Gripla - 01.01.1984, Page 270
266
GRIPLA
þstta kvæði eitt þess vert að skrifa það sérstaklega hafa greinilega ekki
hugsað: ‘Köld eru jafnan kvennaráð’.
Einn höfundur nefnir — svo að mér sé kunnugt — að e. t. v. hafi
menn dregið Konungsbók fram í dagsljósið og skrifað eitthvað úr henni
einu eða tveimur árum áður en Brynjólfur Sveinsson fékk handritið
1643. Þessi höfundur er Andreas Heusler, en hann segir í inngangi sín-
um að ljósprentun Konungsbókar 1937:
Gewisse Anzeichen deuten darauf, daB man schon ein, zwei Jahre
vorher die Handschrift hervorgezogen und weniges aus ihr notiert
hatte. Dariiber hinaus láBt sich keine Vorgeschichte verfolgen.5
Ekki eru gefnar neinar skýringar á því, hvað bendi til þessa, en það er
trúlega niðurlag Sigurdrífumála. Hér verður reynt að leiða rök að því,
að Heusler hafi á réttu að standa.
Sigurdrífumál eru í útgáfum alls 37 erindi en í Konungsbók er seinast
2. ljóðlína í 29. erindi. I Völsunga sögu eru 5.-13. og 15.-21. vísa, en
13. vísa er þar aðeins 6 ljóðlínur í stað 10 í Konungsbók. Röð erinda
er með misjöfnum hætti í handritunum. Hvorki Sophus Bugge né Jón
Helgason reyna að tengja þessa heilu uppskrift Sigurdrífumála við
Völsunga sögu og hefur enginn mér vitanlega gert það.
II
Könnun á skyldleika og aldri allra handrita Völsunga sögu hefur aldrei
verið gerð, en aðeins eitt handrit er til á skinni, Nks. 1824 b, 4to, sem
síðari textaútgáfur eru gerðar eftir. Magnus Olsen sá um bestu útgáfu
hennar og þar fullyrðir hann, að öll pappírshandrit Völsunga sögu séu
runnin frá 1824.1 Ragnars saga er einnig í 1824 og hefur Rory McTurk
kannað handrit hennar í Landsbókasafni, sem Magnus Olsen getur ekki
um, og telur McTurk, að þessi handrit séu öll komin af 1824.2 Trúlegt
5 Andreas Heusler. Einleitung zum Codex Regius der Lieder-Edda. (1937).
grein 2, sbr. einnig gr. 12 og 14. (Kleine Schriften. I. Berlin 1943. (ljóspr. 1969)
260-280.) Sama ritgerð er á ensku í inngangi að 10. bindi Corpus codicum Islandi-
corum medii aevi. Kbh. 1937.
1 Volsunga saga ok Ragnars saga loðbrókar. Udg. . . . ved Magnus Olsen. Kbh.
1906-1908. vii.
2 Rory McTurk. The relationship of Ragnars saga loðbrókar to Þiðriks saga
af Bern. 568. (Sjötíu ritgerðir helgaðar Jakobi Benediktssyni 20. júlí 1977. 568-
585.)