Muninn

Årgang

Muninn - 15.03.1972, Side 72

Muninn - 15.03.1972, Side 72
djúpt að sér fersku loftinu. Þegar hann var kominn örlítð frá kránni, stökk ég á hann, hélt hnífsblaðinu að hálsi hans og dró hann inn í sund. 2g settist klofvega ofan á hann og sagði honum í lágum hljóðum að ég ætlaði að drepa hann. Ég sagði honum frá konunni minni og litla dána barn- inu mínu. Hann titraði af hræðslu og bað heitt og,'sért um líf, hann sagðist eiga unga unnustu- og gamla móður sem hann þyrfti að sjá fyrir, en ég bara hló og risti sundur á honúm hálsinn með hnífnum, honum svelgdist á nafni guðs síns og síðan stóð blóðgusan út úr honum. Eg skildi hann eftir bak við öskutunnur og fylgist með hinum þremur. Loksins stóð eirrn upp og gekk út. Hann kallaði á vin sinn og fann skóinn hans sem lá við sundið. Þar stökk ég á hann og sagði honum það sama og hinum. Hann grét af iðrun og bað svo heitt um líf að steinar hefðu getað viknað, en ég hafði lofað konunni minni því að hefna og það loforð gat ég ekki svikið. Og þess vegna hlut hann að deyja. Mér fannst ég finna krampakennt handtak konunnar minnar á dauðastundinni, þegar blóð hans spýttist yfir mig. Ög faldi hann á sama stað og hinn og beið síðan eftir hinum. Þeir urðu brátt órólegir og fóru út til að leita að félögum sínum, þeir mösuðu og sögðu að líklega hefðu þeir fundið aðra stelpu og væru nú að leika sér að henn einir. Þá stökk ég fram með byssuna í annarri hendi, en hnífinn í hinni og skipaði þeim að snúa sér við. Ég sagði þeim fré félögum þeirra og sýndi þeim blóðugan hnífinn. Ég sagði þeim frá barninu mínu og konunni. Þeir voru of hræddir til að hugsa af viti og annar þeirra byrjaði að hlaupa. Eg skaut á hann þremur skotum, svo að hann datt 1 götuna. Kvenmenn æptu og karlar hrópuðu. Ég miðaði byssunni á hinn en skotin voru ekki fleiri. Þá fór h&nn að hlaupa, ég náði honum í nokkr\im skrefum og stökk á hann og rak hnífinn á kaf hvað eftir annað, þar til einhver barði mig í höfuðið svo að ég rotaðist. Er ég vaknaði aftur var ég í fangelsi og síðan hófust réttarhöldin. Verjandinn taldi mig hafa verið haldinn stundar brjál- æði. En sækjandinn sagði mig vera sadistiskan morðhund. Eg svaraði spun- ingum þeirra og þegar ég sagði að ég hefði orðið að drepa þá til að hefna fyrir konuna mína og barnið, þá hélt dómarinn langa ræðu vim lög og rétt og að lögin væru til að hefna hinum seku. En ég vissi að þeir hefðu aðeins fengið vægan dóm, í mesta lagi nokkur ár. Að lokum var geðathugun og ég úrskurðaður alheill sálarlega. Dóm- urinn hljóðaði upp á 30 ára fangelsi. Eg lifi aldrei 30 ár enn, ég dey bráðlega, því að ástin sem ég lifði fyrir, dó með hatrinu sem kom í hennar stað og nú þegar hatrið er horfið, þá er ekkert eftir að lifa fyrir og þvx kemur dauðinn bráðlega. En þangað til held ég áfram að lifa, unz einn morgun að ég vakna ekki og geng klæddur skinnfeldi með spjót og boga við hönd til konunnar minnar sem hleypur á móti mér með barnið okkar í fanginu. Guðmundur Sveinbj örnsson.

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.