Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.12.1995, Blaðsíða 1
^^.1 w II 13 ð
Málgagn jafnaðarmama í Hafnarfirði
6.TBL. 53. ÁRG. l.DES. 1995
Alveriö stœkkaö
Hjólin snúast
aftur af krafti
Ingvar Viktorsson bœjarstjóri og Tryggvi Harðarson formaður álviðrœðunefndarbœjarins undirrita álsamninganna fyr-
ir liönd Hafnarfjarðarbœjar ásamt Indriða H. Þorlákssyni sem undirritaði samnigana fyrir Itönd fjármálaráðherra.
„Stækkun ólversins í
Straumsvík mun efla og styrkja
atvinnulífið í Hafnarfirði og
væntanlega slá verulega á at-
vinnuleysið", segir Tryggvi
Harðarson, formaður álvið-
ræðunefndar bæjarins. „Hjól
atvinnulífsins fara nú væntan-
iega aftur að snúast af krafti
með stækkun álversins, fluttn-
ingi SIF til bæjarins og með til-
komu flotkvíarinnar, svo eitt-
hvað sé nefnt"
Bærinn liefur þegar hafið undir-
búning að byggingu nýs viðlegu-
kannst í Straumsvfkurhöfn en á-
ætlað er að sú framkvæmd komi
til með að kosta um 200 milljón-
ir króna. Jarðvegsframkvæmdir
vegna stækkunarinnar eru farnar í
gang. Uppgröfturinn verður m.a.
annars notaður sem uppfyllingar-
efni fyrir höfnina.
Með stækkun álversins er gert
ráð fyrir að framleiðslugeta þess
aukist um 60% í fyrsta áfanga og
frekari stækkanir kunni að auka
framleiðsluna um 100% frá því
sem nú er. Búist er við að um 90
ný störf verði til vegna stækkun-
arinnar nú en allt að 700 manns
vinni í tengslum við framkvæmd-
irnar. Þá er ljóst að stækkunin
mun kalla á einhverjar virkjana-
framkvæmdir.
Bærinn hefur freistað þess á
umliðnum árum að halda uppi
framkvæmdum, segir Tryggvi, á
meðan atvinnulífið var í kreppu
og framkvæmdir í lágmarki. Það
var pólitísk stefnumótun okkar
kratanna en við höfum jafnframt
ætíð sagt að bærinn myndi draga
verulega saman seglin um leið og
úr rætist á hinum almenna mark-
aði. Því mun bænum nú gefast
svigrúm til að draga úr fram-
kvæmdum og greiða niður skuld-
ir án þess að það komi til með að
auka atvinnuleysið.
„Þá veröur
alveg
bullandi
atvinna“
-sjá opnuviðtal við
Ingvar Viktorsson
bœjarstjóra
Hafnarfjarðar
Stöö 3
á kapal■
kerfió?
Nú standa yfir samningar milli
Stöðvar 3 og Rafveituunnar um at'-
not stöðvarinnar af kapalkerfi bæj-
arins . Jónas Guðlaugsson rafveitu-
stjóri segir að hann rcikni með að
samningar takist á næstu dögum.
Það sé því rétt hjá þeim sem aðgang
liafi að kapalkcrfi bæjarins að
hinkra við með að fá sér loftnet fyrir
Stöð 3 þar til í Ijós kemur hvort af
samningum verður.
Um er að ræða dreifingu á öllu efni
Stöðvar 3, það er fimm rásum, einni
dagskrárstöð og fjórum gervihnattar-
sendingum. Jónas segir að verið sé að
auka við tæknibúnað dreifikerfisins til
að mæta þessum nýju þörfum. Enn eigi
eftir að koma í ljós hvemig tæknibún-
aðurinn reynist en vonir standi til að
það eigi alit að ganga upp.
Nú þegar eru á kapalkerfinu fimm
rásir. Alls verða því 10 rásir á kerfinu
gangi samningar við Stöð 3 eftir. Það á
að vera möguleiki að koma allt að 18
rásum fyrir á kapalkerfinu.
Á móti til aö vera á móti
Bæjarbúar botna ekki neitt í þeirri heift og
andstöðu sem bæjarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsarms Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-
bandalagsins sýna starfsemi í miðbæ Hafnar-
fjarðar. Velflestir bæjarbúar vilja sjá miðbæ-
inn sinn vaxa og dafna, bæði Miðbæjarhúsið
svo og aðra starfsemi við Fjarðargötu og
Strandgötu. En bæjarfulltrúar komma og í-
halds eru gjörsamlega heillum horfnir. Þegar
þeir stjórnuðu bænum í eitt glatað ár gerðu
þeir það sem þeir gátu til að drepa alla starf-
semi þar í dróma. Þeir fóru burtu með mið-
stöð strætisvagna upp á hraun, fóru burtu með
skrifstofur sýslumanns og upp á hraun. Það
var síðan amen eftir efninu, þegar skrifstofur
Sjóvá - almennra, sem fyrrum formaður bæj-
arráðs, Magnús Gunnarsson, stýrir núna fyl-
gdu á eftir sýslumanni úr miðbænum og upp á
hraun. Þessu lil viðbótar gerði fyrrum meiri-
hluti allt sem hægt var til að bregða fæti fyrir
nýja starfsemi í miðbænum.
Hvað þessum bæjarfulltrúum Alþýðubanda-
lags og AB-arms Sjálfstæðisflokksins gengur
til, átta bæjarbúar sig ekki á. En áfram halda
þeir með offorsi og hávaða og ráðast gegn. al-
mennri uppbyggingu í miðbæ. „Þeim er ekki
sjálfrátt þessum mönnum," sagði fyrrum kjós-
andi Alþýðubandalagsins við tíðindamann
Alþýðublaðs Hafnarfjarðar, þar sem þeir hitt-
ust áförnum vegi, um þessa niðurrifsstefnu
komma og íhalds. „Þeir eru bara á móti til að
vera á móti. Það var verk Alþýðuflokksins að
treysta miðbæjarstarfseminá, sem alls staðar
er eitt af meginverkefnum bæjarfélaga. Og þá
eru þeir á móti af því einu að kratarnir eiga
málið,“ bætti þessi Hafnfirðingur við.
Kór
Öldutúnsskóla
30 ára
-sjá bls. 2