Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1927, Page 45

Eimreiðin - 01.04.1927, Page 45
eimreiðin ÚR FERÐABÓK HOOKERS 141 »Þenna morgun veittist mér gott tóm til að skoða bæinn. Þar eru kringum sextíu eða sjötíu hús, sem skipað er í tvær raðir, um það bil álíka langar, og standa hornrétt hvor á aðra, í líkingu við þessa mynd, lárétta línan með sjónum, en hin upp þaðan. Húsin næst firðinum hef ég áður N nefnt og getið þess að þau eru úr timbri; þau snúa til norðurs og eru til að sjá svipuðust korn- v búrum.1) Kaupmannabústaðirnir og- vöruskemm- urnar er hvorttveggja alveg eins að gerð, úr plönkum með timburþaki, og munar því einu að fáeinir glergluggar eru á íbúðarhúsunum og einn eða tveir tréstrompar. Þessi hús eru öll smíðuð í Noregi, síðan tekin sundur, svo að þau komist fyrir í skipi, og flutt hingað. Vöru- skemmurnar eru líka búðir; þar selja kaupmenn álnavöru, leir- ílát, muni úr tini og járni, sykur, kaffi, tóbak, rúgmjöl, skó, romm og í stuttu máli alls konar nauðsynjar, og taka aftur til útflutnings ull, tólg, fisk, fiskilýsi og sellýsi, tófuskinn, álfta- hami, æðardún, ullarsokka, vetlinga og stundum þurkað sauða- kjöt. Við vesturenda þessarar búðaraðar er gapastokkurinn; stendur sökudólgurinn þar á trédrumb með handleggina spenta í járnhringi, sem festir eru sinn hvoru megin við uppréttan staur, í hér um bil fjögurra feta hæð. I námunda við þetta refsitæki taka við tvær samsíða húsaraðir og ná nokkur hundruð metra (yards) suður á bóginn; skapast þar bærilega breið gata,2) en svo er hún grýtt og klettótt, að þó að til væri einhver kerrumynd í landinu, er ég hræddur um að hún kæmist aldrei einu sinni sex metra úr stað á þessu aðalstræti höfuðborgarinnar. Neðst í götunni hægra megin eru tvö eða þrjú kaupmannahús^og vörugeymslur, og skamt þaðan er setur hins lærða biskups íslendinga, Geirs Vídalíns.3) Það er að engu frábrugðið húsum kaupmannanna, nema ívið stærra og glugga- fleira. Alveg þar hjá er bezta húsið í þorpinu, næst á eftir bústað stiftamtmanns, og er það eign landfógeta; þar eru nota- legar stofur og góð húsgögn.4) Ofar í götunni er einskonar Sildasáli, og eru Danir vanir að sitja þar yfir spilum í sal, sem gerður var til að taka nokkuð stór samkvaemi; þar fóru og fram þau samkvæmi, sem við tókum þátt í á íslandi.5) Með þessu húsi má heita að gatan sé á enda; handan við það eru aðeins fáeinir torfbæir, og bar einn af hinum, bæði að snyrti- 1) Gatan með sjónum svarar til Hafnarstrætis nú. 2) Svarar til Aðalstrætis nú, sbr. J. H. Rvík 55 o. áfr. 3) Sbr. J. H. Rvík 71. 4) Sbr. J. H. Rvík 74 o. áfr. 5) Þetta er klúbburinn, sem kallaður var, og stóð þar sem Herkastal- inn er nú, sbr. J. H. Rvík 80—81.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.