Fjallkonutíðindi - 01.12.1915, Side 17

Fjallkonutíðindi - 01.12.1915, Side 17
Fjallkonutíðindi. 15 Saga Islands. Saga íslands sú hin mikla, sem Jón sagnfræðingur og docent Jónsson er nú að semja, getur ekki komið eins íljótt út og ætlað var i fyrstu. Veldur því að höf- undurinn gat ekki, sökum afarmikilla anna, lokið að hreinskrifa handritið til bókarinnar (upphaf hennar) áður en háskólinn byrjaði nú i haust. Reynt verður þó, að láta útgáfuna byrja fyrir nýár. Drátturinn ætti að geta orðið mörgum til góðs, en fyrst og fremst þeim, sem voru orðnir of seinir til þess að skrifa sig á ritið og fá nú á ný tækifæri til að geta eignast þessa ágætu bók. Áskriftarfresturinn er því hjer með lengdur til 5. desember þ. á., og fá allir, sem þá hafa komið áskrift sinni til útgefanda, öll áskrifendahlunnindi. Af því að útgáfukostnaður er svo mikill, verður ekki lagt upp nema rúmlega handa áskrifendum og þau fáu eintök sem framyfir verða, verða þá seld með upp- settu verði. Bókin ætti að vera á hverju heimili á Islandi. Viljið pjer sluðla að pví að svo geíi orðið? Fyrir hvern nýan áskrifanda*) sem þjer útvegið auk yðar, og tilkynnið fyrir 5. des. þ. á., fáið þjer í ómakslaun hálfa aðra krónu, eftir egin vali i þeim bók- nm sem auglýstar eru hjer í blaðinu, og þegar eru komnar út, og eru þær sendar yður að kostnaðarlausu. Það athugast, að ef þjer veljið áskriftarrit, gerist þjer um leið áskrifandi að framhaldi þess rits. Minnist þess, að það er þjóðarsómi, jafnvel þjóðar- heill, að saga landsins sje sem útbreyddust. Með kærri kveðju Fj allkon u útgáfan. *) Fult nafn (stjett) heimili og póststöö parf að tilgreina.

x

Fjallkonutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonutíðindi
https://timarit.is/publication/417

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.