Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1973, Blaðsíða 40

Æskan - 01.12.1973, Blaðsíða 40
ungjöf, og einnig sagðist hann vilja gefa fátækum borgur- um nokkurt fé. Þegar soldán heyrði þetta, lét hann kalla Marúf fyrir sig og sagði við hann: „Kæri vinur, ekki skal brúðkaupið þurfa að bíða vegna fjárskorts þíns. Gerðu svo vel, hér er lyklllinn að fjárhirzlu minni, og notaðu hana eins og þú vilt. Þú getur endurgreitt mér, þegar lestin þín kernur." Brúðkaupsveizlan stóð í 40 daga. Marúf lét leikhúsin standa opin öllum almenningi og fátæklingum ókeypis. Bumbur voru barðar og hörpur slegnar árdegis alla þessa daga, til þess að minna á brúðkaupið. Marúf varð vinsæll, einkum meðal fátækra, þvi að hann var örlátur á gjafir, sem raunar voru allar teknar úr fjárhirzlu soldáns. Sjálf hjónavígslan fór fram á 41. déginum og var hún hámark hátfðahaldanna. < Um kvöldið, er þau voru tvö ein, Marúf og prinsessan, gerðist hann dapur i bragði, og spurði prinsessan, hvað að honum amaði. „Ég hef enga morgungjöf handa þér, því að lest mín er ennþá ókomin.“ „Það skaltu ekki láta á þig fá,“ mælti hún. „Við skulum enn halda veizlu I 20 daga og gleðjast með öllum íbúum þessarar borgar." Þetta gerðu þau, en á 21. degi eftir brúðkaupið kom skattmeistari soldáns til húsbónda sins og tilkynnti hon- um, að nú væri fjárhirzlan að verða tóm. Soldán fór nú að gruna margt og sama dag tók hann dóttur sína tali: „Nú skalt þú, dóttir góð, komast að því, hvort Marúf segir satt, eða hvort hann hefur verið að blekkja mig. Sé svo, skal hann engu fyrr týna en llflnu." Prinsessunni var farið að þykja mjög vænt um mann sinn og sagði honum þvf allt af létta, þegar hann kom heim um kvöldið. „Jú, góða m(n,“ sagði Marúf. „Það rétta er, að ég er eng- Inn kaupmaður og alls ekki ríkur. Ég er bara venjulegur skósmiður frá Ka(ró.“ „Þá verður þér ekki bjargað nema á elnn hátt. Þú verður að flýja land um tima, en þegar faðir minn, sem nú er orð- Inn gamall maður, deyr, þá skal ég senda þér boð um að koma helm aftur. Ég á hér 50 þúsund dlnara, sem þú mátt fá til ferðarinnar." Marúf fór að ráðum konu sinnar og flýði strax næstu nótt. Morguninn eftir sendi soldán boð eftir dóttur sinnl og spurði hana frétta. Hún sagði, að maður hennar hefði fengið bréf um það, að stigamenn hefðu kyrrsett lest hans og krefðust þess, að hann greiddi allhátt lausnargjald. i nótt hefði hann því farið af stað til þess að kippa þessu ( lag. Þessar fréttir róuðu soldán, enda fékk hann nú aftur betra álit á tengdasyni sínum. Nú er að segja frá Marúf. Hann þeysti á hesti sínum burt frá borginni aila nóttina og til hádegis næsta dag. Þá stanzaði hann hjá bónda nokkrum, sem var að plægja akur sinn. Þar tóku þeir tal saman, og bauð bóndi Marúf að borða hjá sér. Sagðist bóndi þurfa að skreppa til borg- arinnar ( áríðandi erindum og bauð þá Marúf honum, að hann skyldi plægja fyrir hann á meðan bóndi væri ( burtu. Varð bóndi glaður við og hélt á brott, en Marúf tók til við plóginn. Gekk allt vel hjá honum, þar til allt f einu, að plógurinn festist ( einhverju. Fór nú Marúf að gæta að því, hvað þarna væri til fyrirstöðu og sá fljótt, að plógnefið sat fast í gylltum hring, sem var fastur ( marmaraplötu. Marúf fékk lyft plötunni, og komu þá í Ijós þrep, sem lágu niður í jarðhýsi. Þar var fagurt um að litast, því að allt glóði í gulli og demöntum. Marúf tók af tilviljun eina öskj- una, sem þarna var, og opnaði hana, en ( henni lá inn- siglishringur. Þegar Marúf snerti hann, birtist þegar andi, fremur góðlegur á svip, og spurði, hvers hann óskaði. „Getur þú flutt alla þessa dýrgripi upp á yfirborð jarðar?“ spurði Marúf. „Ekkert er auðveldara en það,“ svaraði andinn. Og ( sama bili sá Marúf marga vaska sveina bera góssið upp í tágakörfum. Því næst óskaði Marúf eftir 100 klyfjum af dýrmætum vörum frá Indlandi, Persíu og Grikklandi, og þar að auki óskaði hann eftir stóru tjaldi. f því svaf hann svo um nóttina. I dögun kom bóndinn aftur og féll nú hreint ( stafi yfir öllum þessum auðæfum. Þegar Marúf hafði etið góða mál- tíð hjá bónda, fyllti hann disk með gullpeningum og gaf bónda, en hann flýtti sér heim til konu sinnar með auðæfin. Nú óskaði Marúf sér 150 úlfalda og 150 hesta til þess að mynda ríkmannlega lest, og síðan sendi hann tengdaföður sfnum boð um það, að hann kæmi með lest sína til borg- arinnar daginn eftir. Það var mikið um að vera, þegar lestin nálgaðist borgar- hliðin. Fremstur fór Marúf I burðarstól, og sjaldan höfðu sézt eins glæsileg burðardýr eins og hestar hans og úlf- aldar. Við höll soldáns var numið staðar, og voru þar meðal annarra kaupmenn og ýmsir heldri borgarar. Marúf sá þar á meðal sinn gamla vin Alí, og ætlaði sá varla að trúa sínum eigin augum. Þegar þjónarnir höfðu borið inn kisturnar þungu og klyfjarnar, lét Marúf það verða sitt fyrsta verk að greiða upp allt það, sem hann skuldaði kaupmönnunum og soldáni, svo að fjárhirzlan fylltist á ný. Soldán gerði Marúf að fjár- málaráðherra sfnurh. Liðu nú t(mar fram, og þar kom, að gamli soldáninn andaðist á sóttarsæng og var jarðaður með mikilll viðhöfn. Þá var það, að borgarbúar ‘kusu ein- róma Marúf til þess að taka sæti hans — hásætið. KÁPUMYND A síðustu tölublöðum ÆSKUNNAR hafa blrzt isienzKar mynair, sem aiiar nara ..... Gunnarí Hannessyni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.