Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Blaðsíða 42
42 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
sínum og kom þeim öllum vel á legg án styrks eða
mikillar hjálpar. Börnin eru hér talin:
1. Jónína, gift Einari Thordarson, bónda að Sin-
clair, Man.; 2. Björg, gift B. B. Mýrdal í Glenboro.
Fyrri maður hennar var Jónas Björn Goodman (sjá
þátt hans í Alm. 1937 bls. 74-75) ; 3. Friðrikka Sig-
ríður, lærð hjúkrunarkona, gift hérlendum, býr í
Californía; 4. Valgerður, gift Pétri A. Halldórsson
bónda nálægt Sinclair, Man.; 5. Stefán, giftur hér-
lendri, býr nálægt Sinclair; 6. Jakobína Sigurlaug,
útlærð hjúkrunarkona, starfar í Brandon, Man. —
ólína dó 25. ágúst 1938.
Guðrún Sigurlína Garrett, er dóttir Jóhanns Jó-
hannssonar frá Húsabakka í Seiluhreppi í Skaga-
f.jarðars. og Sigríðar ólafsdóttir frá Hofstöðum í
Vindhælishreppi í Húnavatnssýslu sem lengst hér
vestra bjuggu.nálægt Langruth, Man. Guðrún er
gift hérlendum manni George I. H. Barrett, B.A.,
miðskólakennara, ágætur kennari og vænsti maður.
Var hann yfirkennari við skólann hér (principal)
1923-8. Héðan fóru þau til Melita, síðan til Killar-
ney, en nú er hann kennari við Collegiate skóla í
Portage La Prairie. Guðrún Garrett er fríð kona
sýnum, mannlunduð og félagslynd, starfaði hún
drengilega fyrir íslenzkum félagsskap á meðan hún
var hér í Glenboro og var hann íslenzkum félagsskap
vinveittur líka, var hún leikkona góð og hjálpaði hún
til að koma á stað mörgum ísl. sjónleikum meðan
hún var í Glenboro; lék sjálf og var þar með lífi og
sál. — Þau hjón eiga einn son Alex að nafni, efnis-
maður.
Ragnheiður Friðfinnsdóttir McLean. Hún er
fædd í Breiðdal í S.-Múlasýslu, líklega á Þorvalds-
stöðum, 12. sept. 1874. Kom til Ameríku 1887. —
Foreldrar hennar voru Friðf. Jónsson frá Þorvalds-
stöðum í Breiðdal bóndi í Argyle-bygð (dáinn 6. jan.