Kyndill - 01.03.1928, Blaðsíða 5

Kyndill - 01.03.1928, Blaðsíða 5
K YNDILL 3 mál íslenzkra æskumanna, hafa lokað aug- unum fyrir öllum þeim sterku rökum, sem styðja málið. Aðalástæðan fyrír því að þeir feldu frumvarpið var því að eins sú, að fylgja íhaldinu einstaka sinnum, til að láta vel að Jóni Þorlákssyni og öðrum íhaldsherrum, sem eru spellvirkjar í íslenzku þjóðlífi- Þeir hafa hugsað sér að hér væri ekki stórmál á ferðinni og Trygtgvn yrði ekki vondur þó þeir færu í blinclingsleik, rétt einu sinni, með íhaldinu; og þeir gerðu það og Tryggvi varð ekkert vondur, og Jónas ekki heldur. Það þýðir ekki að áfellast íhaldið fyrir það, þó það berjist gegn réttar- og menn- ingar-bótum, því slfk verk eru sköp þess, en þegar m.enn, sem telja siig fylgjandi samr vinnustefnunni og flagga við öfl tækifæri með andstöðu sinni við íhaldið, svikja seo hrapallega málstaðinn, sem hcr varð raun á, þá er það fyllilega réttmætt að tukta þá til. Og það er hægt að segja íhaldinu til hróss, að það er ekki huglaust. Það þorir þó að kannast við ósómann, bæði nafnið og verkin sín, en það þorir Guðmundur Ólafsson og Einar á Eyrarlandi ekki; þeir eru huglausir og þ\rí aumkunarverðix. Margir ungir m:nn hafa hingað til trúað að „Framsóknar“-flokkur:nn myndi vera fær um að hrinda íhaldsbjarginu að einhverju leyt: af herðum íslenzku þjóðarinnar. Þeir hafa trúað því, að gamla vininum þeirra, sem stóð hreinn og beinn og var heill en ekki hálfur meðan hann var ungur, myndi fakast að sýna flokknum, sem hann tók sér stöðu í, að nýi tíminn krefst þess, að garo- alt og úrelt víki fyrir öðru betra, og frelsi og jafnrétti, samvinna og jafnaðarstefna eigi að koma í stað smakeppni og olnbogaskota. En þeir hafa orðið fyriir sárum vonbrigðumJ Ihaldssinnaðir karlar, sem lítið hafa lært af þeim sannindum, sem til hafa orðdð síðustu 30 árin, vilja fá að ráða og gera „uppsteit". Jónas greiddi atkvæði með frumvarpinu, það má hann eiga. Ihaldið rægir hann og segir hann vera jafnaðarmann. Ég trúi því ekkl aá hann sé jafnaðarmaður, því sá, sem er ekki með, hann er á mótí, og Jónas er í „Framsóknar“-flokknum, en ég i Al- þýðuffokknum. En eitt er víst, Jónas er beztur af þeim, sem til „Framsóknar" telj- ast, en hann er að hrapa. Hann er að gleyma hugsjónunum og alt hans starf gengur út á að reyna að halda ósamstæðum og illa skipulögöum hrófatildursílokki saman. En það verk er unnið fyrir gýg. Allir milliflokk- ar eru dauðadæmdir, og það sætir furðu, að <lónas skuli ekki vita þetta. Ég er sveitamaður, og ég er samvinnumað- ur af því ég er jafnaðarmaður, en ég tel mig ekki „FramsóknaT“-mann eins og Einar og Guðmundur, Sveinn í Firði og Halldór Stef- ánsson, Tryggvi og Hannes Jónsson. Ég er framsóknarmaður af því ég er jafnaðarmað- ur og enginn getur verið framsækinn ef hann er ekki jafnaðarmaður. Afturhaldið í báðum stóru flokkunum liefir drepið það mál, sem æskumenn |>essa lands vildu fá fram, en við skulum svo sannarlega, sem við erum ungir menn, muna þkn þaðj Við heimtum hreint borð. Alt íhald á einum stað. Og ég segi við þá „Tíma“-menn, sem þurfa endilega að vera að daðra við íhaldið: Snáfið þið í bælið hans Jóns Þorlákssianar og Stór-Dananna! íslenzkir æskumenn til sjávar og sveita! Fylkið ykkur undir merki ungra jafnaðar- manna. Þeir eru yngsta herdeild Alþýðut flokksins og það er eini flokkurinn, sem nokkurt vit er í, og sem hægt er að starfa fyrir og með. Ungur jafnaðarmadur. Starf og stefna. Um leið og „Kyndill“, blað F. U. J., heft ur göngu sína, væri sizt úr vegi, að það flytti ungum jafnaðarmönnum um la.id alt fréttir af félaginu og helztu ætdunarvarik- um þess í náinni framtíð. Félagið er stofnað 8. nóv. f. á., oig voru stofnendur um> 30 piltar og stúlkur á aldr- inum 14—25 ára. Svo mjög hefir það vaxið á þessum stutta tínia, að nú telur það 130 meðlimi, og sýnir þessi öri vöxtur, hve rik ítök jafnaðarstefnan á í hugum hinnar vax- andi kynslóðar. Eins og gefur að skilja, hefir höfuðstarf félagsins, það sem af er beinst að félagsmálum innbyrðis, enda ber að leggja ríka áherzlu á, að skipuleggja það svo vel, sem auðið er, því fyrr er ekki stórra skrefa að vænta. Heizta átu- mein flestra félaga hefir jafnan verið á> hugaleysi það, sem ríkt hefir yfir allmikl- um hluta félagsmanna. Menn hafa gengið í félögin, en oftlega sýnt lítinn skilning á því, hverjar skyldur þeim ber að rækja gagnvart þeirri hugsjcn, er þeir hafa svar- ið fylgi, um leið og þeir gerðust meðf- limir. Einna átakanlegast hefir þetta konn- ið fram í slæmri fundarsókn, og he-fir það jafnan reynst svo, að mikiill hilutii félags- manna hefir dregist aftur úr í allri síarf- semi, hætt að sækja fundi og látlð sér á sama standa um framgamg félagsins. Til þess að koma i veg fyrir að silíkt ætti; sér stað innan F. U. J.L, hefir fólagiinu veiV ið skift í 10 manna flokka, og eru tveár flokksstjórar fyrir hverjum flokki. Flokks- stjórarnir halda síðan fundi hver með sín- um flokki einu siinni i viku, og eru þar lesin og rædd ýms rit um jafmaðanstefri- una. Framvegis mun hver flokkur taka á- kveðinn hluta af upplagi blaðsins til sölu, og flokksstjórar innheimta félagsgjöld hver innan síns flokks. Með þessu fyrirkomu!- lagi er margt fengið. Innheiimtustarf gjald- kera er umsvifaminna og meiri trygging fyrír skilvísri greiðslu félagsgjalda. Ef blað- ið á að geta borið sig, svo vel sé, og ná mikilli útbreiðslu, þarf það að eiga öfluga talsmenn, og hygg ég að það sé fengið með því, að láta félagsmetin sjálfa annast söluna.i Það er því trú mín, að þetta verði aflmesta lyftistöng félagsins í framtíðdnni, ef alt fer eins og .ráðgert er. Fundir hafa verið haldnir einu sinni í hálf- um mánuði, og hafa þeir \'Oriö mjög skejntiV legir. Ymsir af helztu mönnium Alþýðu- flokksins hafa flutt erlndL um jafnaðajistefn- una, og er svo ákveðið, að þannig verði í framtíðinni. Þá mun ótalin sú líðveizla, er félagið Iét í té við síðustu bæja'rstjórnari- kosningar, og mun óhætt að fullyrða, að aldrei hafi Alþýðuflokkurinn haft mei.ru rié betra liði á að skipa. Það er því bersýrií- legt, að félagtið getur, ef engin ófyrérsjáan- leg óhöpp hendsa, oröið það afl, sem roest greiðir götu jafnaðarstefnunnar á Islandi. Stefna F. U. J. er sú hén sama o,g annarai jafnaðarmanna um allan heim: að rífa hdð gamla og feyskna þjóðskipulag niður tij grunna, en byggja annað nýtt og betra. Minnist þess allir æskumenn í instu af- dölum og á ystu annesjum, að jaínaðárstefn- an er lausnin á gátunni miklu, sem mamy- kynið hafir glimt vi,ð frá því sögur hóíustj Ykkar er framtíðin og ykkar er mátturinn til þess að gera þann draum að veruleika, sem hina ágætustu menn veraldarinnar heftr dreymt um tugi ára. Á. P. Afleiðingar samkeppnisskipulagsins. Vöntun samkeppnisfyrirkomulagsins á sk.ipulagi og reglu er svo auðsæ, að allir koma auga á hana. Alls staðar, hvar sem litið er, rikir sama óreglan í atvinnuháttum og framleiðslu, sami óróinn í andlagum mál- um, þjóðmálum, trúmálum, í aillri mentun, og sama óreiðan á allri stjórnsemi og for- stöðu. Þetta ástand er eðlileg afileiðing af orsök, og orsökin er samkeppnin og oln- bogaskotin, gróðafíknin og vaWabaráttan, þar sem eins upphefð er annars niðurlæg- ing, sífeld miskunnarlaus og harðsvíruð barátta allra gegn öllum. Meðan framleiðslan og framboðið miðast eingöngu við ágóða, eigum við sífelt þá hættu yfirvo.fandi, að framleiöslan stöðvist, byrji aftur og stöðvist, og það sama endur- taki sig aftur og aftur. Yfir okkur dynji kreppur og skjálftar í atvinnulífinu, sem eru það verri en jarðskjálftar og önnur náttúru- fyrirbrigði, sem koma af stað tjóni, að þau standa skamma stund, að þeir pína mann í ára raðir og sprengja síðasta blóð.dropann úr atvinnulausri alþýðu. Kreppurnar í atvinnulífi vor islendinga eiga enn þá minnisvarða sinn ómáðan í menningu vorri. Tannaförin eru auðsæ. En þó hafa atvinnukreppur annara landa haft verri afleiðingar. Flakkandi, hei.mil islausi alþýðulýðuriinn er sorglegasta myndin. Strið- ið síðasta, sem var bein afleið ng samkeppnt- isskipulagsins, var kreppa, en sú kreppa hafði enn ægilegri kreppu í för með sér.

x

Kyndill

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kyndill
https://timarit.is/publication/386

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.