Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1912, Blaðsíða 9
ALMANAK 1912.
O
Páskatímabilið.
Kirkjuþing'ið í Nicæa, er haldið var árið 325eftir Krists fæðing ,
ákvað og leiddi í lög kirkjunnar, að páskahátiðin skyldi ætíð haldin
vera hinn fyrsta sunnudag eftir fyrsta tungl, er springi út næst efiir
20. marzmán. Samkvæmt ákvæði þess getur páskahátíðin átt sér
stað á 35 daga tímabili, nefnilega á tímabilinu írá 22. marz til 25.
apríl, að þeim dögum báðum meðtöldum. Þetrta tímabil er nefnt
páskatímabilið. Af þessu leiðir, að ef tungl væri fult 21.
marz og 22. marz bæri upp á sunnudag, þá yrði sá dagur (22.)
páskadagur. Fyr á ári geta páskar aldrei orðið. Þetta átti sér
stað árið 1818. En sé tungl fult 18. apríl, og 18. apríl bæri upp á
sunnudag, yrði næsti sunnudagur, páskadagur, nefnilega 25. apríl.
Þ>að kom fyrir árið 1886.
Páskadagur.
9L2 7. Apríl 1917 8. Apríl
191H 1918 31. Marz
1914 12. Apríl 1919 20. Apríl
1915 1916 23. Apríl 1920 4. Apríl
Sóltími.
Sólarhringur er sú tímalengd, er líður á milli þess, er sólin geng.
ur yfir ákveðna hádegislínu, og er það hin eðlilegasta skifting tímans.
En sökum einnar mismunandi hreifingar jarðarinnar umhverfis sól-
ina og sökum bugsins á sólargangslínunni (Ecliptic), er aldt ei ná-
kvæmlega jafn-langur tími milli þess, er sól gengur yfir ákveðna
línu. Af því leiðir, að það er Iítt mögulegt að setja stundaklukku
eftir sól. Til að ráða bót á þessum mismun, setja menn svo að önn-
ur sól sé til, og að hún gangi með jöfnum hraða þvert yfir miðjarðar-
íínuna. Er sú ímyndaða sól þá stundum á undan og stundum á eftir
hinni einu virkilegu sól. Er sá mismunur mestur 16 mínutur. Rétt-
tir sóltími er miðaour við hina virkilegu sól, en hinn svo kallað
,,meðal sóltími“ aftur á móti, er miðaður við hína ímynduðu sól..
Til skýringar má geta þess að það er að eins á tveimur dögtim á
árinu—á jafndægrum haust og vor—að ,,meðal sóltíma“ og rétt-
um sóltíma ber saman. því á þeint tveim dögum að eins er bug ínan
eða sóla-rgatigslínan yfir miðjarðarlínunni.
TÍMINN er í þessu almanaki miðaður við 90. hádegisbaug.
Til þess að finna meðaltíma annara staða, skal draga 4 mínútur
frá fyrir hvert mælistig fyrir vestan þennan baug, en bæta 4
mínútum við fyrir hvert mælistig austan hans.