Kirkjuritið - 01.10.1962, Blaðsíða 18

Kirkjuritið - 01.10.1962, Blaðsíða 18
KIRKJURITIÐ 352 kenning sé í miklu ólagi í Evrópu, lieldur livað vér lifum ókristilegu lífi. Berum kristnina lítið með oss, livað sem vér kuiinum að segja um trú vora. Boðun orðsins er bráð nauðsyn — skilyrðislaus skylda krist- inna manna. En kristið líferni er enn áhrifaríkara kristniboð. þannig var um sjálfan meistarann. Hann vann og vimíur enn meira með því, liver hann var og hvernig hann lifði en hvað hann sagði. Raunar fór það saman hjá lionum. Eg á við, að meira að segja í lians lífi voru það liinar áþreifanlegu stað- reyndir, sem skiptu mestum sköpum. Þegar hann sagði: Ég lifi og þér munuð lifa, vakti það vonir í brjóstum lærisveinanna. En sjálf upprisan sannfærði þá. Kirkjuna vantar í dag, eins og um allar aldir, enn fleiri og enn betri kristna menn. Það er það, sem hana skortir mest á Islandi sem annars staðar. Á því sviði er höfuðveikleiki vor flestra. Þessi skilningur liefur farið ískyggilega dvínandi. Sönnun þess er minnkandi áherzla lieimilanna á kristilegt uppeldi barnanna og sú lítilsvirðing, sem kristindóminum er sýnd í sjálfu fræðslukerfinu. Ef kristið lmgarfar er betra en nokkurt annað liugarfar — og það er það að minni trú — þá verðum vér að leggja ineiri rækt við kristilegt uppeldi. Menn fæðast ekkert frekar kristnir en heiðingjar. Hvort tveggja skapast og þróast. Hver kynslóð á þar sinn hlut að máli og her sína ábyrgð á lierðum. . . . Vér í dag. Örlitlar atliugasemdir Eitt blaðanna licrindi 14. J>. m. að hin tigna og ágæta frú Ben-Gurion liafi frammi fyrir róðukrossi á Þjóðminjasafninu sagt: „Þeíta liefur aldrei gerzt. Vitið ]>ér að þetta hefur aldrei gerzt“. Jafnframt játaði hún, að Kristur væri „einn mesti inaður, sem lifað hefði“. Vafalaust er þetta rétt frá skýrt. En fróðlegt liefði verið að vita, hvernig frúin gerði grein fyrir upptökum kristindómsins og hver hún teldi að væri frumorsök þess, að kristnir menn sögðu skilið við Gyðingdóminu — hafi Kristur aldrei verið krossfestur — livað þá risið upp. Líka ofurlítið skrýtið að blöð og útvarp kváðu svo á — skýringarlaust — að hinn mikli þjóðleiðtogi Ben-Gurion hefði gefið Háskóla íslaiuls for- láta Biblíu. Víst var um dýra gjöf að ræða, en þó aðeins hebreska biblíu þ. e. Gamla-testamentið, Og vanta'iH því nokkuS á liiblíuna.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.