Vikan - 29.01.1970, Blaðsíða 9
Þær eru allar mjög falleg-
ar stúlkur, og það verður
enginn svikinn, sem lendir í
þeirra höndum. Þær eru jafn
færar í „hjálp í viðlögum“
og í snyrtingu, Og i neyðar-
tilfelli geta þær lagt að velli
sterkustu karlmenn, svo það
getur lílca verið varhugavert
að gerast nærgöngull við þær.
„Hjálp í viðlögum“ og
snyrtingu læra þær hjá Sus-
ann Kattoll (sem er í miðj-
unni á efstu myndinni og til
vinstri á myndinni í miðið),
en þær læra að verja sig hjá
þekktum judomeistara.
Susann Kattoll var áður
stjörnufyrirsæta, en nú er
liún fyrirliði þýzku flugfreyj-
anna, sem kalla sig „rauðu
sveitina“. Hún kennir stúlk-
unum sjálf í einkaskóla sín-
um, og býr þær undir þetta
óskastarf allra ungra stúlkna.
Skólinn er strangur og allar
reglur i félagi þeirra mjög
strangar. Námskeiðin talca
venjulega tvo mánuði, og
fyrir stúlkur sem stunda ein-
hverja atvinnu á daginn eru
kvöldnámskeið. Nemendur,
sem auðvitað þurfa að hafa
almenna fræðslu, til að fá
inngöngu í skólann, læra um-
gengnismenningu, þjónustu-
störf, snyrtingu, hjálp i við-
lögum, og þessutan judo og
karate. Það er skilyrði fyrir
inngöngu í skólann að þær
séu vel að sér í tungumálum.
Ef þær siandast öll sin próf
fá þær líka skemmtilega
vinnu og vel launaða, 50—100
iriörk á dag. Það er mikils
virði að fá góð meðmæli frá
Susann Kattoll.
Flugfreyjunum er þröngur
stakkur skorinn í umgengni
við flugfarþega; daður er
bannað í vinnutímanum,
sömuleiðis drykkja áfengra
drykkja. Ivoss er brottrekstr-
arsök. Þótt rauðu flugfreyj-
urnar séu kaldar, sér Susann
Kattoll um að flugfreyjur
hennar séu aldrei látnar vera
einar.
s. tbi. yiKAN 9