Menntamál


Menntamál - 01.08.1971, Blaðsíða 6

Menntamál - 01.08.1971, Blaðsíða 6
Þessar breytingar hafa allar meiri og rninni áhrif á framkomu barnanna og getu. Hreyfiþörf Jieirra er gífurleg. Þess vegna eru þau oft fyrir- ferðarmikil og hávaðasöm, enda eiga J)au erfitt með að sitja kyrr til lengdar. Þau J)urfa mikið leikrými bæði úti og inni. Þau hafa ríka Jaörf fyrir félagsskap með jafnöldrum sínum og una Jrví ekki lengur eingöngu í skjóli heimilisins. Þau þurfa að öðlast víðari sjóndeildarhring og losna dálítið úr tengslum við heimilið. Enda Jsótt viðhorf Jteirra til viðfangsefna auðkennist enn mjiig af leikhneigð þeirra, fer verkviðhorfið að ryðja sér til rúms. Þau geta smám saman farið að vinna markvisst að viðfangsefnum. Leikurinn einn næg- ir Jreirn ekki. Á Jiessum aldri þurfa börnin á margvíslegum verkefnum að halda. Þau þurfa að sjá eitthvað eftir sig, })au Jjurfa að skapa eitthvað, leysa ein- hvern áþreifanlegan vanda, glíma við viðfangs- efni. StarfsJjrá Jjeirra og leikjrörf er gífurleg. Fróðleiksfýsn þeirra er takmarkalaus, spurning- arnar óteljandi. Þau vilja vita bókstaflega allt. ,,Ég vildi að ég vissi allt og kynni allt og ætti að hafa eitthvað undir morgundaginn,“ sagði 6i/i> árs gömul vinkona mín og mælti áreiðanlega fyrir munn margra jafnaldra sinna. Ljóst er, að venjuleg borgarheimili eru ekki nægur vettvangur fyrir hin athafnasömu, félags- lyndu og fróðleiksfúsu 6 ára börn með allri Jjeirri orku og hreyfiþörf, sem );au hafa yfir að ráða. Þau skortir tilfinnanlega verkefni og athafnasvæði. Þau Jjurfa stærra verksvið en heimilin geta veitt, ef J)au eiga að ná eðlilegum Jjroska og njóta sín. II. Uppeldisleg markmið forskólabekkja í umræðum og blaðaskrifum, sem fóru fram áður en 6 ára deildum var komið á fót í barna- skólum Reykjavíkurborgar, kom oft fram sú skoð- un, að eðlilegast væri að lækka skólaskyklualdur- inn niður í 6 ára, færa námsefni 7 ára bekkjar niður í 6 ára bekk. En slíkt má ekki ske. Starf- semi 6 ára deildanna tel ég að eigi að hafa miklu víðtækara markmið en að kenna að lesa, skrifa og reikna. Barnið sjálft og persónujrroski Jæss á MENNTAMÁL 112 að vera höfuðviðfangsefni forskólabekkjar, ekki ákveðnar námsgreinar. Markmiðið tel ég vera að efla alhliða Jjroska barnsins, Jj. e. að efla til- finninga-, félags-, hreyfi-, verk- og vitjjroska Jjcss. Til Jjess að unnt sé að ná slíku markmiði að ein- hverju leyti, tel ég nauðsynlegt, að leikskólastarf- semi sé ríkjandi Jjáttur í starfi 6 ára deilda. Með Jjví móti er vænlegast að efla alhliða Jjroska barns- ins og búa Jjað þannig undir kerfisbundið nám barnaskólans. Með Jjví að skapa börnunum fræðandi og vekjandi umhverfi og veita Jjeim alhliða fóstrun og handleiðslu í leik og starfi, tel ég, að unnt verði að jafna að einhverju leyti uppeldisaðstöðu Jjeirra. Börnin koma frá margvíslegum og misgóð- um heimilum og hafa m. a. Jjess vegna haft ólík og misjafnlega góð skilyrði til Jjroska. Hér er ekki átt við hversu langt Jjau eru kornin að stafa eða draga til stafs, heldur miklu freniur hversu Jjau eru Jjroskuð almennt, t. d. tilfinningalega og félagslega. Kostirnir við að gefa börnum tækifæri til að ganga í barnaskólann, áður en skyldunámið hefst, eru margir. Börnin fá tækifæri til að kynnast skól- anum sínum smám saman, Jj. e. skólahúsinu, leik- vellinum og kennurunum, og laga sig eftir skóla- haldi að vissu marki, áður en þau Jjurfa að lúta kröfum hins formlega náms. Þau kynnast leið- inni í skólann í fylgd með foreldrunum. Hér er gullið tækifæri til Jjess að koma á raunhæfri um- ferðarkennslu. Upphaf skólagöngunnar 'er oft mikið álag á við- kvæm börn og vanjjroska og getur orðið barninu og námsjjroska Jjess örlagaríkt. Mistök í upphafi skólaferils geta haft varanleg áhrif á sálarlíf Jjess og afstöðu Jjess til skólans og námsins í heild. Vitað er, að mikið af tímanum í 7 ára bekk fer í að venja börnin við hóplífið og skólaagann. Þessi tími, sem fer í félagslega aðlögun, dregur úr Jjeim tíma, sem ella mætti verja til venjulegrar kennslu. Sum börnin læra mjög lítið í 7 ára bekk, vegna Jjess að þau njóta sín ekki í hinu bundna sniði kennslunnar. Þau geta ekki setið kyrr, kunna ekki að hlusta eða einbeita sér, skilja ekki leið- beiningar kennarans, skortir orðaforða, málskiln- ing og þroska til að fylgja hópfyrirmælum og

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.