Skírnir - 01.01.1924, Page 10
2 Dr. Jón Þorkelsson þjóðskjalavörður. [Sklrnir
Móðir séra Þorkels á Staðarstað var Guðrún dóttir þjóð-
Bkáldsins séra Jóns Þorlákssonar á Bægisá (f 1819) og
konu hans Margrétar Bogadóttur úr Hrappsey Benedikts-
sonar, föðursystur Boga Benediktssonar á Staðarfelli. Var
dr. Jón ekki heitinn eptir séra Jóni Þorlákssyni, sem
margir munu hafa ætlað, heldur eptir Jóni Þorsteinssyni
(Thorsteinsen) landlækni (f 1855), er var alúðarvinur for-
eldra hans, og á heimili hans höfðu þau fyrst kynnzt
hvort öðru, þá er Þorkell varð þar heimiliskennari 18421).
En fyrsta kona Boga í Hrappsey og móðir Margrétar var
Þrúður Bjarnadóttir hins ríka á Skarði Péturssonar,.
er í beinan karllegg var kominn af Staðarhóls Páli og
Svalberðingum. Minntist dr. Jón opt á »þann mæta mann^
Staðarhóls Pál forföður sinn, og hafði gaman af að rifja
upp kringilyrði hans og tiktúrur. Faðir séra Jóns á Bægisá
var Þorlákur prestur í Selárdal, gáfumaður, en brokkgeng-
ur nokkuð, og missti prestsskap (f 1773)2) Guðmundsson
prófasts í Selárdal (f 1738) Vernharðssonar prests í Stóra-
Laugardal (á lífi 1703) Erlendssonar, en móðir séra Þor-
láks var Margrét Arngrímsdóttir Jónssonar í Sælingsdals-
tungu Arngrímssonar prófasts hins lærða á Melstað (f 1648)
Jónssonar. — Móðurkyn dr. Jóns var sízt ógöfugra en
föðurkynið. Móðir séra Páls í Hörgsdal, móðurföður hansr
var Ragnheiður Guðmundsdóttir klæðalitara í Þormóðsdal
Sæmundssonar á Kjallaksstöðum (f 1749; Þórðarsonar pró-
fasts á Staðarstað (f 1720) Jónssonar biskups á Hólum
(f 1690), Vigfússonar sýslumanns á Stórólfshvoli (f 1647)
Gíslasonar lögmanns í Bræðratungu (f 1631) Hákonarson-
ar sýslumanns í Klofa (f 1608) Árnasonar sýslumanns á
Hlíðarenda (f 1587) Gíslasonar á Hafgrímsstöðum Hákon-
‘) Á þeim árnm (1842—1844) kenDdi kann þar nndir skóla dr. Guð-
brandi Vigfússyni, og kostaði bann þá að öllu leyti við námið, en þeir
vorn systkinaaynir og alúðarvinir alla œfi upp þaðan. Hygg eg, að dr.
Jón hafi motið bann mest allra ættingja sinna, og lét son sinn heita í
höfuðið á konum (1888). Verður siðar vikið nánar að kynnum þeirra
frændanna.
a) Sbr. visu séra Jóns um föður sinn: »Séra varð og seignieur
og seinast tómnr Þorlákur«.