Kirkjuritið - 01.06.1938, Side 20

Kirkjuritið - 01.06.1938, Side 20
234 Sveinn Víkingur: Júní. ur, sem algerlega skortir trúna á sjálfan sig. Hann er óstarfhæfur sjúklingur. Það er ekki heldur heilbrigður niaður, sem á engan hátt trúir eða treystir öðrum mönn- um. Vér mundum sennilega nefna liann sinnisveikan eða geðveikan. En allra síst getur sá maður talist heil- brigður á sál, sem á engan tilgang trúir í tilverunni, eng- in æðri öfl, engan Guð, heldur lítur á líf sitt og annara sem þá lönguvitleysu, þar sem aðeins ræður blind hend- ing og miskunnarlaus tilviljun. Eins og ég hefi þegar tekið fram, þá lýsa trúaðir menn reynslu sinni þannig, að guðstrúin leysi hjá þeim hundna orku, stæli viljann og styrki þróttinn. Þetta er ekkert sérkenni guðstrúarinnar. Þetta gerir öll trú. Að þessu leyti er því trúin ótvírætt verðmæti, sem vér meg- um ekki missa. Lamaðri trú fylgir lamaður vilji, lam- að þrek. En þetta er ekki nema önnur hlið trúarreynslunnar, eins og ég hefi þegar tekið fram. Eftir er hin hliðin, sú, að trúaðir menn á æðri öfl, stjórn og handleiðslu halda því fram, að þeir komist i beint samfélag við slíka veru eða verur, og fái frá þeim beina hjálp, kraft og huggun. En livernig komumst vér yfirleitt í samfélag við aðra menn? Ég á við andlegt eða sálrænt samfélag. Verður það samfélag ekki æfinlega að byggjast á trausti og trú og ást? Getur þú komist í samfélag við nokkurn mann, sem þú hvorki elskar eða treystir? Er ekki ástin og trú- in hrúin á milli mannanna hér á jörð? Eða munduð þér nokkuru sinni reyna að leita huggunar hjá þeim, sem þér hvorki berið til hlýjan hug né treystið í neinu? Það hef- ir verið sagt, að ekki væri liægt að hjálpa þeim, sem ekki vill hjálpa sér sjálfur. En ég vil bæta því við: Það er ekki hægt, það er bókstaflega ómögulegt að hjálpa þeim manni, sem ekki trúir, ekki treystir í neinu þeim, sem hjálpa vill og hjálpað getur. Þó ég væri allur af vilja gerður, þá get ég ekki hjálpað þeim, sem ekki treystir mér og ekki vill þiggja hjálp mína. Ég get ef til vill

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.