Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1960, Síða 23

Kirkjuritið - 01.01.1960, Síða 23
KIRKJURITIÐ 17 Orsakir ókirkjuleika eða hálfvelgju manna gagnvart sinni eigin trú eru margar. Sumar eru uppeldislegar, margar sósíalar og enn eru nokkrar hjá kennimönnunum sjálfum. Hvað hinar síðast töldu orsakir snertir, þá liggur ekki annað fyrir hjá oss kennimönnum en að gera sjálfsprófun og yfirbót eftir Guðs orði. Viljum vér sjálfir ekki gera yfirbót, hvernig getum vér þá vænzt hennar hjá öðrum? Hvað hinar sósíölu orsakir snertir, þá ber að rannsáka þœr, en hins vegar hefur kirkjan ekki bolmagn til að koma í veg fyrir þær. Tökum t. d. áhrif þess, sem fram er boðið af skemmt- unum síðari hluta laugardags hér í Reykjavík og nágrenni. Telji maður saman það eitt, sem auglýst var af opinberum skemmtunum einn laugardag og einn sunnudag nýlega, þá reyndust þær vera 92 (kvikmyndasýningar, leiksýningar og dansskemmtanir). Aðgangur var seldur að þeim öllum og ástæða til að ætla, að þær hafi verið fjölsóttar, þótt mér sé ókunnugt um tölu þátttakenda. Auk þess eru margar skemmtanir á þess- um tíma, sem ekki eru auglýstar þannig. — Mikið af skemmt- anaefninu er hið venjulega múgsefjandi skemmtiefni, sem nú tíðkast í hinum vestræna heimi. Og það er þess eðlis, að menn, sem hafa vanið sig á það, spyrja ekki eftir neinu öðru, hvorki almennri menningu né kirkjulegri. Menn láta sér nægja það til sálarfæðu. (Ekki var allt skemmtanaefnið þó af þessari gerð; undanskildar eru m. a. leiksýningar sumar og örfáar kvik- myndir.) Ekki þarf lengur að prédika fyrir mönnum, að það sé nauð- synlegt að skemmta sér; margir halda, að það sé hið eina nauðsynlega, auk vinnu fyrir daglegu brauði. Þeir, sem þannig hugsa — og þeir eru margir — láta sig kirkju og kristindóm engu skipta. Þeir eru komnir inn í hringiðu múgmennskunnar. En lágmark þess, sem kirkjunni ber þó að gera fyrir þá, er að kirkjan sé þeim opin og hafi guðsþjónustu, þegar þeir loks eru vaknaðir á sunnudögum, en það er á kvöldin. Meðan sú tilraun er ekki gerð, þá er ennþá mikið eftir. Hinar uppeldislegu orsakir mætti einnig ræða, en það yrði hér of langt mál. Hins vegar er samband milli þeirra og ofan- greindra orsaka. Þeir, sem sjálfir eru þrælar undir múgmennsk- unni, eru ekki líklegir til að uppala frjálsa menn. Jóhann Hannesson.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.