Gripla - 01.01.1984, Síða 21
PAMPHILUS DE AMORE
17
Eigi er annað með mér en eg afla með erfiði mínu.
Nú ef sæl er orðin ein nautreka dóttir,
kýs þann er líkar úr þúshundrað biðla.
55. Og af fegurð hennar titrar mitt hvert bein,
og sök meinaði mér að segja þetta.
Traust fegurðar getur oft hughreysti mikla,
og eigi lætur í hætti sína drottning.
Og freistaða eg úr að hrinda mínu hjarta þessa rækt,
60. en því heitari brennur ást í mér.
Þú, Venus, nú mátt þú sjá, hversu illt eg þoli, því að þér er
kunnur háski vor.
Því bið eg þig: Ver þú hógvær bænum mínum,
og eigi þú í móti mér mæl,
og þín hin fögru augu hafi mína sýn.
65. Annaðhvort tak þú örvar þínar úr hjarta mínu
eða fœðir þú grimmt sár með þínum háttum!
Hver mátti rækt þola svo mikils starfs,
er engi laun gæfi grátandi drottni rétt biðjandi til þín?
Því að angursamt starf þröngvir mér.
70. Og sjálfur getur oft sömu bænar.
Venus
Hæfilegt starf sigrar alla hluti,
og þú skalt hafa hverja er þér líkar, ef þú vilt starf á leggja.
Og fyrir engarri skalt þú hræðast þitt skap að sýna.
Trautt man finnast ein í þúshundraði, sú er þér mun níttast.
75. Og þess er þú munt biðjandi leita og með atburð, þá mun hún
fyrst snarlega nítta,
en snarleikur hennar hefir létta byrði.
Og verður sú varla hálfvirði keypt,
er fyrst er dýrt metin með svörnum eiðum.
Og engi myndi yfir haf fara,
80. er hann fyrsta þrútna báru hræðist, er skipi mætir.
Nú fyrir því er hún játtar eigi fyrst þinni ræðu,
þá haga svo með vél eða þjónkan, að hún játti,
82b. (því að vél fylgir lævísum manni,)
vél lægir harðan hug, vél brýtur stórar borgir,
vél fellir stóra stöpla, vél lyftir þungri byrði,
Gripla VI — 2