Afturelding - 01.12.1934, Blaðsíða 3

Afturelding - 01.12.1934, Blaðsíða 3
AFTURELDING Bftir Harry Lindahl. Ég fæddist 11. ágúst í hinni syndugu Gautaborg; þegar ég var á ungum aldri, komst ég út á hina hálu braut syndarinnar; en með slæmum félags- skap drógst ég dýpra og dýpra niður í syndina. Móðir mín kæra hafði þegar orðið fyrir mikilli reynslu, en hún fann frið og ró hjá Guði í öllum sínum sorgum. Pabbi minn var að eðli til glað- lyndur, en hann átti marga vini, sem voru þrælar drykkjuskaparins, og pabbi fór að fylgja dæmi þeirra. Þá talaði Guð til hans, og í eríiðum sjúk- dómi tók hann á móti Guði og frelsaðist á dýrð- legan hátt. Sjúkdómurinn versnaði, og er mamma skildi, að hann átti skammt eftir ólifað, fór hún fyrir alvöru að biðja Guð um styrk í trúnni. Hún beygði kné og sagði við Guð: „Kæri Guð, ef þú ætlar að láta kæra eiginmanninn minn deyja frá mér, þá gefðu mér fyrst einhverja opinberun, svo að trú mín styrkist, þegar ég verð ein eftir með fjögur börn“. Einu sinni, þegar mamma, eins og vanalega, ætlaði að ganga inn og hjúkra pabba, þá stað- næmdist hún í dyrunum, því að í herberginu var eitthvað svo undursamlegt. Þegar hún leit þangað, sem hann lá, þá sá hún, að hann var orðinn gjör- breyttur. Hann sat uppréttur í rúminu, horfði kringum sig og sagði: „En hve hér er allt óálit- legt. Ég hefi séð annað svo dásamlegt". Þá veg- samaði mamma Guð fyrir bænheyrsluna. Rétt á eftir var pabbi kallaður heim til Guðs, og mamma var ein eftir með okkur börnin. Ég, sem var elztur systkinanna, var sérstaklega bæn- arbarn móður minnar, og það fór að hafa mikil áhrif á mig, og mér leiddist það æ meir, því að ég vildi lifa í syndinni. Dýtt hefir Eric Ericson. Það eru sérstaklega tvö atvik í lífi mínu, sem ég ætla að nefna. Þegar fyrra atvikið gerðist, var ég í dansfélagi. Kvöld eitt ætluðum við að halda sérstaka skemmtun; átti þá hver og einn að hafa tiltekinn skammt af brennivíni með sér. En þar eð mamma vissi þetta, fór hún að biðja alvarlega til Guðs, og ég fann, að þetta mundi ekki verða mér til góðs. Og brátt sannaðist það, því að þar lenti í ryskingum, svo mér var fleygt út klukkan 12 á miðnætti, og þá var öll næturgleðin úti fyrir mér. Þá flýtti ég mér heim, fokreiður, og kom í tæka tíð, til þess að sjá mömmu mína standa upp frá bæn- inni; hafði hún barizt í bæn fyrir mér. Reiður, eins og ég var, hrópaði ég, að ef mamma hætti ekki að biðja fyrir mér, svo að ég fengi að vera í friði, þá skyldi hún fá að kenna á því. Næsta sinn, þegar bænir móður minnar voru starfandi á sérstakan hátt, þá björguðu þær mér ásamt tuttugu öðrum syndurum frá vísum dauða. Ég var þá sjómaður á skipi. Rétt eftir nýárið 1917 var ég á ferð frá Englandi til Kaupmanna- hafnar, lentum við þá í miklum stormi. Ég var á verði á framþiljum og kom oft í hug að fara niður í hásetafarrýmið, því að mér var svo kalt. Hver aldan eftir aðra reið yfir skipið, og sjólöðrið rann yfir mig, svo að ég varð holdvotur. En í hvert skipti, sem ég ætlaði að fara niður í hlýjuna, þá var sem ósýnilegt vald þröngvaði mér upp á þil- farið aftur. Allt í einu gerði skýjarof, og í tungls- ljósinu sá ég stórt tundurdufl reka að skipinu. Við stefndum beint á það, og þess vegna kallaði ég fljótt: „Tundurdufl rétt fyrir framan! Víkið til hliðar!“ Þá stöðvaði stýrimaðurinn vélina og kall- aði samstundis: „Stattu miðskipa!“ En ég, ungur un! Gjörið sem vitringarnir: Fylgið stjörnunni alla leið til jötunnar og krjúpið fyrir Honum, sem er konungur konunganna. Gjörið eins og fjárhirð- arnir: Farið rakleiðis til að finna Hann, sem er Frelsari heimsins. Dýrð Drottins ljómaði í kring- um þá á þeirri nótt, þegar heilagar englasveitir báru boðskapinn um fæðingu Jesú Krists. Og það getum við fengið að reyna enn í dag, ef við viljum taka á móti Honum, sem ljósi voru. Þá þurfum við ekki að óttast nóttina og þær torfær- ur, sem fylla heiminn, heldur getum við í öruggu trausti til Hans stefnt á ljósið, sem varpar geisl- um sínum hingað til vor. Eric Ericson. 3

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.