Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1968, Síða 6

Kirkjuritið - 01.03.1968, Síða 6
KIRKJURITlt) 100 en endanleg örlög þess mannlífs, sem vér erum borin til? Þ11 liorfir á fylkingar kynslóðanna. Hvert hnígur þessi mikla móða? Hver stefna kynslóðirnar, sem kornu og fóru. Er út' slokknun, eyðing og dauði lokamark? Eða eru mennirnir nieð öllum sínum kostum og göllum, öllum sínum syndum og sorg' um, öllum sínum æðri þrám og háleitu hugarsýnum, — eru þeir að stefna að fjarlægum markmiðum óralangt liandan rúms og tíma? Frumkristnin fékk sitt svar, sem margir drógu í efa, er ekkert vildu sjá, en svar sem nægði þeim, er urðu vottar liiniu' miklu tíðinda. Allt varð þetta stórkostlegra en vini Jesú liafði órað fyrir- En það sem yfirgnæfði öll fagnaðarefni önnur og bjó þein' bjartasta gleði, var þetta: KRISTUR LIFIR, liann lifir og vinn- ur enn það verk, sem hanu var með blóðugu ofbeldi lirifinn frá í blóma manndómsáranna: Að leysa, líkna, fræða, frelsa- „Hann er upprisinn,“ ómaði þá og ómar enn í kristnun1 lieimi á hverjum páskum. Þennan boðskap skunduSu, hlupu konurnar með frá gröf' inni. Minnstu þess, þegar þú gengur að þeirri gröf, þeirri ást' vinagröf, sem þér er sárast að sjá. Sjáðu fylkingarnar, sen1 komu og fóru, og sjáðu í fararbroddi fyrir þeim hinn upprisn# Krist, sem er lausnari og leiðtogi á vegum ódáinslieima jafnt og jarðneskum vegum. Gleðilega páskahátíð. Þá er drauma brotin stund, þá er sjónarhringur fagur, þá skal kasta þungum blund, þá er runninn mikill dagur. Sigurður Breiðfjörð

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.