Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Page 82

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Page 82
Sjóslys og drukknanir — írá 13. maí 1983 til maí 1984 1983 13. maí lést Pétur Berthelsen, 41 árs, Hringbraut 71, Keflavík, er vír slóst í höfuð hans um borð í v.b. um borð í v.b. Mumma GK frá Sandgerði, þar sem hann var að veiðum undan suðurströndinni. Hann var tvíkvæntur. Lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. 20. júní létust 3 skipverjar, er eldur kom upp í rækjubátnum Gunnjóni GK 506,60 sjm. NV. af Horni. Haukur Ólafsson, 25 ára, 1. vél- stjóri, Akurgerði 4, Reykjavík. Lætur eftir sig unnustu og eitt barn. Eiríkur Ingimundarson, 20 ára, háseti, Tunguvegi 12, Njarðvík. Einhleypur. Ragnar Júlíus Hallmannsson, 17 ára, háseti, Ásgarði 5, Keflavík. Einhleypur. 10 manna áhöfn var á bátnum og björguðust 7 í gúmbát, síðan um borð í v.b. Bjarna Ólafsson AK. V.s. Þór kom einnig að og eftir 17 klst. baráttu við eldinn var bátur- inn dreginn til Njarðvíkur. V.s. Þór flutti líkin til ísafjarðar. 7. sept. drukknuðu 2 bræður er v.b. Bakkavík ÁR 100 fórst í innsigl- ingunni við Eyrarbakka. Þórður Markússon, 29 ára, Ás- garði, Eyrarbakka. Ókvæntur, barnlaus. Sigfús Markússon, 25 ára, Ás- garði Eyrarbakka. Ókvæntur, barnlaus. Bróðir þeirra bjargaðist. Bátnum hvolfdi og komust þeir allir í gúmmíbát, en báturinn rifnaði í sjóganginum og köstuðust þeir allir úr bátnum. Þeir gátu kastað upp neyðarblysi upp áður en bát- urinn rifnaði. Bj.sv. frá Eyrar- bakka, og Stokkseyri komu fljót- lega á vettvang. Lík Þórðar fannst. 28. sept. drukknaði Sigurgeir Jónsson, 26 ára, Melteigi 8, Keflavík í Njarð- víkurhöfn. Hann var vélstjóri á Hörpu RE 342, þar sem skipið lá í Njarðvíkurhöfn, og sást þar síð- ast um borð. Talið er að hann hafi fallið á milli skips og bryggju. ll.okt. lést Garðar Ólafsson, háseti, Yrsufelli 7, Reykjavík er hann féll af vinnupalli við skipið Svaninn, sem var í slipp í Bremerhaven í Þýskalandi. Lætur eftir sig sam- býliskonu, tvö fósturbörn og tvö börn af fyrra hjónabandi. 28. okt. drukknuðu 4 menn, er dæluskipið Sandey II valt og hvolfdi á Við- eyjarsundi. Torfi Ólafs Sölvason, 50 ára, stýrimaður, Sólheimum 18, Reykjavfk. Lætur eftir sig eigin- konu og tvær dætur. Líkið fannst 1. nóv. Guðmundur Jónsson, 31 árs, skipstjóri, Nesbala 80, Seltjarn- arnesi. Lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Líkið fannst 27. nóv. við Engey. Kjartan Erlendsson 35 ára, Kjartansgötu 5, Reykjavík. Ein- hleypur. Líkið fannst 2. nóv. Emil Pálsson, 60 ára, Torfufelli 13, Reykjavík. Lætur eftir sig 82 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.