Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1948, Side 40

Eimreiðin - 01.04.1948, Side 40
120 LÍFGRÖS OG GRÆÐIJURTIR EIMREIÐIN fullkomna þekkingu um þá orku, 6em ætijurtir ýmsar hafa að geyma, er ekki lengur að finna annarsstaðar en meðal viesra kyn- þátta í Austurlöndum. — 1 Kína er það algengt, að fólk nái ótrúlega háum aldri, en Kínverjar nærast mikið á soja-baunum og annarri jurtafæðu. Þeir eru miklu afkastameiri til líkamlegrar og andlegrar vinnu en Evrópumenn, vinna bæði hraðar og lengur -— geta t. d. borið ótrúlega þungar byrðar klukkutímunum saman án þess að þreytast“. Bygg (Hordeum distichum), en það vex sumstaðar hér á landi, er meðal þeirra ætijurta, sem talið er að hafi mikinn lækn- ingakraft. Rómverjar hinir fomu töldu byggið svo styrkjandi og nærandi, að skylmingamenn þeirra neyttu þess í ríkum mæli, til þ ess að verða sterkir, og voru kallaðir Hordearii, eftir hinu latneska heiti byggsins. Grískir hjarðmenn lifðu á byggkökum, og bygg var notað til vín- og ölgerðar í stað humla. Indíánar hafa mikla trú á bygginu og hafa það um hönd við helgiathafnir sínar og guðsdýrkun. Byggseyði er talinn mjög liollur drykkur og gott meðal við nýrna- og blöðmsjúkdómum. Sumar tegundir fjandafælu (Gnaphalium), svo sem grámygla, em taldar hafa lækningakraft. Indíánar nota eina tegund þessara jurta við höggormabiti, og í Indlandi og Kína era tvær tegundir, G. muldceps og G. policephalum, notaðar til að lækna malariu og hitasótt. Rómverski sagnaritarinn Plinius segir frá því, að þessar jurtir hafi verið notaðar við hálsbólgu með góðum árangn- Homópatar hafa mikla trú á þessum jurtategundum til lækninga. Jurtir af bláklukkuættinni (Campanulaceœ) eru taldar ágætar í salöt og sumstaðar ræktaðar til matar, svo sem í Frakklandi. Ræturnar eru ýmist soðnar eða borðaðar hráar, eru og mjög nær- ingarríkar. Skarfakál (Cochlearia officinalis) er ein þeirra íslenzkra jurta, sem frá fornu fari hefur verið talin mjög læknandi, svo sem óbrigðult meðal við skyrbjúg. Þessi trú á lækningakraft skarfa- kálsins er víðar útbréidd en á Islandi. 1 Skotlandi er skarfakáls- seyði talið ágætt meðal við skyrbjúg og fleiri sjúkdómum. Jurtin er notuð, ýmist nýtekin af jörðinni eða þurrkuð og mátulegt talið, ,að 50—60 grömm fari í pott af sjóðandi vatni. Af þessu vatni a svo að drekka fullt glas á tveggja til þriggja tíma fresti. Land- könnuðurinn frægi, Cook kaptemn, notaði skarfakál mikið a

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.