Valsblaðið - 01.05.1979, Síða 86

Valsblaðið - 01.05.1979, Síða 86
 Bikarkeppni H.S.Í 1976 A. Meistaraflokkur karla B. Meistarflokkur kvenna l.umf. Valur - Þór 14-9 1. umf. Valur sat yfir 2.umf. Valur - F.H. 10-11 2. umf. Valur - Haukar 20-17 3.umf. Valur - Fylkir 24-16 4.umf. Valur - Víkingur 26-23 5.umf.úrslit Valur - F.H. 17-19 Hér að framan hefur verið getið þess helsta í störf- um deildarinnar frá nóv. 1975 - til dagsins í dag. Er það álit stjórnarinnar að síðasti vetur hafi bor- ið þess vitni að hægt er að ná upp mun betri félags- legri samstöðu en áður hefur verið, og um leið gert hinn almenna félagsmann virkari. Að lokum þakkar stjórnin öllum aðilum sam- starfíð. Heildarárangur Handknattleiksflokka Vals i mótum 1975 - 1976. Mót u.mót L u J T Mörk Stig % M.n.k. 4 0 27 19 1 7 548-450 39 72.2 M.n.kv. 4 2 25 20 0 5 354-209 40 80 í.n.k. 2 1 13 1 1 0 2 198-143 22 84.6 í.n.kv. 2 1 3 2 0 1 14-14 4 66.7 2.n.k. 3 0 14 3 3 8 133-185 9 32.1 2,n.kv. 3 2 22 19 3 0 198-87 41 93.2 3.n.k. 2 0 13 6 0 7 113-121 12 46.2 3.n.kv. 2 0 12 6 2 4 68-41 14 58.3 4.n.k. 2 0 8 3 1 4 66-65 7 43.8 5.n.k. 2 0 8 4 0 4 50-53 8 50 Allir n. 26 6 145 93 10 42 1742-1367 196 67.6 I) Reiknuð eru 2 stig fyrir sigur í bikarkeppni. Skýrsla Körfuknattleiksdeildar Vals frá 7.11.1975 - 1.5.1977. Á aðalfundi körfuknattleiksdeildarinnar í nóv. 1975 var Sigurður Þórarinsson kosinn formaður deildar- innar. Aðrir menn sem í stjórn voru kosnir skiptu með sér verkum sem hér segir: Ríkharður Hrafnkelsson, gjaldkeri. Þórir Magnússon, ritari. Torfi Magnússon, varaform. Guðmundur Þorsteinsson, meðstjórnandi. Til vara: Hafsteinn Hafsteinsson. Helgi Gústafsson. Þröstur Guðmundsson. Eins og oft áður var það stærsta mál stjórnarinnar að fást við fjármálin. Það verður að segjast eins og er, að lengi framan af gengu fjáraflanir heldur stirð- lega, t.d. lagðist sala getraunaseðla niður haustið 1975 þar eð sýnt þótti, að þeir voru ekki lengur sú tekjulind sem í upphafi var gert ráð fyrir. Deildin tók sem og aðrir þátt í sölu happdrættismiða K.K.f. og skiluðu þeir þó nokkrum tekjum, og áttu yngstu félagarnir þar stóran hlut að máli. Á síðasta Vals- degi sá deildin í fyrsta sinn um sölutjald, sem skilaði góðum skildingi til deildarinnar. Leikmenn meist- araflokks og 2. fl. stóðu fyrir þessu sölutjaldi. Síðast liðið haust var ákveðið í samráði við Í.R. og f.S. að gefa út auglýsingabækling, en þessi fjár- öflunarleið er nýjung innan deildarinnar, gafst þetta vonum framar og skilaði til deildarinnar um 200.000 kr. Hlýtur það að verða hvatning til leikmanna og stjórnarmanna til að reyna slíkt aftur og þá á stærra grundvelli. Þess má einngi geta að Valur var með heimaleiki í Kennaraskólanum ásamt fyrrnefndum liðum á síð- asta vetri og slapp liðið slétt út úr þeim leikjum fjár- hagslega. Lárus Hólm var í heimaleikjanefnd og sá hann einnig um útgáfu leikjaskrár. Stóð hann sig með mikilli prýði og færir stjórnin honum bestu þakkir. Hér að framan hefur verið getið helstu fjáröfl- unarleiða deildarinnar, en í framhaldi af því er skylt að taka fram og þakka gjöf sem deildinni barst nú seinni part vetrar, en það voru búningar á IV flokks og minniboltastrákana frá Sigurði Helgasyni, og er honum þakkað hér með fyrir höfðinglega gjöf. Þjálf- ari meistaraflokks og 2. flokks veturinn 1975-1976 var Guðmundur Þorsteinsson. Sá hann einnig ásamt Ríkharði Hrafnkelss. um minniboltann, aðrir þjálf- arar voru: Torfi Magnússon og Þröstur Guðmunds- son. Kann deildin þeim öllum bestu þakkir fyrir vel unnin störf. Seinni part sumars 1976 stóð deildin í bréfaskipt- um við erlendan þjálfara, en það mál fékk skjótan endi vegna of mikils kostnaðar. Um haustið 1976 bættust tveir Hólmarar í félagið. Voru það þeir Lárus Svanlaugsson og Kristján Ágústsson, og reyndust þeir sem aðrir góðir félagar og liðsmenn. Þjálfarar hjá deildinni síðasta vetur voru Helgi Jóhannsson með meistaraflokk, l.fl. og II.fi. Helgi Gústafsson og Þorvaldur Kröyer með III.fi. Torfi Magnússon með IV.fi. og Ríkharður Hrafnkelsson með minniboltann. Stjórnin færir þeim öllum bestu þakkir fyrir störf þeirra. Tvær keppnisferðir voru farnar á vegum deildar- innar í vetur. önnur var ferð yngstu drengjanna upp á Akranes. Um þá ferð sáu Torfi Magnússon, Helgi Gústafsson og Þorvaldur Kröyer. Hin ferðin var ferð meistaraflokks til Akureyrar, þar sem att var kappi við Þór í Bikarkeppni K.K.f. Þótti sú ferð tak- ast vel. Auk þess að bera sigur úr bítum höfðu menn af þessu hina mestu skemmtun. Fararstjóri í ferð- inni var Sigurður Þórarinsson. Með landsliðinu og öðrum úrvalsliðum á vegum K.K.Í. æfðu og léku eftirtaldir menn: Torfi Magnússon Ríkharður Hrafnkelsson Þórir Magnússon Kristján Ágústsson Helgi Gústafsson Þorvaldur Kröyer Gústaf Gústafsson Úrslit í íslandsmótinu 1. deild. Meistaraflokkur. Valur - Í.R. . 68-78 77-92 Valur - UMFN .... 53-74 60-105 Valur - K.R. 88-100 63-75 Valur - Ármann ... 71-81 86-84 Valur - Í.S. . 81-97 85-89 Valur - Fram 74 61 67-75 Valur - U.B.K .... 94-57 103-67 Valur lenti í 6. sæti. Bikarkeppni K.K.l. 2.umferð Valur - Þór 79-56 3.umferð Valur - Snæfell 107-66 4.umferð Valur K.R. 71-77 Skýrsla Badmintondeildar Vals 1975 - 1976 Stjórn sú, sem kjörin var á síðasta aðalfundi skipti þannig með sér verkum: Gísli Guðmundsson Ragnar Ragnarsson Hrólfur Jónsson Helgi Benediktsson Bjarnheiður ívarsdóttir formaður v/formaður gjaldkeri ritari meðstjórnandi Varastjórn: Ágúst Sigurðsson Gylfi Óskarsson Ása Gunnarsdóttir Starfið: Starfið hefur verið heldur lítið sem af er, því lítið er gert í badminton yfir sumarmánuðina, sem er daufasti tími badmintonmanna. Ekki var hægt að halda innanfélagsmót, bæði var það vegna áhuga- leysis hjá badmintonspilurum innan deildarinnarog einnig það að stjórnin dreif það ekki áfram. Nú er ætlunin að gera á þessu bragabót og halda innan- félagsmót í desember. Tímaleysi hefur hrjáð deildina allt frá því að hún var stofnuð, en nú varð breyting á, og fékk deildin 15 velli í nýja TBR húsinu og 8 velli í Laugardals- höll. Ekki hefur tekist að leigja alla tímana út í Laugardalshöllinni, en þeir verða bráðlega leigðir út. Tímafjölgunina má rekja til að TBR húsið hefur verið tekið í notkun og því framboðið á tímum auk- ist um meira en helming, svo nú virðist vera um ein- hver tímamótaskipti að ræða. Tímarnir sem deildin hefur inn í TBR húsi eru fyrst og fremst leigðir til keppnismanna okkar og eru þar haldnar samæfing- ar, þar sem bestu spilarar sém deildin hefur, koma saman og keppa. Mjög góð mæting hefur verið í þessa tíma og er stefnt að því að ná langt í næstu liðakeppni BSÍ. Deildin réð Sigurð Haraldsson aftur til að þjálfa unglingana og væntir deildin mikils af honum í framtíðinni. Opinber mót hafa ekki verið mörg, en eitt ung- lingamót var haldið á Akranesi. Þar varð Gunnar Jónatansson sigurvegari í einliðaleik og tvíliðaleik í 84
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.