Menntamál - 01.03.1951, Side 39

Menntamál - 01.03.1951, Side 39
MENNTAMÁL 31 fram milli kennarans og nokkurra nemenda, meðan á til- raun stendur. Góður kennari drepur ekki þann ofvænisneista, sem kveiltir áhuga og er falinn í hverri tilraun, með því að gefa fyrirfram vitneskju um niðurstöðu tilraunar. Ef til vill segir hann nemendum ekki einu sinni, hvað hann gerir, heldur lætur þá sjálfa komast að raun um hvorttveggja, bæði það, sem hann gerir, og verkanir þess. Síðan getur hann heimtað skriflega eða munnlega lýsingu tilraunar- innar. Ef hann leggur hinar leiðbeinandi spurningar sínar fyrir, meðan á tilraun stendur, hagar hann þeim þannig, að þær reyni á hæfileika nemenda til að athuga og hugsa, og hann hagar hverri einstakri spurningu þannig, að hún sé hæfilega þung eftir þekkingarstigi nemenda. Ef of fáir nemendur svara, veit hann, að spurningin er of þung, aftur- kallar hana og leggur aðra léttari fyrir. Spurningar kenn- arans verða að vera vel orðaðar, og það skiptir miklu, að hann heimti nákvæm og vel orðuð svör af nemendum. Það er vandasöm list að prófa rétt, og líklega nær enginn fullkomnun í henni, en með stöðugri umhugsun og raun- hæfri vinnu að því að laga prófunaraðferð sína getur kenn- ari gert mikið til þess að bæta um hana. Aldrei þekkist góður kennari betur en þegar hann prófar.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.