Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1927, Síða 43

Eimreiðin - 01.04.1927, Síða 43
EIMREIDIN ÚR FERÐABÓK HOOKERS 139 Weltaholtin, sem umkringdu bæinn á alla vegu, voru á dreif- mgi vesæl kot, sem ekki risu nema lítið eitt upp yfir jörðina; ekkert þeirra var samt grafið í jörðu, enda eru slíks ekki dæmi neinsstaðar í landinu, þó að svo hafi oft verið talið. ym nónbil lögðumst við um akkeri skamt frá bænum, fast við Orion,2) og stundu síðar fórum við í land. Fjaran var ein- ^óm hraunmöl, dökk að lit og sumstaðar nærri því eins smá P9 sandur. Lausabryggju úr furustokkum var skotið út í sjó- lnn, til þess að við vöknuðum ekki. Þar voru fyrir hundrað Islendingar að minsta kosti, flest kvenfólk, sem buðu okkur velkomna til eyjar sinnar, og kvað við hróp þegar við lentum. Þetta góða fólk horfði ekki á okkur með meiri ánægju en við ó bað. Nú stóð yfir sá tími, þegar fiskur er þurkaður, og var ‘ólkið einmitt að þeirri vinnu, er við komum. Sumir voru að snúa þeim fiski, sem breiddur var til þerris í fjöruna, aðrir báru hann þaðan á börum hærra upp, og voru þar enn aðrir fyrir, sem hlóðu hann upp í stóra stakka og fergðu með grjóti, svo að hann yrði flatur. Að mestu leyti voru það kvenmenn, sem að þessum störfum unnu, og voru sumar mjög gildar og sterklegar, en fram úr hófi óhreinar. Megna þráalykt bar að vitum okkar, þegar við gengum fram hjá hópnum. Það sér- kenni þessara kvenna, sem aðkomumaður rekur fyrst augun í, er hve aðskorinn fatnað þær bera um brjóstið. Alt frá barn- æsku er treyjan hert þar svo mjög að, að hún liggur alveg flöt, og er þetta ekki aðeins til mikilla óhæginda fyrir sjálfar bær, heldur spillir einnig alveg vaxtarlagi þeirra í augum ^ianns, sem kominn er þaðan úr heimi sem menning er meiri. Að öðru leyti fer búningur þeirra ekki illa, og svo hlýr er hann, að hann hlýtur að hæfa vel kuldaveðráttu landsins. begar þær eru í vinnufötum eða hversdagslega búnar, hafa bær bláa ullarhúfu á höfði, og út úr henni langa totu, sem lafir niður öðru megin; þar á endanum er skúfur, sem er prýddur með silfurvír. Þegar þær hafa þetta höfuðfat, bangir hið síða og óhreina hár þeirra langt niður yfir axlirnar, en svo er ekki þegar þær bera fald; þá er hárinu vandlega troðið undir hann, svo að ekkert af því sést. En lýsingu á bonum og búningi efnafólks læt ég bíða um sinn, því að hér er ekki ætlun mín að tala um annað en fatnað þeirra kvenna, sem ég sá við vinnu, þegar ég sté á land. Utan yfir heil- ^örgum svörgulslegum ullarpilsum, — töluna veit ég ekki, — °9 skyrtu úr sama efni ganga þær með þykt pils, eða réttara Sa9t ermalausan kjól (með sínu opinu fyrir hvorn handlegg) 2) Orion uar skip, sem þáverandi stiftamtmaður, Trampe greifi, átti, °9 hafði hann komið á því frá útlöndum hálfum mánuði fyr en þetta var.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.