Vikan - 07.12.1967, Blaðsíða 68
PAÐ ER STAÐREYND,
að PLASTINO er búin öllum
kostum góðrar gólfklæðningar
Að ofan er PVC (sterk)
Að neðan er KORKUR (mjúk)
Að auki er hún frá DLW (vönduð)
Fæst í mörgum litum og mynztrum
í öllum góðum sérverzlunum
um land allt
Husgögnin
fáið
þér hjá
VALBJORK
á blöðin, sem þú lest í kirkjunni á
jólunum?
Nú þagði hann bara, pabbi, og
horfði ofan á hendurnar á sér, held
ég, og mér sýndist hann eitthvað
svo, — æ, ég veit ekki hvernig. —
Mér fór að detta í hug, að hann
væri lasinn, og svo fór ég að færa
mig fram að dyrunum. En þá leit
hann upp, og svo sagði hann, og
nú heyrðist mér hann barasta glað-
ur:
— Nei, þú ferð nú ekki alveg
strax. Eg verð að tel|a peningana
fyrst.
Svo taldi hann þá og sagði við
mig:
— Það eru bara — |a, hvað sagði
hann nú? Já, hann sagði það, sagði,
að það væri rúmar fjögur hundruð
krónur. — Og börnin eru tuttugu,
sagði hann. — Ég held þau geti þá
ferigið myndarlegar |ólag|afir . . .
og eitthvað læt ég nú líka.
Svo stóð hann upp og gekk til
mín og sagði, að ég væri góður
drengur, og hann tók í höndina á
mér og þakkaði mér fyrir. Ég þakk-
aði sömuleiðis og sagði, að hún
Dísa hefði nú verið með mér.
— Hvaða Dísa?
— Hún Dísa hans Sigurvins, sagði
ég.
— Ja-á, sagði hann sí svona. —
Ég bið þig að skila þakklæti og
heilsun til hennar og til pabba þíns
og mömmu.
— Ég bið líka að heilsa, sagði
ég. — Og þau biðja að heilsa.
Og svo kvaddi ég hann, og hann
kyssti mig þá barasta á ennið, —
pabbi.
En þegar ég var kominn fram
að dyrunum, þá mundi ég eftir dá-
litlu, og ég sneri mér svo við og
sagði:
— Heldurðu, að þú vildir gera
svo vel að láta mömmurnar þeirra
fá jólagjafirnar og biðja þær að
segja þeim, að þær séu frá þeim
og pöbbunum þeirra?
Nú varð hann enn þá eitthvað
svo einkennilegur, og þá sagði ég,
— já, ég sagði eins og við þig í
dag, að börnum þætti vænna um
það, sem þau fengju, þegar það
væri frá mömmu þeirra og pabba.
Og hvað heldur þú svo, pabbi, að
hann hafi gert? Hann kom aftur til
mín, og hann beygði sig og horfði
framan í mig, og mér sýndust bara
tár í augunum á honum.
— Guð blessi þig, sagði hann,
og það var nærri þvf eins og hann
væri kominn í kirkju — svoleiðis
var hann í rómnum, pabbi.
Og nú kemur skrítið. Mér fannst
ég allt í einu orðinn eitthvað svo
syfjaður og þreyttur, og mig lang-
aði næstum þvf til að sofna þarna
hjá honum, og svo spurði ég hann
bara:
— Heldurðu, að Jesús segi nú
nokkuð við því, þó að ég lesi ekki
allar bænirnar mínar í kvöld, já,
bara signi mig? Ég er svo hræddur
um, að ég eigi bágt með að halda
mér vakandi. Ég er víst eitthvað
lúinn, held ég.
Og hvað heldurðu, pabbi? Hann
Vinsælasta
úlpan í dao!
IEHI
nylonúlpan með loðkantinum.
NÝ TÍZKA
NÝTT SHIÐ
ÚlDokánur dr
kamelull
Fóst í verzlunum og
kaupfélögum um allt land.
f Reykjavík:
Teddybúðin, Laugavegi 31.
Verzl. Fffa, Laugavegi 99.
Verzl. Kotra, Skólavörðustfg 22.
Sími 31050, Bolholti 4 (4 hæð).
68 VIKAN-JÓLABLAÐ