1973. „Fyrir tveimur árum gaf ég út bók sem heitir Ævintýraþorpið. Það er fyrsta bindi af endurminningum mínum, fyrsta bindi af þremur, hugsa ég,“ segir Ólafur, spurður um tilurð bókarinnar. „Ég var þar að fjalla um uppvaxtarár og bernsku mína í Keflavík. Þessi bók er beint framhald af fyrri bókinni og byrjar þegar ég er fluttur til Reykjavíkur haustið 1962. Ég byrj- aði að vinna í Ríkisprentsmiðju Gutenberg í janúar 1963 og þar var mikið af róttækum starfsmönnum, sósíalistum og kommúnistum sem stundum var heitt í hamsi enda var þetta á dögum kalda stríðsins, skömmu eftir Kúbudeiluna.“ Árið 1963 var sögulegt fyrir margra hluta sakir, árið sem Kenn- edy var myrtur og Bítlarnir slógu í gegn. „Fyrsta lagið sem ég heyrði var She Loves You, sem hafði mikil áhrif á mig og ég varð mikill að- dáandi,“ segir Ólafur og bætir við: „Það var svo mikið að gerast úti í heimi á þessum tíma og verið að endurmeta gömul gildi. Ég kom frá Keflavík, frekar hægrisinnaður, hliðhollur hernum og litaður af umhverfinu þar en í Reykjavík var allt þetta að gerast og ég varð fyrir gríðarlegum áhrifum. Skemmst er frá því að segja að ég gekk í Æsku- lýðsfylkinguna vorið 1964.“ Ólafur tók þátt í átökum Æsku- lýðsfylkingarinnar í tengslum við mótmæli gegn Víetnamstríðinu ásamt fjölda fólks sem síðar átti eftir að vera áberandi í þjóðlíf- inu. Þar á meðal voru Kári Stef- ánsson, Vernharður Linnet, Birna Þórðardóttir og Ragnar Stefáns- son, sem var forseti fylkingarinn- ar. Í bókinni rekur Ólafur sögu þessarar mótmælahreyfingar en segir líka frá bóhemum sem settu svip sinn á bæinn og ýmsu skondnu og skemmtilegu sem dreif á daga hans á þessum umbrotatímum, jafnt á Íslandi sem annars staðar í heiminum. Mótmælahreyfing á umbrotatímum Ólafur Ormsson var í hringiðu mótmæla sjöunda áratugarins og féll fyrir Bítlunum við fyrstu hlustun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sífellt færist í vöxt að þekkt íþróttafólk sendi frá sér ævisögur sínar, enda hafa sumar þeirra notið fádæma vinsælda. Hluti af ástæð- unni gæti verið sú að téðir íþrótta- menn eru oftar en ekki í játninga- gírnum í bókunum, segja í fyrsta sinn opinberlega frá einhverju sem gæti valdið umtali og jafnvel hneykslun. Bækurnar verða víst að seljast. Spánnýtt dæmi er ævisaga bandaríska tennis-undrabarnsins Andre Agassi. Í ævisögu sinni, sem kom út fyrir skömmu o g b e r hinn skondna orða- leikstitil Open, segir Agassi frá því að hann hafi notað eiturlyfið metamfetamín árið 1997, og í kjölfarið fallið á lyfjaprófi sem Alþjóðatennissambandið stóð fyrir. Agassi náði að ljúga sig út úr vandræð- unum, en opinberunin hefur vakið miklar um- ræður um eiturlyfja- notkun íþróttafólks. Ekki minni at- hygli vakti sjálfsævi- saga breska körfu- knattleiks mannsins Johns Amaechi, sem lék í mörg ár í banda- rísku NBA-deildinni með Orlando, Utah og Cleveland. Bókin, Man in the Middle, kom út árið 2007. Þar greinir Ama- echi frá því að hann er samkynhneigður. Þetta var í fyrsta sinn sem fyrrverandi leikmaður í deildinni opinberar samkynhneigð sína, og hafa margir fyrrverandi liðsfélagar Amaechis brugðist ókvæða við. Aðrir lofa leikmanninn fyrir hug- rekki. Einn af eftir minnilegri köfl- um bókarinnar segir frá því þegar Amaechi óttaðist að hafa komið upp um sig í sturtuklefanum eftir leik, þegar hann gleymdi sér og hóf að söngla lag með hljómsveit- inni The Carpenters. Eftir á þakk- aði Amaechi sínum sæla fyrir að liðsfélagarnir lögðu ekki dýpri skilning í uppátækið en raun bar vitni. - kg Íþróttafólk leysir frá skjóðunni Ævisaga Andre Agassi hefur vakið mikla athygli, en þar greinir hann meðal annars frá eiturlyfjaneyslu sinni. John Amaechi kom út úr skápnum í ævisögu sinni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.