Skírnir - 01.01.1937, Page 131
Grímur Thomsen og Byron.
Eftir Richard, Beck.
Gagnrýnendur greinir á um listgildi ljóða Byrons. Um
víðtæk áhrif hans eru allir, hinsvegar, á einu máli. Af
■enskum skáldum, fyrr og síðar, mun Shakespeare einn
saman hafa haft víðtæk^ri áhrif og dýpri. Þess ber þó
jafnframt að gæta, að áhrifin af skáldskap Byrons urðu
með miklu skjótara hætti heldur en áhrifin af ritum Shake-
speares, þó stórfelldnri séu og djúpstæðari.1)
Það er heimsborgarabragur á skáldskap Byrons og
lífsskoðun hans, hyronskunni (Byronism), sem svo hefir
verið nefnd; hún á algildi í ríkum mæli. Ljóð hans og lífs-
borf eru óvenjulega mannleg, og fundu því á skáldsins
tíð, og finna enn, bergmál í brjóstum manna víða um lönd.
Enda kennir áhrifa frá Byron í ljóðum skálda um gjör-
valla Norðurálfu, og það ósjaldan meiri háttar skálda; og
býðingar af ritum hans urðu jafnvíðförlar.2)
Annarstaðar hefi eg leitt rök að því, að áhrif hans
ttáðu einnig til Islands, og tilfært mörg dæmi þess.3) Með-
■al aðdáenda hans í flokki skálda vorra á Grímur Thomsen
sérstöðu, og er því meir en verðugt, að athuga þá hliðina
á skáldskap hans og ritstörfum. Hann var brautryðjandi
í Byron-rannsóknum. Hann var eigi aðeins einn hinn allra
fyrsti rithöfundur, sem kom Norðurlandabúum í kynni við
skáldskap hins enska lávarðar, heldur, eins og síðar mun
nánar leitt í ljós, það skáldið íslenzka þar sem fyrst verð-
ur vart áhrifa frá Byron.
Með riti sínu Om LordByron (Um Byron lávarð, Kaup-
0